19.12.1986
Sameinað þing: 35. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2010 í B-deild Alþingistíðinda. (1970)

1. mál, fjárlög 1987

Frsm. meiri hl. fjvn. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur nú lokið störfum fyrir afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1987. Hér við 3. umr. fjárlagafrv. vil ég enn sem fyrr flytja samstarfsmönnum mínum í fjvn. þakkir fyrir ósérplægni og lipurð í störfum. Ég vil einnig ítreka þakkir mínar til starfsmanns nefndarinnar og til starfsfólks Fjárlaga og hagsýslustofnunar og flytja hæstv. fjmrh. þakkir fyrir ágæt samskipti við mig sem formann nefndarinnar.

Samkvæmt venju komu forsvarsmenn Þjóðhagsstofnunar á fund fjvn. fyrir 3. umr. Þar voru í fyrsta lagi kynntar þjóðhagshorfur fyrir næsta ár og í öðru lagi nýtt mat á tekjum ríkissjóðs á næsta ári.

Hér er ekki ástæða til að rekja ítarlega álit Þjóðhagsstofnunar á því hver muni verða framvinda efnahagsþróunarinnar á næsta ári. Það hefur verið gert skilmerkilega í fréttum. Mér þykir það þó hvað athyglisverðast að ofan á 8% aukningu þjóðartekna á þessu ári er enn spáð 4% hagvexti á árinu 1987 og enn fremur að á milli áranna 1986 og 1987 aukist kaupmáttur atvinnutekna um 7-8% og hafi þá aukist um 30% frá árinu 1984. Þessar spár benda sannarlega til aukinnar velsældar sem nauðsynlegt er að nýta til að styrkja innviði efnahags- og atvinnulífs í landinu.

Í brtt. meiri hl. fjvn. á þskj. 420 við tekjuhlið fjárlagafrv. er byggt á mati Þjóðhagsstofnunar varðandi tekjur samkvæmt tekjustofnum ríkisins á næsta ári. Er þar hvort tveggja lagt til grundvallar þjóðhagshorfur á næsta ári að teknu tilliti til nýgerðra kjarasamninga og einnig á hvern hátt innheimtur ríkissjóðs hafa þróast eftir því sem liðið hefur á þetta ár.

Þá er enn fremur tekið tillit til þess að í kjölfar nýgerðra kjarasamninga hefur verið ákveðið að hverfa frá svokölluðum orkuskatti, 600 millj. kr., sem ráðgert var að innheimta á næsta ári, og einnig fyrirhuguðum arðgreiðslum Pósts og síma um 200 millj. kr.

Þegar fjárlagafrv. var lagt fram voru tekjur samkvæmt tekjuhlið samtals 40 milljarðar kr. Í brtt. meiri hl. fjvn. er gert ráð fyrir að tekjur hækki samtals um rúma 3 milljarða og verði 43 milljarðar og 29 millj. Veigamest er sem jafnan fyrr á síðari árum hækkun óbeinna skatta eða úr 31,3 milljörðum í frv. eins og það var lagt fram í 33,7 milljarða. Rétt er að vekja athygli á því að gert er ráð fyrir í þessum tillögum að hækkun verði á skipaskoðunargjaldi úr 4,5 millj. í 9,2 millj. og að vitagjald hækki um 15%, en að þessu var vikið hér við 2. umr.

Brtt. fjvn. og meiri hl. nefndarinnar í gjaldabálk frv. eru þó enn hærri eða samtals 3,8 milljarðar kr. Þessar brtt. um hækkun útgjalda eiga sér í meginatriðum þrenns konar rætur. Í fyrsta lagi eru það tillögur sem rekja má til ákvarðana sem teknar hafa verið í fjvn., um 315 millj. kr., í öðru lagi tillögur sem rekja má til ákvarðana hæstv. ríkisstjórnar í tengslum við nýgerða kjarasamninga, 915 millj. kr., og í þriðja lagi tillögur sem birtast á sérstöku þskj. um uppfærslu verðlags og launa á gjaldabálki fjárlaganna samkvæmt nýjum forsendum, um 2569 millj. kr.

Brtt. er varða fyrsta lið þessara útgjalda frá fjvn. verða skýrðar nánar fyrir lok ræðu minnar. Þar er langsamlega veigamest tillaga um hækkun útgjalda ríkisspítala um 149 millj. kr.

Varðandi annan lið þessara mála, þær brtt. er snerta ákvarðanir ríkisstjórnar í sambandi við nýgerða kjarasamninga, má nefna:

1. Hækkun lífeyrisbóta um 600 millj. kr.

2. Hækkun niðurgreiðslu á rafhitun um 85 millj. til að halda í skefjum hækkun á orkuverði til notenda.

3. 120 millj. kr. framlar til Áburðarverksmiðju ríkisins til að draga úr þörf á hækkun áburðarverðs á árinu 1987 og er þá gert ráð fyrir að áburðarverð hækki um 7%.

4. Endurgreiðsla ríkissjóðs á 110 millj. kr. greiðslum frá Alþjóðaflugmálastofnuninni, ICAO, til Póst- og símamálastofnunar fyrir ýmsa þjónustu í þágu millilandaflugs á íslensku flugstjórnarsvæði. Þetta er gert í þeim tilgangi að draga úr þörf stofnunarinnar fyrir hækkun gjaldskrár á næsta ári.

Þá er þriðji þáttur þessara útgjaldatillagna sem byggist á nýjum verðlags- og launaforsendum í kjölfar kjarasamninga. Tillögur er lúta að þessum lið birtast á þskj. 465 frá meiri hl. fjvn.

Þessar nýju forsendur, sem þar koma fram, gera í fyrsta lagi ráð fyrir hækkun launa um 9,6% og annarra gjalda og sértekna um 7% á almennum rekstri stofnana ríkisins. Með þessum hætti eru fjárhæðir sem varða laun og rekstrargjöld hækkaðar frá verðlagi fjárlagafrv., sem var áætlað verðlag í desember þessa árs, til þess verðlags sem áætlað er að verði að meðaltali á árinu 1987. Þessum hækkunum er skipt í tvennt:

1. Hækkun launa og annarra gjalda vegna þess að launa- og verðlagsbreytingar á síðustu mánuðum ársins 1986 hafa orðið heldur meiri en gert var ráð fyrir þegar fjárlagafrv. var lagt fram. Til þessa má rekja um 390 millj. kr. Í þessari fjárhæð kemur fram hækkun launa um 2,09%, sem ákveðin var fyrr í þessum mánuði, og bætist sú hækkun við launalið allra stofnana.

2. Hækkun launa og annarra gjalda á almennum rekstri stofnana vegna áætlaðra launa- og verðlagsbreytinga á árinu 1987. Hér hefur verið tekið mið af ákvæðum nýgerðra kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins um kauphækkanir á árinu 1987 og þeim forsendum um verðlags- og gengisþróun sem þeir byggjast á. Til þessa má rekja um 1348 millj. kr. Þar sem nýir kjarasamningar hafa ekki verið gerðir við opinbera starfsmenn var sú ákvörðun tekin að áætla fyrir launahækkunum á árinu 1987 á einum fjárlagalið, Launa- og verðlagsmál undir fjmrn. Þar verða færðar 1100 millj. kr. af þessum 1348 millj.

Í tengslum við verðuppfærsluna var einnig endurmetin þörf á framlagi til Þjóðleikhússins og til skrifstofu Lánasjóðs ísl. námsmanna vegna núverandi starfsemi á þessum stöðum.

Þá er um að ræða hækkun lífeyris-, slysa- og sjúkratrygginga um 474 millj. vegna ofangreindra launa- og verðlagsbreytinga. Þá má enn nefna ýmsa aðra liði sem samtals eru 357 millj. Þar er til að mynda hækkun vaxtagjalda um 180 millj., hækkun vegna Atvinnuleysistryggingasjóðs um 37 millj., vegna Framkvæmdasjóðs aldraðra um 25 millj. kr. og útflutningsuppbætur um 80 millj.

Samtals nema þessar hækkanir á gjaldabálki frv., eins og áður sagði, um 3,8 milljörðum kr. Verði þessar tillögur fjvn. og meiri hl. fjvn. samþykktar verða heildarútgjöld ríkissjóðs á fjárlögum næsta árs 45 milljarðar 834 millj. kr. Samkvæmt því verður halli á rekstraryfirliti fjárlaganna um 2 milljarðar 805 millj. kr.

Þrátt fyrir þennan alvarlega halla er ekki gert ráð fyrir að erlendar lántökur verði auknar heldur verði þær óbreyttar frá því sem fjárlagafrv. greinir eða 1700 millj. kr. Á hinn bóginn verður að leita meira á innlenda lánsfjármarkaði og er gert ráð fyrir lánsfjáröflun hjá lífeyrissjóðum um 1300 millj. kr. til viðbótar annarri lánsfjáröflun sem fram kemur í lánsfjárfrv.

Miðað við áætlaðar lánahreyfingar ríkissjóðs á næsta ári er reiknað með að lánsfjárþörf ríkissjóðs verði alls 6,3 milljarðar. Er þá gert ráð fyrir greiðsluafgangi á greiðsluyfirliti um 115 millj. kr. Ég tel enga ástæðu til að draga dul á þá skoðun mína að hér sé um alvarlegan rekstrarhalla að ræða. Það er þó vitaskuld bót í máli að með þessum rekstrarhalla er ekki stefnt að því að auka erlendar lántökur eða veikja stöðu þjóðarbúsins gagnvart útlöndum. Orsakirnar að þessum hallarekstri liggja að sumu leyti í augum uppi.

Eins og ég gat um við 2. umr. ákvað ríkisstjórnin snemma á þessu ári að taka á ríkissjóð byrðar í tengslum við lausn kjarasamninga sem samtals námu 1800 millj. kr. Þeir kjarasamningar sem gerðir voru í upphafi þessa mánaðar og yfirlýsingar hæstv. ríkisstjórnar í tengslum við þá hafa einnig veruleg áhrif á tekjur og gjöld ríkissjóðs á næsta ári. Þetta er auðvitað vandmetið, en virðist þó augljóslega hafa neikvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs á næsta ári um eða yfir 3 milljarða kr. Þetta kemur m.a. fram við lækkun tekna hjá ríkissjóði við það að hverfa frá orkuskatti um 600 millj. og arðgreiðslum Pósts og síma um 200 millj. eða samtals 800 millj. kr. Enn fremur í ýmsum ákvörðunum hæstv. ríkisstjórnar í tengslum við yfirlýsingar sem gefnar voru við gerð kjarasamninga og fela í sér aukin útgjöld ríkissjóðs um 915 millj. eins og áður sagði. Eru þá ótalin áhrif kjarasamninganna á hækkun verðlags og launa. Á móti þessu vega þeir kostir kjarasamninganna sem felast í hófsömum kauphækkunum og auknum launajöfnuði. En eins og áður sagði verður ekki annað séð en að meta megi áhrif kjarasamninganna og þeirra aðgerða sem gripið er til í tengslum við þá yfir 3 milljarða kr.

Við þessa fjárlagaafgreiðslu blasir við að tvisvar sinnum á árinu 1986, bæði í febrúarmánuði og í desemberbyrjun, hefur hæstv. ríkisstjórn stuðlað að því að náðst hafa hófsamir kjarasamningar á þann máta að taka miklar byrðar á herðar ríkissjóðs. Jafnframt er ljóst að ekki hefur tekist að ná fram auknum sparnaði eða niðurskurði ríkisútgjalda á móti þessum nýju útgjaldabyrðum og ekki hefur heldur verið horfið að því að afla nýrra tekna. Um leið og kaupmáttur launafólks hefur farið stórum vaxandi, góðæri hefur komið til launafólks í landinu hefur hæstv. ríkisstjórn stuðlað að þjóðarsátt í landinu við gerð kjarasamninga á þann hátt að það hefur tryggt hagstæða efnahagsþróun, en vandanum hefur verið velt yfir á ríkissjóð. Afleiðingin birtist í halla er fram kemur við afgreiðslu þessa fjárlagafrv.

Ég mun þá með örfáum orðum gera grein fyrir brtt. er varða aukin útgjöld til tveggja af mestu útgjaldastofnunum A-hluta fjárlaga, en það eru Tryggingastofnun ríkisins og ríkisspítalar.

Lagt er til að framlag til lífeyristrygginga, sjúkratrygginga og slysatrygginga hækki samtals um 1074 millj. kr. Hækkun sjúkratrygginga nemur 373 millj. og er það í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlagafrv. eins og þær hafa verið kynntar hér við 3. umr. Hækkun lífeyris- og slysatrygginga er á hinn bóginn hlutfallslega meiri vegna nýgerðra kjarasamninga. Lagt er til að framlag til lífeyristrygginga hækki í fyrsta lagi um 600 millj, kr. vegna sérstakrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar sem tengist ákvörðun kjarasamninga. Til viðbótar nemur hækkun lífeyristrygginga vegna hækkunar á verðlagsforsendum frv. 84 millj. Rétt er að geta þess að samtals er því gert ráð fyrir hækkun lífeyristrygginga sem nemur 684 millj. kr. Þetta er rúmlega 12% hækkun frá því sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrv. þegar það var lagt fram, en í frv. var einnig svigrúm fyrir hækkun bóta um rúmlega 2% umfram núgildandi bætur. Það þýðir að gert verður ráð fyrir fjármagni í fjárlögum sem dugir fyrir rúmlega 14% hærri bótagreiðslum að meðaltali en nú eru í gildi. Þetta þýðir þá jafnframt að svigrúm til að hækka bætur er að jafnaði um 11% í ársbyrjun 1987 og síðan í samræmi við almenna kjarasamninga 1. mars, 1. júní og 1. sept. Enn liggur ekki fyrir ákvörðun um hækkun einstakra bótaflokka og ekki heldur hvernig hækkun til elli- og örorkulífeyrisþega skiptist á almennan lífeyri eða tekjutryggingu, en tekið verður tillit til þeirra markmiða í kjarasamningum að hækka mest bætur til þeirra sem minnst hafa. Verði þessar brtt. samþykktar verða framlög ríkissjóðs til Tryggingastofnunar ríkisins á næsta ári 10 milljarðar 887 millj. kr. eða um 23,8% af útgjöldum fjárlaga.

Í brtt. er varða ríkisspítala er lagt til að hækka framlög til þeirrar stofnunar um samtals 149,2 millj. kr. eða um rúmlega 5% frá því sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrv. Ýmsar ástæður eru fyrir þessari miklu hækkun og vegur þar þyngst vanáætlun á rekstrargjöldum, m.a. vegna núverandi og nýrrar starfsemi sem orðið hefur dýrari en ráð var fyrir gert. Tillögurnar verða nú skýrðar nánar.

Lagt er til að framlög til stofnkostnaðar hækki um 16 millj. kr., um 4 millj. vegna nýrrar endurhæfingardeildar á Kristnesspítala og um 12 millj. vegna endurnýjunar á símstöð Landspítalans. Er þar um að ræða byrjunarfjárveitingu til þessa verkefnis, en endanlegur kostnaður er áætlaður 28 mlllj. kr. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið á árinu 1988. Lagt er til að framlag til launaliðar hækki um 6,2 millj. og er um að ræða sjö nýjar stöður. Þar af eru 2,5 stöður vegna AIDS, en kostnaður vegna þessa máls hefur farið langt fram úr því sem gert var ráð fyrir við fjárlagagerð 1986. Stöður þessar eru: Hálf staða sérfræðings, ein staða aðstoðarmanns og ein staða skrifstofumanns. Vegna hjartaskurðlækninga er lagt til að tekin verði upp hálf staða sérfræðings og loks er gert ráð fyrir fjórum stöðum iðnaðarmanna og er einn af þeim öryggismálafulltrúi, en öryggismál hafa mikið verið rædd á síðasta ári. Lagt er til að framlög til annarra gjalda hækki um 127 millj. kr., þar af vegna nýrrar móttökudeildar fyrir bráðveika 2,1 millj. og eru það aukin rekstrargjöld, en stjórnendum spítalanna er ætlað að manna þá deild innan þeirra stöðuheimilda sem fyrir eru. Lagt er til að 15 millj. kr. gangi til þess að auka umfang í rekstri á árinu 1987, einkum vegna aðgerða til útvíkkunar á kransæðum o.fl. og einnig til að standa undir útgjöldum við eldhús og þjónustustörf á Kópavogshæli.

Í fjárlagafrumvarpinu eins og það var lagt fram, var gert ráð fyrir launagreiðslum hjá ríkisspítölum sem nema 1788 millj. kr. og gefur það nokkra hugmynd um umfang þessarar stofnunar. Rétt er að geta þess að ofan á þær tölur sem hér hafa verið raktar og varða launa- og rekstrargjöld kemur verðlagshækkun samkvæmt hinum nýju forsendum sem kynntar eru við þessa umræðu.

Ég mun þá víkja að nokkrum B-hluta stofnunum, en brtt. varðandi B-hluta birtast á þskj. 419 og eru fluttar af meiri hl. fjvn. Þar er jafnframt um að ræða uppfærslu verðlags og launa á þessum stofnunum og kemur það glöggt fram í brtt. meiri hl. nefndarinnar.

Á undanförnum árum hefur fjvn. fjallað um fjármál B-hluta fyrirtækja og sjóða ríkisins með ýmsu móti og oft í mikilli tímaþröng. Í athugasemdum með því fjárlagafrv. sem hér er til lokaafgreiðslu var boðað að nauðsyn bæri til að gera hér breytingu á þannig að umfjöllun yrði markvissari og að stefna stjórnvalda, einkum í gjaldskrár- og fjárfestingarmálum, yrði skýrari. Rétt er að geta þess hér að meðal margra þjóða eru ákvarðanir um gjaldskrár opinberra fyrirtækja teknar við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni og verður ekki breytt innan fjárlagaársins. Þetta hefur ekki verið gerlegt hér á landi á undanförnum árum vegna mikillar verðbólgu og sveiflukenndra verðlagsbreytinga. Að sjálfsögðu skiptir það miklu máli fyrir landsmenn hvernig starfsemi og gjaldtöku þessara opinberu fyrirtækja er háttað.

Í meðförum fjvn. nú er það einkum tvennt sem unnið hefur verið að varðandi B-hluta fyrirtækin. Annars vegar hafa allar fjárhæðir að því er varðar rekstur fyrirtækja og sjóða verið færðar upp til verðlags á árinu 1987 miðað við sömu forsendur og gilda um A-hluta fjárlaga. Á hinn bóginn hefur nefndin nú fjallað um fjármál og afkomu fleiri ríkisfyrirtækja en áður. Till. nefndarinnar um afkomu fyrirtækjanna, sem ég geri nú grein fyrir, eru í fullu samræmi við tillögur ríkisstjórnarinnar um gjaldskrárhækkanir og aðrar ákvarðanir um fjármálaráðstafanir. Augljóst er að samkomulag hæstv. ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins um þau ákvæði kjarasamninga er varða gjaldskrárbreytingar hafa veruleg áhrif á svigrúm B-hluta stofnana. Það er líka eðlilegt að þær taki á sinn hátt þátt í því aðhaldi sem nauðsynlegt er í ríkisbúskapnum til jafns við stofnanir A-hluta.

Lánasjóður ísl. námsmanna. Alls er gert ráð fyrir að ráðstöfunarfé sjóðsins hækki um 113 millj. kr., þar af er gert ráð fyrir að fjárframlag úr A-hluta hækki um 63 millj. og lántaka sjóðsins aukist um 50 millj. Af þessari hækkun eru 86 millj. vegna uppfærslu verðlags. Meiri hl. fjvn. leggur til að sú efnisbreyting verði gerð á fjármálum sjóðsins að rekstrarútgjöld hækki um 27 millj. kr. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld ekki horfst í augu við reksturskostnað sjóðsins, en að tillögu menntmrn. er gerð breyting á til samræmis við veruleikann. Er þá alls gert ráð fyrir að varið verði 38 millj. kr. til reksturs á sjóðnum.

Ríkisútvarpið. Fjármál Ríkisútvarpsins hefur borið nokkuð hátt á undanförnum dögum, m.a. hér á hv. Alþingi við meðferð og umræðu um frv. til lánsfjárlaga. Ljóst er að fjármál fyrirtækisins eru um margt erfið. Samkeppni um auglýsingar hefur harðnað með tilkomu nýrra sjónvarps- og útvarpsstöðva og kemur það óhjákvæmilega niður á Ríkisútvarpinu og fjárhagsafkomu þess. Nú er talið að greiðsluhalli Ríkisútvarpsins á árinu 1986 muni nema 130 millj. kr., en auk þessa hefur fyrirtækið yfirdregið á viðskiptareikningi sínum við Landsbanka Íslands vegna framkvæmda um 70 millj. kr. Hæstv. ríkisstjórn og stuðningsflokkar hennar hafa nú ákveðið að skila fyrirtækinu þeim tekjum af aðflutningsgjöldum sem innheimtast á árinu 1986, en það eru 130-140 millj. kr. Með þessum hætti fæst sem næst jöfnuður á rekstri fyrirtækisins á þessu ári, en reikningar vegna framkvæmda verða varla greiddir á árinu.

Till. meiri hl. fjvn. varðandi þessa stofnun byggjast á því að afnotagjöld Ríkisútvarpsins hækki um 20% frá og með næstu áramótum. Jafnframt er ekki reiknað með að útvarpinu verði skilað tekjum af aðflutningsgjöldum á næsta ári. Tekjum fyrirtækisins eru því settar mjög þröngar skorður. Í meðförum fjvn. hefur komið fram að fjárhagsvandi fyrirtækisins á árinu 1987 er talinn vera um 74 millj. kr. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að útgjöld verði lækkuð sem þessu nemur. Lagt er til að kaup á tækjum og búnaði verði þannig lækkuð um 16 millj. kr. frá því sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. og að laun og rekstrargjöld verði lækkuð um 58 millj. kr. Það má öllum ljóst vera að hér er um verulegan samdrátt á starfseminni að ræða, en hjá því verður varla komist ef ekki verður um nýjar tekjur að ræða, enda er þá ættast til að rekstur stofnunarinnar sé í jafnvægi.

Þá er gert ráð fyrir því að tekjur Framkvæmdasjóðs útvarpsins verði alls um 85 millj. kr. og er þá gengið út frá að 10% af tekjum útvarpsins renni í sjóðinn þrátt fyrir mikla rekstrarerfiðleika.

Þjóðleikhús. Fjármál Þjóðleikhússins hafa ekki verið í jafnvægi á undanförnum árum. Í lok þessa árs er talið að stofnunin skuldi um 90 millj. kr. í ríkissjóð vegna rekstrarhalla á árunum 1985 og 1986. Þannig er ekki hægt að halda áfram. Í samráði við menntmrn. hefur fjvn. fjallað um fjármál hússins og leggur nú til að nokkrar breytingar verði gerðar á fjárveitingum til starfseminnar. Leggur meiri hl. nefndarinnar til að framlag úr ríkissjóði verði á næsta ári alls 110 millj. kr. og hækki um 27 millj. Þar af eru 6 millj. vegna verðuppfærslu, en 21 millj. sem aukin framlög. Þá verður að líta svo á að tekið hafi verið raunhæft á rekstrarútgjöldum stofnunarinnar, en þau eru alls talin vera um 155 millj. kr. á næsta ári. Tekjur Þjóðleikhússins af aðgangseyri og annarri eiginstarfsemi hafa farið lækkandi frá árinu 1985 og eru aðeins áætlaðar 37 millj. kr. á árinu 1987. Þessara tekna verður þó tæplega aflað án þess að forsvarsmönnum leikhússins takist að ná aukinni aðsókn að leikhúsinu og einnig að aðgangseyrir verði hækkaður. Fjvn. telur þó að með þeim auknu framlögum úr ríkissjóði sem hér eru gerðar tillögur um til rekstrar hússins sé viðurkenndur rekstrargrundvöllur sem stjórnendum hússins eigi að takast að fara eftir.

Áburðarverksmiðja ríkisins. Meðal þess sem á að verða til þess að halda aftur af verðlagshækkunum á árinu 1987 er að takmarka hækkun búvöruverðs og er því nauðsynlegt að stuðla að hóflegri hækkun á áburðarverði. Eins og áður er frá greint er nú einungis gert ráð fyrir því að áburðarverð hækki um 7% á næsta ári. Til þess að svo megi verða þarf að leggja verksmiðjunni til 120 millj. kr. úr ríkissjóði. Unnið hefur verið að margs konar hagræðingu í starfseminni og er reiknað með að sú viðleitni skili sér þegar á næsta ári og á næstu árum.

Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna. Ég tel að ekki sé ástæða til að fjölyrða um breytingar sem gerðar hafa verið á fjármálum þessara sjóða, enda hefur verið fjallað um lánsfjáröflun til þeirra og ráðstöfun fjárins af fjh.- og viðskn. beggja deilda Alþingis. Framlag ríkisins til sjóðanna nemur, eins og til var stofnað í fjárlagafrv. þegar það var lagt fram, 1300 millj. kr. sem er veruleg fjárhæð.

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Áætlað er að fyrirtækið skili ríkissjóði af hagnaði sínum á næsta ári alls 2650 millj. kr. Hér er um að ræða hækkun um 100 millj. kr. frá því sem fjárlagafrv. gerði ráð fyrir þegar það var lagt fram og kemur þessi breyting fram í brtt. við 3. gr.

Póst- og símamálastofnun. Verðlagning á þjónustu Pósts og síma vegur allþungt í framfærslukostnaði heimilanna. Því hafa stjórnvöld yfirleitt leitast við að takmarka gjaldskrárhækkanir svo sem frekast hefur verið kostur. Þess má geta að gjaldskrá símgjalda hefur ekki hækkað síðan í ágústmánuði 1983. Þvert á móti hefur gjaldskrá símgjalda lækkað síðan og allur útgjaldaauki verið borinn uppi af aukinni sölu. Afkoma fyrirtækisins á þessu ári er erfið. Horfur eru á greiðsluhalla sem nemur 167 millj. kr., auk þess sem fyrirtækið hefur ekki getað skilað ríkissjóði 180 millj. kr. arðgreiðslum svo sem ráðgert var við afgreiðslu fjárlaga fyrir ári. Fyrir árið 1987 er gert ráð fyrir að forsendur áætlunarinnar fyrir þessa stofnun séu eftirfarandi:

Gert er ráð fyrir að gjaldskrá fyrir símaþjónustu hækki um allt að 16%, en fyrir póstburðargjöld 20- 25%. Einnig er við það miðað að ýmis sérþjónustugjöld hækki sérstaklega. Með þessum hætti ætti að nást jafnvægi í rekstri fyrirtækisins, auk þess sem gert er ráð fyrir að vinna bug á greiðsluhalla á árinu 1986. Þá er gert ráð fyrir að fyrirtækið hafi til ráðstöfunar vegna fjárfestingar 462 millj. kr. á næsta ári.

Skipaútgerð ríkisins. Fjármál þessa fyrirtækis hafa verið leiðrétt til samræmis við verðlagsuppfærslu frv. Er þá gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs til Skipaútgerðar ríkisins nemi á næsta ári 147 millj. kr. Ekki er gert ráð fyrir öðrum breytingum á rekstri fyrirtækisins, en í þessu felst að gjaldskrá þess þarf að hækka um 15% í ársbyrjun á næsta ári.

Sementsverksmiðja ríkisins. Afkoma fyrirtækisins hefur verið í jafnvægi á þessu ári. Því er ekki talin þörf á sérstakri hækkun á sementi. Í umfjöllun nefndarinnar er því við það miðað að útsöluverð á sementi hækki um 7% á næsta ári sem er í samræmi við almennar verðlagsbreytingar.

Rafmagnsveitur ríkisins. Stjórn Landsvirkjunar ákvað fyrir skömmu að hækka heildsöluverð á raforku um 7,5%. Þessi hækkun kallar á um 4,5% hækkun á útsöluverði raforku hjá RARIK og öðrum smásölufyrirtækjum, en um 60% af rekstrarútgjöldum Rafmagnsveitna ríkisins eru vegna orkukaupa. Auk þessa er í till. nefndarinnar lagt til að taxtar Rafmagnsveitna ríkisins hækki um 6% eða samtals um 10,5%. Þannig ætti að nást jöfnuður í rekstri fyrirtækisins á árinu 1987. Gert er ráð fyrir að fjárfesting verði óbreytt miðað við það sem kynnt var í fjárlagafrv. eða samtals 175 millj. kr.

Ég hef þá lokið að greina frá því helsta er varðar B-hluta stofnanir. En eins og áður segir er flutt um það brtt. frá meiri hl. fjvn. á þskj. 419 þar sem allar B-hluta stofnanir fá ítarlegan útreikning.

Ég mun þá að lokum fara yfir þær brtt. sem fluttar eru af fjvn. í heild við 4. gr. Rétt er að taka fram að samkvæmt venju hefur minni hl. fjvn. fyrirvara um afgreiðslu einstakra till. á þessu þskj. og hefur áskilið sér einnig rétt til að flytja eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma.

Það er fyrst Þjóðgarðurinn á Þingvöllum og Þingvallanefnd. Þar er um að ræða stofnkostnað 1 millj. kr. sem er snyrtiaðstaða í Þjóðgarðinum á Þingvöllum.

Þá er menntmrn., aðalskrifstofa. Gert er ráð fyrir að launaliður hækki um 700 þús. kr. vegna sérgreinds verkefnis á vegum byggingadeildar menntmrn.

Þá eru till. er varða Háskóla Íslands. Fyrst er tekinn upp nýr liður, Rannsóknir í fræðum kvenna, um 1 millj. kr. og er gert ráð fyrir að það sé tímabundið verkefni sem fái styrkveitingu á þessu ári.

Liðurinn Fjarkennsla er nýtt viðfangsefni. Þar er lagt til að veitt verði 1 millj . kr. sem er aðeins til þess að unnt sé að byrja þessa starfsemi sem hefur verið í undirbúningi að undanförnu.

Í þriðja lagi háskólakennsla á Akureyri. Lagt er til að til þessa viðfangsefnis verði varið 5 millj. kr. til viðbótar þeim 1200 þús. kr. sem felast í fjárlagafrv. eins og það var lagt fram.

Í fjórða lagi eru fasteignir Háskóla Íslands. Lagt er til að varið verði til viðhalds á fasteignum Háskólans frá ríkissjóði 10 millj. kr.

Tilraunastöð Háskólans á Keldum, rannsóknadeild fisksjúkdóma. Lagt er til að tekin verði upp ein ný staða á rannsóknadeildinni fyrir um 600 þús. kr. og eignakaup hækkuð um 400 þús. kr. Enn fremur að sértekjur verði hækkaðar sem nemur 435 þús. kr.

Raunvísindastofnun Háskólans, viðbygging. Lagt er til að til fjárfestingar verði varið til viðbótar við það sem greinir í fjárlagafrv. 4 millj. kr. sem er vegna þakhæðar á húsi Raunvísindastofnunar.

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Lagt er til að við liðinn Yfirstjórn verði varið í fyrsta lagi 600 þús. kr. vegna aukinna launagjalda og í öðru lagi 2 millj. vegna tækjabúnaðar, en þetta er hvort tveggja til að hefja ljósritun handrita, bæði við Handritastofnun Árna Magnússonar og eins varðandi íslensk handrit í Danmörku, og er þá gert ráð fyrir að aðrir aðilar leggi fram fjármagn til viðbótar því sem hér kemur frá hálfu ríkisins á fjárlögum.

Þá er Rannsóknasjóður. Lagt er til að framlag til sjóðsins hækki um 10 millj. kr. og verði 60 millj. kr. Liðurinn Tónlistarfræðsla, aðrir tónlistarskólar.

Lagt er til að liðurinn hækki um 600 þús. kr. vegna þess að þar er tekin upp í rekstur kennsla í einum tónlistarskóla, þ.e. á Ólafsfirði.

Liðurinn Grunnskólar, almennt. Tekinn verði upp nýr liður til viðbótar rekstrarliðum grunnskóla, Sérkennsla í grunnskólum, óskipt, sem er 5 millj. kr.

Þá er hér liðurinn Bygging grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra, stofnkostnaður. Það eru raunar leiðréttingar á yfirliti sem kynnt var við 2. umr. Það eru 10 þús. kr. vegna undirbúningsfjárveitinga við íþróttahús í Garðabæ og íþróttahús í Reykholtsdalshreppi, 5 þús. kr. á hvort hús svo sem venja er í þessum lið við undirbúning framkvæmda í grunnskólamálum.

Þá er hér liðurinn Náttúruverndarráð, framkvæmdir í þjóðgörðum. Tekinn verði upp liður um 1 millj. kr. sem er vegna skuldagreiðslna, en skuldir eru m.a. vegna Þjóðgarðsins í Ásbyrgi.

Þá er hér liðurinn Norræna félagið. Lagt er til að liðurinn hækki um 100 þús. kr. og verði 324 þús. kr. Þá er liðurinn Útflutnings- og markaðsskólinn.

Lagt er til að liðurinn hækki um 1 millj. og verði 2,5 millj. kr.

Þá eru brtt. er varða utanríkisráðuneyti: Utanríkisráðuneyti, aðalskrifstofa. Nýir liðir: Í fyrsta lagi staðgengill samstarfsráðherra Norðurlanda og er það tilfærsla yfir til utanrrn. frá viðskrn. Samtals er þar um að ræða 3 mlllj. 719 þús. kr. og felst í liðnum aukning um 400 þús. kr. Enn fremur er lagt til að taka upp liðinn Markaðsmál við utanrrn. svo sem verið hefur á undanförnum árum og er þar gert ráð fyrir 2 millj. kr.

Þá er liðurinn Sendiráð, almennt, viðhaldsfé óskipt. Liðurinn hækki um 1200 þús. kr. sem er vegna viðhalds í sendiráðunum í Stokkhólmi og Bonn.

Þá eru till. er varða landbúnaðarráðuneytið: Búnaðarfélag Íslands, ráðunautar. Lagt er til að taka upp eina stöðu ráðunauts, þ.e. í matfiskeldi. Að höfðu samráði við hæstv. landbrh. er gert ráð fyrir að ráðið verði í þessa stöðu tímabundið til að sjá hvernig þessi starfsemi kemur út.

Þá er liðurinn Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Tekinn er upp fjárfestingarliðurinn Hús bútæknideildar á Hvanneyri 1500 þús. kr. og hækkaðar eru fjárfestingar við Tilraunastöðina á Stóra-Ármóti um 1 millj. og Tilraunastöðina á Möðruvöllum einnig um 1 millj. kr.

Þá er liðurinn Áburðarverksmiðja ríkisins, tilfærsla, 120 millj. kr. eins og áður hefur komið fram. Til Landgræðslu ríkisins, almenn landgræðsla.

Lagt er til að liðurinn hækki um 5,5 millj. og hefur verið reiknað út að það framlag sé sambærilegt að verðgildi og var árið 1982 og í samræmi við yfirlýsingar Alþingis í sambandi við landgræðsluáætlun.

Þá er hér Veiðimálastofnun. Lagt er til að við Laxeldisstöðina í Kollafirði verði tekinn upp liðurinn Laun vegna fjögurra starfsmanna 1800 þús. kr. Og einnig vegna sömu stofnunar Skuldagreiðsla 1500 þús. kr.

Landgræðslusjóður. Lagt er til að liðurinn verði hækkaður um 1400 þús. kr. og verði 2 millj. kr. Er þar komið nokkuð til móts við yfirlýsingar sem gefnar voru varðandi þessa stofnun á vegum Alþingis þegar hún var svipt sínum sérmerkta tekjustofni.

Liðurinn Landbúnaðarmál, ýmis starfsemi. Lagt er til að liðurinn hækki samtals um 3 millj. 319 þús. kr., en að verulegu leyti er þessum lið skipt með bréfi til ráðuneytisins.

Þá eru liðir er varða dóms- og kirkjumálaráðuneytið:

Landhelgisgæsla Íslands. Tekinn verði þar upp nýr liður, Þyrluvakt lækna 1700 þús. kr. Fram undir þetta hefur þessi starfsemi verið í sjálfboðavinnu, en nú hefur því verið hætt. Í þessum mánuði er þessi vakt kostuð af hjálparsveitum skáta og það er skoðun nefndarinnar að það fyrirkomulag geti ekki gengið áfram.

Almannavarnir ríkisins. Almennur rekstur hækki um 250 þús. vegna skjálftavaktar í Mývatnssveit. Þá eru liðir varðandi félagsmálaráðuneyti: Málefni fatlaðra í Reykjavík. Nýr liður: Meðferðarheimili fyrir þroskahefta 1 millj. kr. Greiningarstöð ríkisins. Tekið verði upp nýtt stöðugildi fyrir 600 þús. kr.

Framkvæmdasjóður fatlaðra. Í samræmi við yfirlýsingu hæstv. fjmrh. við 2. umr. er hér lagt til að liðurinn hækki um 30 millj. kr.

Félagsmál, ýmis starfsemi. Tekinn upp nýr liður, Öryggisfræðsla sjómanna, fræðslunámskeið, og til þess varið 8 millj. kr.

Liðurinn Ýmis framlög. Lagt er til að liðurinn hækki um 300 þús. kr., en þessum lið eins og ýmsum slíkum safnliðum einstakra ráðuneyta verði skipt með bréfi.

Þá eru till. er varða heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti:

Það eru fyrst Ríkisspítalar sem ég hef áður gert grein fyrir í þessari ræðu minni.

Sjúkrahús og læknisbústaðir, nýir liðir. Það er Hjúkrunar- og dvalarheimilið Skjól, byggingarstyrkur, 4,5 millj. kr. Að þessu dvalarheimili standa margir aðilar, þ.e. aðildarfélög ASÍ, aðildarfélög BSRB, bændasamtökin, þjóðkirkjan, DAS og Sjómannadagsráð og Reykjavíkurborg.

St. Jósefsspítali í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir að verja til röntgentækja 1 millj. og 500 þús. kr. Borgarspítalinn í Reykjavík, almennur rekstur.

Lagt er til að launaliður hækki um 22 millj. kr. sem er leiðrétting. Eftir nákvæma yfirferð á launaútreikningi hefur komið í ljós að þörf var á þessari leiðréttingu.

Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, nýbygging og tækjabúnaður. Lagt er til að varið verði 10 millj. kr. á næsta ári til innréttingar á röntgendeild sem mundi væntanlega hefja starfsemi sína á árinu 1988.

Liðurinn Reykingavarnir, tóbaksvarnir, hækkar um 215 þús. kr. og Áfengisvarnir, áfengisvarnaráð, hækki um 280 þús. kr.

Sjúkraliðaskóli Íslands. Liðurinn hækki í samræmi við óskir ráðuneytis um 250 þús. kr.

Liðurinn Uppbætur á lífeyri á vegum fjármálaráðuneytisins. Það er í fyrsta lagi Lífeyrissjóður starfsmanna stjórnmálaflokkanna. Hækkun verði um 1786 þús. kr. Liðurinn Eftirlaun ýmissa starfsmanna, sem lengi hafa verið á fjárlögum en er nú smám saman að fækka, hækki um 618 þús. kr.

Ég tel rétt að geta þess áður en ég hverf frá þessum till. að við 2. umr. var kveðið á um að framlag til fræðslu um alnæmi verði hækkað, verði tekinn upp liður til þess. Sá liður var á vegum heilbrmrn., 5 millj. kr. Ég tel rétt að taka fram að fjvn. lítur svo á að þessi liður eigi heima hjá landlækni.

Þá eru hér till. er varða samgönguráðuneytið: Það er fyrst Póst- og símamálastofnunin. Ég hef áður gert grein fyrir þeim till. Hér er yfirlit yfir fjárfestingar þeirrar stofnunar.

Vita- og hafnamálastofnun, straumfræðistöð. Lagt er til að varið verði 3 millj. kr. til að hefja byggingu yfir þá starfsemi.

Orkustofnun. Tekinn verði upp nýr liður, 10 millj. kr., sem tengist sérgreindu verkefni við fiskeldi, einkanlega til að rannsaka náttúrleg skilyrði vatns og upptöku sjávar fyrir fiskeldi, þar á meðal vegna slíkra rannsókna í Öxarfirði.

Þá er hér liðurinn Niðurgreiðsla á rafhitun sem ég hef áður skýrt.

Kemur þá að viðskiptaráðuneyti:

Þar er undir aðalskrifstofu gert ráð fyrir að hækkað verði við Neytendasamtökin um 416 þús. kr. og verði 1 millj. kr.

Hér kemur einnig fram sú millifærsla, sem ég hef áður getið um, að flytja aðstoðarmann samstarfsráðherra frá viðskrn. yfir til utanrrn. og lækkar sá liður um 3 millj. 319 þús. kr. í samræmi við það sem áður er sagt.

Þá er liðurinn Útflutningsráð Íslands. Hér er um nýja stofnun að ræða og er gert ráð fyrir að framlög til hennar hækki um 5 millj. kr. og verði samtals 10 millj. á fjárlögum. Rétt er að geta þess að atvinnuvegirnir leggja fram til þessarar stofnunar 50 millj. kr. þar af sjávarútvegurinn 25 millj. eins og áður hefur komið fram við 2. umr., en með svipuðum hætti er þá dregið úr starfsemi af þessu tagi á vegum utanrrn. og það framlag lækkað í 2 millj. eins og ég hef áður greint frá.

Þá er hér sundurliðun á fjárfestingum Rafmagnsveitna ríkisins, en um þá stofnun hef ég áður fjallað í máli mínu.

Mér þykir einnig rétt að taka fram í sambandi við þessar brtt. að á vegum fjh.- og viðskn. mun hafa verið ákveðið að þær 15 millj. kr. sem veittar eru til ferðamála skv. 8. gr. laga um skipulag ferðamála renni til ferðamálaráðs, en ekkert af fjárhæðinni í Ferðamálasjóð.

Ég hef þá lokið við, herra forseti, að gera grein fyrir till. er varða 4. gr. Ég sé ekki ástæðu til að skýra eða rekja till. varðandi 6. gr., sem er um heimildir á fjárlögum, og vísa til þskj. 459 frá meiri hl. fjvn.

Herra forseti. Ég hef þá lokið við að gera grein fyrir till. fjvn. og meiri hl. fjvn. í þessari umræðu.