19.12.1986
Sameinað þing: 35. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2146 í B-deild Alþingistíðinda. (1996)

1. mál, fjárlög 1987

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Það mál sem hv. síðasti ræðumaður, 4. þm. Norðurl. e., fjallaði um undir lok ræðu sinnar er sannarlega þess virði að því sé gefinn nokkur gaumur hér og ég verð að segja að frammíkall hv. 4. þm. Norðurl. v. (EKJ: Ræðumaður ávarpaði mig.) kom mér svolítið á óvart og hans svar, í rauninni ekki frammíkallið, heldur svarið, efni svarsins, að hann skyldi ekki hafa meiri metnað fyrir hönd þeirrar mikilvægu nefndar sem hann svo ágætlega veitir forstöðu að halda því fram að það væri fínt og í himnalagi að þessi nefnd hefði ritara úr utanrrn. Ekki efast ég um að sá ritari er starfi sínu vaxinn og allt gott um það, en fyrir hönd þingsins og nefnda þingsins eigum við og verðum að hafa meiri metnað um sjálfstæði þingnefnda. Ég verð að segja að þetta svar hv. 4. þm. Norðurl. v. kom mér verulega á óvart.

Það er um margt nauðsynlegt að bæta starfsaðstöðu á Alþingi. Ég fullyrði að á engum jafnfjölmennum vinnustað og Alþingi er, væri unað við þá aðstöðu sem hér er fyrir hendi til matseldar og matargerðar. Ég fullyrði að á engum vinnustað yrði slíkt þolað. Ég spurði í fyrra forstöðumann stórs fyrirtækis sem kom í þinghúsið um hádegisbil: Hversu lengi mundu þínir menn una svona aðbúð? Hann sagði: Hálfan dag. (GJG: Fram að mat.) Einmitt, fram að mat, ekki fram að kaffi. Og hann svaraði þessu án umhugsunar. Ég tala nú ekki um þá aðstöðu sem því starfsfólki sem vinnur í þessari litlu eldhúskompu hér niðri er boðin. Það er afstaða út af fyrir sig að vera ánægður með þetta eins og þm. Kvennalistans og fleiri, en ég lýsi bara andstöðu við þá afstöðu. (GJG: Og andstöðu við Kvennalistann í heild.) Þetta voru ekki mín orð reyndar, en hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson kemst oft ákaflega vel að orði og hnyttilega.

En hafa menn skoðað hvernig búið er að fyrrverandi yfirskjalaverði þingsins uppi á hanabjálkunum? Hafa menn skoðað það? Hefur hv. 4. þm. Norðurl. v. komið þar upp? (EKJ: Já.) Já, og honum finnst það væntanlega allt til fyrirmyndar og mjög gott. (EKJ: Herbergið er skemmtilegt en það er slæmur stigi.) Það er gott að vera lítillátur og ganga ekki langt í kröfugerð, en mér finnst það satt að segja sorglegt þegar menn hvorki hafa metnað fyrir hönd þessarar elstu stofnunar okkar þjóðar né skilning á því að hér þurfi að bæta vinnuaðstöðu. Það þykir mér slæmt. Og ég hygg að ein ástæða þess að ýmsir þm. hafa snúist gegn þessari nýbyggingu sé t.d. sú er fulltrúar úr dómnefndinni héldu fundi með þingflokkum og voru þeir fundir ákaflega misjafnlega sóttir. Þar gafst mönnum kostur á að heyra ýmsar skýringar og útlistanir á þessari byggingu, hvernig hún er hugsuð, hvernig framhaldið er hugsað og ýmislegt fleira. Ég viðurkenni hispurslaust að ég hafði vissulega ýmsar efasemdir eftir að hafa skoðað þessar teikningar, en eftir að hafa hlustað á skýringar og athugasemdir og fengið svör við þeim spurningum sumum hverjum sem vöknuðu í mínum huga við að skoða þetta varð mér margt ljósara en áður hafði verið og þess vegna styð ég þessa tillögu og mér finnst mikils um vert að það geri sem flestir vegna þess að við eigum að hafa hugrekki og manndóm í okkur til að skapa hér viðunandi starfsskilyrði fyrir löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Ég hef enga trú á því að þm. slái sér upp í augum kjósenda með því að leggjast gegn þessari tillögu. Ég hef ekki nokkra trú á því. Ég tek undir með síðasta ræðumanni, hv. 4. þm. Norðurl. e.: Ég skal standa fyrir þessu máli frammi fyrir hverjum sem er og hvenær sem er og verja það. Til þess hef ég fullkomna sannfæringu.

Það er svo aftur annað mál hvort menn vilja fara að byggja þinghús einhvers staðar annars staðar hér í bænum. Það er bara ekki til umræðu. Alþingi er búið að móta stefnu í því. Það verður þá að taka það mál upp aftur og kann vilja þingsins í því. Ég held að hann sé ekkert breyttur. En það er að fara undan í flæmingi og skjóta sér undan því að taka afstöðu til málsins. Það getur vel verið að sú tíð komi að menn sameinist um að flytja Alþingi til Þingvalla. Það getur vel verið og ég er ekkert að segja að það sé fráleit hugmynd þegar kominn er þangað góður vegur og hægt að fara þessa leið á stuttum tíma. Mér finnst að það geti vel komið til greina einhvern tímann í framtíðinni. En fyrirsjáanlega verður Alþingi enn um sinn í þessu húsi og þess vegna verður að gera hér bragarbót, ekki bara vegna þingmanna, ekki síður vegna starfsfólksins, og vegna þeirrar þjónustu sem þessi stofnun á að veita.

Ég gæti auðvitað, herra forseti, haldið töluvert lengi áfram að tala um þetta mál, en ég fullyrði aftur og enn að ýmsar aðstæður hér, sem starfsmönnum er boðið upp á, eru ekki þess eðlis að Vinnueftirlit eða aðrir opinberir aðilar, sem eiga að fylgjast með slíkum stöðum og sjá um að þar sé allt í samræmi við settar reglur, mundu hrópa húrra fyrir eða blessa. Það er ég alveg sannfærður um og þetta vitum við öll. Og svo hafa menn á móti því að úr þessu sé bætt. Það er einkennileg afstaða.

Annað mál var til umræðu áðan. Það voru framlög til flugmála og framkvæmdir á flugvöllum. Nú hefur verið dreift hér þskj. 483 sem er ný skipting á framkvæmdafé til flugvalla. Það var verið að dreifa þessu skjali áðan. Þegar unnið er við þær aðstæður sem hér eru er auðvitað óhjákvæmilegt að gerist ýmiss konar mistök. Mér sýnist að það muni hafa gerst hér og að þetta þskj. sé í rauninni leiðrétting. Það skyldi þó ekki vera ef vinnuaðstæður væru betri hér í þinghúsinu og starfslið hefði betri aðstöðu og þm. þá líka að við gætum komið í veg fyrir svona mistök. Ekki yrði ég hissa á því.

Ég gerði að sérstöku umtalsefni áðan þá heimild sem er að finna í brtt. frá meiri hl. fjvn., lið 5.27, um jarðasölu. Raunar er það nú svo í þessu plaggi líka, í asanum hér og aðbúnaðinum, að ég sé ekki betur en að orðið hafi einhver mistök líka. Nei, það mun vera á öðru þskj., það er búið að laga þetta. Það var fyrr í þessu að sama greinin var tvítekin með örlítið breyttu orðalagi. Það er búið að laga það hér, enda er þetta skjal ekki endurprentað upp heldur er það endurprentað á ný sem þýðir líklega að það er þriðja útgáfan. Af hverju verða svona mistök? Þau verða vegna þess að hér er slök starfsaðstaða m.a. Og svo er fólk hér að hafa á móti að úr sé bætt!

En ég ættaði að víkja að þessari heimildargrein sem fjallar um sölu jarðanna Rauðamýrar í Nauteyrarhreppi og Streitis í Breiðdalshreppi. Ég vil gjarnan bera fram nokkrar spurningar varðandi þetta sem hæstv. fjmrh. kannske svarar á eftir og þeir aðrir sem ég beini spurningum til.

1. Ég held að það sé þingvenja, kannske þó ekki alveg án undantekninga og þær undantekningar gætu hafa læðst inn á síðustu stundu þegar verið var að afgreiða þessi mál með hraði að næturlagi undir lok þinghlés, en ég hygg að það sé nær undantekningarlaust að þegar selja á jarðir úr ríkiseign séu um það sett sérstök lög. Ég vildi gjarnan fá svar við því hvort þetta er ekki réttur skilningur.

2. Í stjórnarskrá íslenska lýðveldisins segir í 40. gr., með leyfi forseta: „Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán er skuldbindi ríkið né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.“ Ég hygg að það sé skilningur fræðimanna og liggi fyrir skjalfestur að lagaheimild þýði hér sérstök lög, ekki ein setning í fjárlagafrv. Ég hygg að þetta sé skilningur fræðimanna og þess vegna held ég að sú aðgerð að selja fasteignir, selja jarðir úr eigu ríkisins með því að lauma því inn í fjárlagafrv. með þeim hætti sem nú er gert gangi á svig við stjórnarskrána. Ég óska eftir að fá að heyra hvað t.d. hæstv. fjmrh. hefur um þetta að segja. (JBH: Veit hann eitthvað um það?) Ég veit það ekki, en ég hefði áhuga á því að heyra hans skoðun á þessu máli. A.m.k. væri fróðlegt að fá að heyra t.d. hvað ríkislögmaður segir um þetta mál vegna þess að hér er mjög óvenjulega að farið.

Frv. um sölu annarrar þessarar jarðar var lagt fram á þingi í fyrra og mætti þá mjög verulegri andstöðu og hlaut raunar ekki afgreiðslu. Nú spyr ég þá sem fluttu þetta frv. í fyrra hvers vegna þeir ekki fóru þá leið að flytja það að nýju. Flm. voru, ef ég man rétt, hv. þm. Jón Kristjánsson og Egill Jónsson. Hvers vegna er þessi leið farin? Þegar lögð eru fram lagafrv. um sölu jarða er það föst regla að það er leitað umsagnar viðkomandi hreppsnefndar um hver sé skoðun hennar á þessari jarðarsölu. Hér verður það ekki gert. Þannig er að málum staðið. Hver er afstaða hreppsnefndar Breiðdalshrepps til þessarar jarðarsölu? Ég vil gjarnan fá að vita það og ég hygg að það vilji fleiri þm. fá að vita það og það muni kannske ráða einhverju um þeirra afstöðu til málsins. Það liggur ekkert fyrir. Ég mótmæli þeim vinnubrögðum sem eru viðhöfð hér þegar þessari grein er laumað inn í till. meiri hl. fjvn. á síðustu stundu. Og ég spyr: Hvað býr hér að baki?

Það hefur vissulega verið ánægjulegt að heyra að það eru ýmsir fleiri þm. úr stjórnarliðinu líka sem taka undir að þetta beri að afgreiða með sérstökum lögum. Það er mín skoðun að ef menn vilja flytja frv., ef menn vilja selja þessar jarðir eigi um það að flytja sérstök lagafrv. þegar Alþingi kemur saman að loknu jólaleyfi. Þá reynir á þingviljann í málinu. Þá er hægt að leita umsagna viðkomandi hreppsnefnda eins og eðlilegt hlýtur að teljast. Og þá er hægt að láta þetta mál fá þinglega afgreiðslu. Fyrir mitt leyti get ég sagt það hér og nú: Ég mun ekki hafa uppi nokkra tilburði með einum eða neinum hætti til að tefja slík mál. Það er eðlilegt að þingviljinn fái að koma fram, málið fái umfjöllun í nefnd en þetta sé ekki afgreitt með þeim óviðurkvæmilega hætti sem nú á að gera. Hér búa einhver einkennileg sjónarmið að baki sem ekki hafa komið fram. Andstaða mín við þetta mál byggist eingöngu á því að hér er óþinglega að málinu staðið. Það er gengið þvert á þingvenjur. Það er ekkert vitað um afstöðu heimamanna til þessa máls. Þetta eru ósvífin vinnubrögð af hálfu meiri hl. fjvn. og þeim vil ég ekki una. Þetta mál á að fá þinglega meðferð þannig að ráðrúm gefist til að fjalla um það í nefnd, kanna afstöðu heimamanna. Hér er í rauninni verið að fara á bak við þm. því greinilega var ætlunin að láta þetta renna hér ljúflega í gegn án þess helst að nokkur maður eftir tæki.

Ég gerði að umtalsefni í kvöld aðra brtt. sem þrír hv. þm. Sjálfstfl. flytja. Ég vek athygli á því hversu óvenjulegt er að þrír þm. úr flokki hæstv. fjmrh. og flokki formanns fjvn. taki sig til á síðustu stundu og flytji brtt. við fjárlagafrv. síns ráðherra, sinnar ríkisstjórnar og síns formanns. Ég sagði að þetta væri óvenjulegt og ég hygg að þetta sé einsdæmi. Ég óskaði eftir því að í umræðunum kæmu fram skýringar á þessum tillöguflutningi og þær hafa komið. Munurinn á þessum till. er að fjvn. leggur til að þetta verði selt samkvæmt mati. Vissulega vaknar þá grunur um að menn séu þegar með einhverjar ráðstafanir í hyggju um það hver eigi að kaupa og á hvaða verði. Það vakna grunsemdir um það. Ég er ekki að segja að svo sé, langt í frá. En ég mun greiða till. á þskj. 482 atkvæði vegna þess að þó um það megi deila að selja þetta skip má líka deila um nauðsyn þess að ríkið reki svona skip þegar mörg slík eru þegar til í landinu sem geta annast þessi verkefni. En ég er andvígur því orðalagi, sem er á till. meiri hl. fjvn., að selja þetta samkvæmt mati. Auðvitað á að selja eigur ríkisins í svona tilvikum þeim sem býður best verð. Það er ósköp einfalt mál. (TG: Þeir verða að geta borgað.) Ég geri ráð fyrir því að þeir sem gera sig líklega til að kaupa þetta skip muni þá vera borgunarmenn fyrir því sem upp er sett. (TG: Ég ætla ekki að trufla.) Þetta var engin truflun, hv. þm. Þetta var ágætis ábending. Þess vegna mun ég greiða atkvæði með till. þeirra hv. þm. Ólafs U. Einarssonar, Halldórs Blöndals og Valdimars Indriðasonar.

En ég vek enn athygli á því að hér er um einsdæmi að ræða, að þm. úr flokki fjmrh., einsdæmi að ég hygg, aldrei skyldi maður fullyrða of mikið, flytji brtt. af þessu tagi við lokaumfjöllun fjárlaganna.

Ég mælist til þess við hæstv. fjmrh. að hann, til að greiða fyrir afgreiðslu mála, beiti sér fyrir því að ákvæðið um sölu ríkisjarðanna verði tekið út úr heimildagreininni og þess í stað flutt frv. um málið að loknu þinghléi. Það er enginn að andmæla því að þetta mál komi hér fram og fái þinglega meðferð heldur er hér verið að mótmæla þeim gerræðislegu vinnubrögðum sem viðhöfð eru og sem óneitanlega gefa til kynna að hér kunni e.t.v. að vera einhverjir annarlegir hagsmunir eða annarleg sjónarmið sem ráða vegna þess að annars hefði verið borið fram frv. með eðlilegum hætti.

Ég mun ekki á þessu stigi, herra forseti, hafa um þetta fleiri orð, en ég vil eindregið hvetja hv. þm., ef því verður haldið til streitu að láta þessi jarðakaupaákvæði í heimildargreininni koma til atkvæða, til að greiða atkvæði gegn þeim vegna þess að ég tel að hér sé um gerræðisleg vinnubrögð að ræða, hér sé um óþingleg, óvenjuleg og óeðlileg vinnubrögð að ræða.