20.12.1986
Efri deild: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2168 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)
158. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti 1. minni hl. fjh.- og viðskn. sem er að finna á þskj. 433 og eins og þar kemur fram þá legg ég til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef flutt á þskj. 435.
Áður en ég geri grein fyrir þessum brtt. vil ég segja örfá orð um þetta skattalagafrumvarp. Í því felst nokkur stefnubreyting frá því sem verið hefur að því leytinu til að í þessu frv. er betur gert við þá sem eru fyrir ofan meðallag í tekjum heldur en verið hefur undanfarin ár, þar sem skattprósentan í efsta þrepi er í raun lækkuð, og er það liður í skattalækkunaráformum hæstv. ríkisstjórnar. Á móti kemur að ekkert er í þessu frv. gert fyrir þá tekjulægstu, þá sem enga skatta greiða vegna þess að þeir hafa svo lágar tekjur. Að mínu viti hefði átt að mæta þessum hóp með því t.d. að greiða út ónýttan persónuafslátt eða þá að hækka barnabætur í stórum stíl til að koma á móti því sem gert er fyrir þá tekjuhæstu í þessu frv.
Í þessu frv. er verið að fletja skattstigann út, Þrepin eru færð nær hvert öðru og þetta er alls ekki slæmt ef um leið er tekið á öllum þeim frádráttarliðum sem er að finna í þeim frumskógi sem skattalögin okkar eru. Það er hins vegar ekki gert og því missir þessi aðgerð í rauninni marks.
Nú hefur hæstv. fjmrh. og ríkisstjórn Íslands ákveðið að lækka skattbyrði um sem næst 300 millj. kr. á næsta ári, á kosningaári, og af þessu tilefni eru þær breytingar sem er að finna í þessu skattalagafrv.
Þessar breytingar hefur nú þurft að endurskoða í meðferð þingsins á þessu máli vegna þess hve viðmiðunarforsendur þeirra hafa breyst. Góðærið eykst sífellt þannig að meðaltekjubreyting sem áætluð var um 15% milli áranna 1986 og 1987 hefur nú hækkað, fyrst í 18,5% og síðan í 20% sem hún er áætluð nú. Því hafa orðið breytingar á þessu frv. á leið þess í gegnum þingið og gerðar á því breytingar til þess að þessar hugmyndir um skattalækkanir stæðust en frv. óbreytt hefði hins vegar orðið til að auka skattbyrði í góðærinu. Þetta vekur spurningar um það hvort hæstv. fjmrh. hefur hugsað sér að lækka skattprósentuna ef tekjubreytingar verða meiri en ráð var fyrir gert í síðustu áætlun. Virðulegi forseti, ætli hæstv. fjmrh. sé viðstaddur? (Forseti: Hann mun vera hér á næstu grösum. Ég skal láta kalla á hann.) Nú sé ég að hæstv. fjmrh. gengur í salinn. Mig langar að beina til hans einni spurningu.
Ég var að ræða það að þetta frv. hefur tekið nokkrum breytingum í meðferð þingsins - og hæstv. ráðh. til upplýsingar þá erum við hér að ræða frv. til laga um breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt - og skattprósentan verið hækkuð í samræmi við nýjar áætlanir um tekjubreytingar milli ára. Spurningin sem mig langar til að beina til hæstv. fjmrh. er sú hvort hann hafi hugsað sér að lækka skattprósentuna ef tekjubreytingar verða meiri en nú er gert ráð fyrir á milli áranna 1986 og 1987 eða hefur hann hugsað sér að innheimta þann aukaskatt sem annars kæmi í hlut ríkissjóðs?
Þeim 300 millj. sem ríkissjóður er að afsala sér með þessu frv. í skattheimtu á síðan að dreifa eftir þeim reglum sem frv. kveður á um á milli manna. Í Nd. lögðu þingkonur Kvennalistans fram brtt. við þetta frv. og þær brtt. hef ég nú endurflutt á þskj. 435. Þær fela í sér aðra dreifingu á þessum 300 millj. kr. en gert er ráð fyrir í frv. hæstv. fjmrh.
Í fyrsta lið till. er um að ræða 2. tölul. b-liðs 30. gr. og þar er gert ráð fyrir að hann falli brott. Sá liður fjallar um undanþágu vegna arðs af hlutabréfum. Brtt. þýðir því einfaldlega að arður af hlutabréfum yrði skattlagður til fulls og væri þar með afnumið það óréttlæti að hluti þjóðarinnar hefur nú möguleika á að njóta verulega mikilla skattfrjálsra tekna. Við höfum gert tilraun til þess að fá það nokkuð nákvæmlega uppgefið hvað þetta mundi hafa mikinn tekjuauka í för með sér fyrir ríkissjóð. Það er nokkrum erfiðleikum bundið að fá þetta nákvæmlega útreiknað en gróflega áættað gætu það verið 15-20 millj. kr. Hérna er í rauninni á ferðinni eitt af þeim fjölmörgu dæmum um þær undanþágur sem sjálfsagt er að afnema þótt að sinni séu ekki gerðar fleiri tillögur í þeim dúr.
Annar liður þessara brtt. felur það í sér að hækkun skattþrepa verði í samræmi við tekjubreytingu á milli ára en ekki umfram það. Enn fremur að skattprósentan í efsta þrepi skattstigans lækki ekki frá því sem nú er.
Í þriðja lið legg ég svo til að barnabætur hækki um 42% í stað 15% eins og hefði orðið ef miðað hefði verið við tekjubreytingu á milli ára. Í frv. er lagt til að þær hækki um 20%, þ.e. 5% umfram það sem hefði verið eðlilegt miðað við tekjubreytingu. Ef þessar till. fást samþykktar verða barnabætur sem sagt hækkaðar um 42% og yrðu þá með fyrsta barni 15 500 kr. á ári í stað 12 600 kr. samkvæmt frv. og 23 200 kr. með hverju barni umfram eitt í stað 18 910 samkvæmt frv. Barnabætur með börnum einstæðra foreldra verða þá 30 000 kr. með hverju barni í staðinn fyrir 25 300 kr. og bætur með börnum yngri en 7 ára í lok tekjuársins 15 500 kr. í stað 12 600 kr. eins og frv. gerir ráð fyrir.
Í fjórða lið þessara brtt. er svo gerð till. um breytingu á 6. gr. frv. um sérstakan barnabótaauka og næmi hann óskertur samkvæmt þessari till. 31 000 kr. í stað 25 250 kr. samkvæmt frv.
Ég vil taka það sérstaklega fram að þessar till. breyta ekki heildardæminu. Það er ekki innifalin í þessu breyting á tekjum ríkissjóðs. Lækkun tekjuskattstekna ríkissjóðs verður eftir sem áður 300 millj. kr. Þetta er aðeins spurning um hverjum sú lækkun á að nýtast og á hvern hátt. Það er þarna í raun og veru aðeins um tilfærslur að ræða.
Þó ég hafi þannig einungis gert till. til breytinga innan þess ramma sem frv. fjmrh. setur hef ég þá skoðun að gera þurfi grundvallarbreytingar á skattkerfinu í heild og tekjuöflunarleiðum ríkissjóðs. Þar eru meðtalin endurskoðun og breytingar á tekjuskatti. Jafnframt tel ég afar brýnt að komið verði sem fyrst á staðgreiðslukerfi skatta enda hafa þingkonur Kvennalistans lagt fram þáltill. um það efni í tvígang á þessu kjörtímabili. En meðan róttækar breytingar hafa enn ekki verið gerðar á skattkerfinu þá tel ég nauðsynlegt að nota slíkar tilfærslur eins og brtt. mínar kveða á um, slíkar tilfærslur á fjármagni sem þar eru á ferðinni til að styðja þá sem mest þurfa á því að halda, þá sem eru með börn á framfæri og þá sem lægst laun hafa.
Það má segja sem svo að ekki muni mikið um tilfærslur á þeirri skiptimynt sem hafa má frá þeim einstaklingum sem tekjuskatt greiða. Tekjuskattar fyrirtækja á Íslandi eru mjög lágir og njóta fyrirtæki ýmissa frádráttarliða til skattalækkunar sem einstaklingar geta ekki nýtt sér. Þaðan er því hægt að færa talsvert fé til að létta skattbyrði einstaklinganna og ég styð fram komnar hugmyndir um þau efni hér á hæstv. Alþingi.
Þær breytingar sem ég hef hér nefnt hljóta að vera hluti af heildarendurskoðun tekjuskattskerfisins og hæstv. fjmrh. hefur margsagt að verið sé að vinna að slíkri endurskoðun. - Virðulegi forseti, ætli hæstv. fjmrh. sé hér enn nærri? (Forseti: Það er sjálfsagt að athuga það hvort hæstv. fjmrh. er hér á næstu grösum. )
Ég hef hér verið að ræða um þær breytingar sem gera þarf á tekjuskattskerfi ríkisins og þá heildarendurskoðun á þessu kerfi sem fjmrh. hefur ítrekað að verið sé að vinna að. Ég vil því að lokum inna hæstv. fjmrh. eftir því hvað þeirri vinnu líður og út frá hvaða hugmyndum sé unnið. Heyrst hefur að hæstv. fjmrh. sé hrifinn af þeim aðferðum sem Bandaríkjamenn hafa tekið upp við álagningu tekjuskatts, þ.e. lækkun skattprósentu og afnám frádráttarliða og því vil ég spyrja hæstv. ráðh. að því hvort og þá hvaða frádráttarliði hann geti hugsað sér að afnema. Getur ráðherrann t.d. hugsað sér að afnema frádrátt vegna fjárfestingar í atvinnurekstri sem settur var á í tíð þessarar ríkisstjórnar? Áherslur þessa frv. og tengdra frv. benda ekki til þess og þess vegna bíð ég eftir að heyra hvaða hugmyndir hæstv. fjmrh. hefur í þessum efnum.