20.12.1986
Efri deild: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2171 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

158. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Ragnar Arnalds):

Virðulegi forseti. Ég held að það þjóni ekki neinum tilgangi að vera að halda hér ítarlegar ræður að þessu sinni þar sem svo langt er liðið á nótt. Ég hef líka oft áður gert grein fyrir sjónarmiðum okkar Alþýðubandalagsmanna í skattamálum og meginmarkmiðum og vísa m.a. til þess sem ég sagði við 1. umr. málsins.

Á þskj. 440 flyt ég allnokkrar brtt. við tekjuskattslögin og frv. sem ríkisstjórnin flytur. Fyrstu tvær till. eru miðaðar við það að fella niður ýmsa frádráttarliði í gildandi skattalögum sem helst verða til þess að gera greiðslur rekstraraðila í ríkissjóð smávaxnar. Þó er d-liðurinn í 2. gr. þess eðlis að hann gæti komið í staðinn fyrir þann frádrátt sem nú er í gildi vegna fjárfestinga því að samkvæmt honum mundi fyrirtækjum vera heimilt að draga frá hagnaði annað hvert ár allt að 5% vegna rannsóknar-, þróunar- og markaðsstarfs á vegum fyrirtækja. Þetta er að sjálfsögðu miklu smávaxnari frádráttarheimild en sú sem fyrir er en gæti kannske komið að raunverulegu gagni í einstaka tilviki þegar þannig stendur á. Í 3. tölul. er um að ræða lækkun á afskriftarheimildum. Í 4. tölul. er um að ræða að persónuleg eyðsla forráðamanna fyrirtækja verði ekki talin til rekstrarkostnaðar og risna ekki heldur.

Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv. úr því að svo stendur á eins og raun ber vitni og vísa til nál. á þskj. 440.