22.10.1986
Neðri deild: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í B-deild Alþingistíðinda. (203)

Framlagning stjórnarfrumvarpa

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti vill taka fram í tilefni af þessu að hann mun fyrir sitt leyti koma þessari ábendingu á framfæri við ríkisstjórnina og fá þessi mál rædd á fundum þingforsetanna.