20.12.1986
Neðri deild: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (2036)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Á þskj. 472 er nál. frá 1. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1987. Ég ætla nú að fara yfir nál.

Lánsfjárlög voru afgreidd samhliða fjárlögum á síðasta þingi. Í lögunum var gert ráð fyrir erlendum og innlendum lántökum sem hér segir:

Erlend lántaka 3240 millj. kr. Nú er gert ráð fyrir því að á þessu ári verði erlendar lántökur ekki 3240 millj. kr. heldur 5590 millj. kr.

Það eru því allar líkur til þess samkvæmt nýjustu tölum embættismanna fjmrh., sem ég fékk í gær, að erlendar lántökur fari á árinu 72,5% fram úr lánsfjárlögum þessa árs.

Nú er enn gert ráð fyrir því skv. 1. gr. þessa frv. að fjármálaráðherra fái heimild til þess að taka erlend lán allt að 1700 millj. kr. Með því móti aukast erlendar lántökur á komandi ári, alls um nærri 2000 millj. kr. umfram afborganir. Auðvelt ætti að vera að draga úr erlendum lántökum og er hér bent á leiðir til þess að fella algjörlega niður erlendar lántökur ríkisins á næsta ári:

Erlend lán til flugstöðvarbyggingarinnar nema alls 500 millj. kr., erlend lán til Þróunarfélagsins nema 100 millj. kr., til Landsvirkjunar 400 millj. kr., auk þess sem taka á erlent lán til rekstrar ríkissjóðs. Þetta eru stærstu liðirnir. Hluta af þessari lánsfjárþörf má leysa með því að knýja bankana til aukinna lána til verkefna ríkisins. Hluta má leysa með því að spara í útgjöldum ríkisins, til yfirstjórnar þess. Hluta má spara með því að hækka beina skatta á fyrirtæki og stóreignamenn. Hefur Alþb. hér á Alþingi undanfarna daga í umræðum um skattamál og ríkisfjármál sýnt fram á leiðir til þess að auka þannig svigrúm ríkisins um verulegar fjárhæðir sem hefðu dugað til þess að draga mjög úr erlendum lántökum.

Ljóst er hins vegar, herra forseti, að ríkisstjórnarliðið hafnar öllum brtt. og því er tilgangslaust að okkar mati að flytja brtt. við frv. þetta umfram það sem þegar hefur verið gert. Mun ég greiða atkvæði gegn skerðingarákvæðum á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, Atvinnuleysistryggingasjóði og Framkvæmdasjóði fatlaðra en ekki taka þátt í atkvæðagreiðslu um frv. þetta að öðru leyti. Margt bendir líka til að frv. í heild sé markleysa. Samanber það sem áður kemur fram um hækkun erlendra lána á þessu ári um 72,5% frá ráðgerðum lántökum samkvæmt lánsfjárlögum þessa árs.

Samkvæmt lánsfjárlagafrv. er gert ráð fyrir því að skerða Atvinnuleysistryggingasjóð um 42 millj. kr. Það hefur aldrei áður verið gert og hefur undirritaður mótmælt þessari skerðingu harðlega, m.a. á fundum nefndarinnar svo og hér úr þessum ræðustól. Á fund fjh.- og viðskn. í gærmorgun kom Pétur Sigurðsson f.h. Atvinnuleysistryggingasjóðs og Ásmundur Stefánsson f.h. Alþýðusambands Íslands og gerðu þeir þetta mál að sérstöku umtalsefni. Mótmæltu þeir báðir skerðingu Atvinnuleysistryggingasjóðs.

Ég hef átt viðræður við forustumenn stjórnarliðsins um þetta atriði í dag. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef enn þá virðist mér að þeir ætli að halda fast við það að Atvinnuleysistryggingasjóður verði skertur á árinu 1987. Ég tel að hér sé um að ræða fáheyrða ósvífni, m.a. gagnvart verkalýðshreyfingunni í landinu og þeim aðilum sem hafa forræði Atvinnuleysistryggingasjóðs með höndum.

Þetta hefur áður verið reynt. Embættismenn hafa áður gert tilraunir til þess að koma þessu ákvæði inn á hina almennu skerðingarkafla lánsfjárlaganna. Núverandi ríkisstjórn er fyrsta ríkisstjórnin og þetta þing fyrsta þingið sem mundi samþykkja skerðingu á framlögum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Það væri í fyrsta sinn frá því að sá sjóður var stofnaður árið 1955 og ég trúi því ekki enn að menn eins og hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson eða aðrir sem tengst hafa starfsemi verkalýðshreyfingarinnar, þó úr stjórnarliðinu séu, geti staðið að því að skerða þennan sjóð. Þar er gengið svo nærri ýmsum grundvallarsjónarmiðum verkalýðssamtakanna að ég trúi því ekki, þrátt fyrir margt sem á undan er gengið, að þessir menn treysti sér til að skerða sjóðinn með þeim hætti sem hér er gerð tillaga um.

Hagsýslan heldur því fram að þessi skerðingartala sé óhjákvæmileg vegna þess að það sé ágreiningur um það hvernig á að reikna út framlögin í Atvinnuleysistryggingasjóð. Það er rangt. Það er enginn ágreiningur um það. Það er skýrt í lögum að það á að taka fé til Atvinnuleysistryggingasjóðs miðað við tiltekinn taxta og miðað við vinnuviknafjölda. Greiddur er 1/4 af sérstöku gjaldi í sjóðinn. Tvöföld sú upphæð kemur síðan úr ríkissjóði og jafnhá upphæð kemur síðan frá sveitarfélögunum.

Ég held að það væri æskilegt ef stjórnarliðið á þessari nóttu treysti sér til að brjóta nú odd af oflæti sínu einu sinni, hlusta einu sinni á það sem verið er að segja og strika út tillöguna um skerðingu Atvinnuleysistryggingasjóðs. Ég skora á stjórnarþingmenn að halda þannig á málinu.

Í nál. mínu er farið yfir ýmsa fleiri sjóði eins og Ferðamálasjóð og þar er einnig rætt um lán vegna aðbúnaðar á vinnustöðum sem veitt hafa verið á undanförnum árum samkvæmt lögum um aðbúnað og hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Nú á í fyrsta sinn frá því að þau lög voru sett að fella niður allar lánaheimildir í þessu skyni, þannig að það er vegið að verkalýðshreyfingunni sérstaklega í þessu frv. bæði með ákvæðinu um Atvinnuleysistryggingasjóð og þessu ákvæði um aðbúnað á vinnustöðum.

Í frv. er sérstök aðför að sveitarfélögunum sem rædd hefur verið hér í þessum sal í dag í umræðum um fjárlög fyrir árið 1987 og mun ég ekki endurtaka það. Í þeim áætlunum er gert ráð fyrir því að skera Jöfnunarsjóð sveitarfélaga niður um 340 millj. kr. Það eru 200 millj. kr., hin gamla skerðing sem verið hefur frá því að þessi stjórn tók við og núv. félmrh. var forgöngumaður um, og það eru 140 millj. í viðbótarskerðingu. Aldrei hefur í rauninni verið saumað eins að sveitarfélögunum og gert er af núverandi ríkisstjórn með þessum hætti. Og það er athyglisvert að á sama tíma og menn eru að setja niður samráðsnefndir, viðræður við sveitarfélögin o.s.frv., skuli menn þrátt fyrir þetta ganga svona að sveitarfélögunum og þrátt fyrir allt talið um sjálfstæði sveitarfélaganna kemur í ljós í þessu máli eins og fleirum að það er markleysa.

Við umræður í fjh.- og viðskn. Nd. kom fram að aðilar vinnumarkaðarins eru sammála um að allar verðlagsforsendur kjarasamninganna eru í hættu vegna stefnu ríkisstjórnarinnar í peningamálum. Þar kom einnig fram að starfsmenn Þjóðhagsstofnunar telja að hækka ætti skatta, beina skatta, við þær aðstæður sem fram undan eru en undirritaður hefur flutt fjölda tillagna um hækkun skatta á fyrirtæki á Alþingi á síðustu dögum.

Ég vil sérstaklega gagnrýna í þessu frv. loðnar og óskýrar heimildir til fjmrh., m.a. varðandi fjárhagsvanda hitaveitnanna. Á fundum nefndarinnar hefur komið fram að búist er við verulegri vaxtahækkun á næsta ári í kjölfar þess mikla halla sem ríkissjóður er með. Fulltrúar Seðlabankans töldu að áætlanir Þjóðhagsstofnunar um verðlagsþróun á næsta ári væru of lágar. Aðalhagfræðingur Seðlabankans nefndi þar tölur um verðbólgu á næsta ári sem eru langt fyrir ofan tölur Þjóðhagsstofnunar. Verulegar áhyggjur komu fram hjá fulltrúum Seðlabankans vegna hinna nýju fjármögnunarfyrirtækja.

Í nefndinni kom fram að byggingarsjóðina vantar mörg hundruð milljóna króna á næsta ári til þess að ná saman endum.

Að lokum skal hér bent á leiðir til þess að koma í veg fyrir að erlendar lántökur aukist á næsta ári:

1. Sjálfsagt er að auka hlut bankakerfisins í verðbréfakaupum til að fjármagna lánsfjáráætlun. Þar má ná aukalega 300-400 millj. kr.

2. Sjálfsagt er, og efnahagslega skynsamlegt að mati Þjóðhagsstofnunar, að auka skatta á fyrirtæki. Alþb. hefur flutt till. um þetta efni sem geta skilað a.m.k. 2000 millj. kr.

3. Við núverandi aðstæður er eðlilegt að fela fjmrh. að stuðla að sparnaði í yfirstjórn ríkisins og ríkisstofnana. Er ekki ofverkið hans að ná þar saman 300 millj. kr. sem er langt innan við 1% af öllum ríkisútgjöldum.

4. Sjálfsagt er að draga úr erlendum lántökuheimildum einkaaðila við ríkjandi aðstæður en þær nema alls á næsta ári samkvæmt áætlunum 4,1 milljarði kr.

Með þessu móti er auðvelt að koma erlendum lántökum niður í 6300 millj. kr. þannig að afborganir og lán standist á; og niðurstaða: Erlend lán aukist ekki um eina krónu á næsta ári.

Þetta liggur fyrir, herra forseti, að er unnt. Viljann, hinn pólitíska vilja til að veita alvarlega forustu í ríkisfjármálum vantar því miður á þessu þingi.