20.12.1986
Neðri deild: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2203 í B-deild Alþingistíðinda. (2044)
24. mál, lánsfjárlög 1987
Tryggvi Gunnarsson:
Herra forseti. Það liggur við að mér ofbjóði svona samkvæmi. Ég vænti þess að alþm. viti hvað þeir eru að gera og ég vænti þess líka að hæstv. forseti kynni greinarnar betur en hann gerir. Ég er ekki að vanda um við hæstv. forseta en það má vera að sumir séu svo heimskir í salnum (Gripið fram í: Nei, nei.) Nei, það eru engir. Ég bið afsökunar.