20.12.1986
Neðri deild: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (2053)

229. mál, frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. v. Það ber nauðsyn til að vekja á því athygli að samþykkt þessa frv. dregur úr tekjum ríkissjóðs. En það kom fram hjá hv. 2. þm. Norðurl. v. að hann hefur af því nokkrar áhyggjur að þær séu ekki nægilega miklar. Ég sé litla nauðsyn bera til að samþykkja þetta frv. og tel með öllu áhættulaust að fella það.