20.12.1986
Neðri deild: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (2054)

229. mál, frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri

Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það frv. sem hér er á dagskrá gerir ráð fyrir því að hækka frádráttarheimildir fyrirtækja í fjárfestingarsjóð um 31% frá árinu 1986 til ársins 1987.

Á þessu ári er frádráttur í fjárfestingarsjóð 700 millj. kr. og 30% hækkun á þeirri tölu eru 210 millj. kr. og skattur í ríkissjóð af þeirri tölu eru 105 millj. kr. Hér er till. um að lækka skatttekjur ríkisins á árinu 1987 um 105 millj. kr.

Tilefnið er vafalaust hin góða afkoma ríkissjóðs á árinu 1987 sem hv. þm. Pálmi Jónsson og Guðmundur Bjarnason mega vera ákaflega stoltir af. Tilefnið er örugglega hin rausnarlegu framlög til verklegra framkvæmda í Norðurl. e., Norðurl. v. og á Suðurlandi. Tilefnið er örugglega það að félagslegar framkvæmdir eru geysimiklar á næsta ári og engin þörf á því að bæta við einni einustu krónu og sérstaklega er brýnt að mati stjórnarsinna að halda við svo sem kostur er öllum mögulegum skattsvikasmugum í kerfinu þannig að það sé nú alveg öruggt mál að það sé ekki stoppað upp í eina einustu smugu. Það er ástæða til þess að óska stjórnarliðinu til hamingju með þetta frv. og þessa glæsilegu frammistöðu.

Svo kemur hv. þm. Páll Pétursson hér upp í nótt og segir: Staðan er þannig að ég hefði nú viljað sjá ríkissjóð með minni halla. En það er eins og venja er með Framsfl. Framsfl. segir þetta stundum en í næstu ræðu allt annað og reyndar hefur enginn náð annarri eins fullkomnun í þessu og formaður Framsfl., sem er bæði með og á móti máli í sömu setningunni aftur og aftur. Það er nokkuð til í því, hv. þm. , að ég var uppalinn þar um skeið og hv. þm. Páll Pétursson hefur á því vissa skýringu sem ég get ekki fallist á.

Hér er sem sagt um að ræða enn einn þáttinn í stefnu ríkisstjórnarinnar að hygla fyrirtækjunum, fjölga skattsvikasmugum og það er á kostnað almennings, kostnað þeirra sem eiga að njóta hinnar félagslegu þjónustu. En einkum og sér í lagi hlýtur þetta að vera auðvelt mál fyrir leiðtoga Framsfl. á Vestfjörðum sem núna hefur tekið við því sæti af núv. hæstv. forsrh. og er ekki vafi á því að upphefð hans er slík að það má gera ráð fyrir því að hann leysi hæstv. forsrh. Steingrím Hermannsson af þegar næst verður kjörinn forsrh. fyrir Framsfl. í þeim flokki.

Herra forseti. Hér er á ferðinni hluti af þeim alvarlegu staðreyndum sem við höfum verið að afgreiða síðustu sólarhringa, stórkostlegur halli á ríkissjóði, stórkostlegar erlendar lántökur sem stofna verðlagsmarkmiðum kjarasamninga í hættu. Þetta er eins og kórónan á því sköpunarverki sem liggur fyrir frá hæstv. ríkisstjórn síðustu dagana.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.