20.12.1986
Neðri deild: 33. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2222 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)
Þingfrestun
Forseti (Ingvar Gíslason):
Það verður ekki fleira gert á þessum fundi. Þetta er auk þess síðasti fundur sem haldinn verður hér í hv. þingdeild nú fyrir jólahlé. Af því tilefni vil ég leyfa mér að þakka hv. þingdeildarmönnum gott samstarf það sem af er þingtímanum. Ég þakka varaforsetum og skrifurum mikilsverða aðstoð við mig hér við fundarstjórn. Skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þingsins þakka ég vel unnin störf. Hv. þingdeildarmönnum og starfsfólki Alþingis óska ég gleðilegra jóla, farsæls nýárs og ég vona að við hittumst öll heil þegar Alþingi tekur að nýju til starfa nú að loknu jólahléi í janúarmánuði.