14.10.1986
Sameinað þing: 3. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

20. mál, samningur milli Íslands og Bandaríkjanna

Utanríkisráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér með nokkrum orðum að fylgja úr hlaði till. til þál. á þskj. 20 um fullgildingu samnings milli Íslands og Bandaríkjanna sem felur í sér lausn ágreinings er staðið hefur frá því snemma árs 1984 varðandi flutninga á sjó fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli.

Samningur um þetta efni, sem ber yfirskriftina „Samningur milli Íslands og Bandaríkjanna til að auðvelda framkvæmd varnarsamnings ríkjanna“, var sem kunnugt er undirritaður í New York hinn 24. sept. s.l. af George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna og mér fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands. Við sama tækifæri var einnig undirritað skjal um framkvæmd 1. gr. samningsins. Báðir þessir textar eru prentaðir sem fskj. með þáltill. Utanrmn. Alþingis var greint frá málinu og samningurinn ásamt samkomulaginu lagður fram í nefndinni á fundi hinn 23. sept. s.l. eftir að ríkisstj. hafði fjallað um málið. Þegar undirritun hafði farið fram voru þeir einnig birtir í heild í fjölmiðlum. Tækifæri hefur því gefist til að kynna sér rækilega efni þeirra. Ég tel engu að síður rétt að gera grein fyrir meginatriðum málsins og þeirri niðurstöðu sem náðist.

Hv. alþm. mun kunnugt að frá árinu 1904 hafa verið í gildi í Bandaríkjunum lög sem áskilja að sjóflutningar vegna bandarísks herliðs erlendis skuli fara fram með bandarískum skipum séu þau tiltæk. Fyrstu árin eftir gerð varnarsamningsins milli Íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951 notfærðu bandarísk skipafélög sér þennan forgangsrétt til flutninga fyrir varnarliðið hér á landi, þó aldrei svo að ekki væru einhverjir flutningar með íslenskum skipum. En frá árinu 1967 og fram til ársins 1984 voru aðeins íslensk skipafélög í þessum flutningum. Í maí 1984 hóf bandarískt skipafélag, Rainbow Navigation, flutninga á þessari leið. Í skjóli laganna frá 1904 hefur skipafélagið notið forgangsréttar til flutninga fyrir varnarliðið og flutt langmest af þeim varningi sem til hefur fallið.

Með hliðsjón af mikilvægi traustra siglinga íslenskra aðila fyrir þjóðina og ríkjandi viðhorfum hér til þróunar frjálsra viðskipta töldu íslensk stjórnvöld nauðsynlegt að fá þessu fyrirkomulagi breytt þannig að flutningur fyrir varnarliðið færi fram á jafnréttisgrundvelli. Þessum sjónarmiðum var lýst á fundi íslenskra og bandarískra ráðamanna, þar á meðal á fundum sem fyrirrennari minn, hæstv. fyrrv. utanrrh. Geir Hallgrímsson, og síðar ég áttum með utanríkisráðherra Bandaríkjanna, George Shultz. Leituðust bandarísk stjórnvöld við að finna lausn á málinu, en vegna andstöðu á Bandaríkjaþingi og meðal öflugra hagsmunaaðila, sem stóðu og standa fast gegn tilraunum til að breyta lögunum frá 1904, dróst málið á langinn.

Gerð var ákveðin tilraun til lausnar í ágúst 1985 er bandarísk stjórnvöld reyndu að beita undanþáguákvæði í lögunum frá 1904 og efna til útboðs vegna flutninganna milli Íslands og Bandaríkjanna. Bandaríska skipafélagið höfðaði mál fyrir bandarískum dómstólum gegn bandarískum stjórnvöldum vegna þessa. Var ákvörðun stjórnvalda ógilt með undirréttardómum 15. og 23. okt. 1985 sem áfrýjunardómstóll staðfesti hinn 27. jan. 1986 eða á þessu ári.

Ýmsar aðrar leiðir til úrlausnar voru kannaðar eða reyndar, m.a. breytingar á stjórnvaldsreglum er snerta útboð sjóhersins, en engin þessara tilrauna gaf fyrirheit um skjótan árangur.

Á þessu stigi málsins var svo komið að málið þoldi ekki frekari bið. Ég ákvað því að utanrrn. tæki í sínar hendur frumkvæði á því að finna viðunandi lausn. S.I. sumar var gerð ítarleg skoðun á málinu og hugsanlegum leiðum til lausnar. Var m.a. sendiráðinu í Washington falið að leita ráðgjafar sérfróðra manna á sviði bandarískra stjórnlaga og stjórnarfars. Niðurstaða þessara athugana var sú að helst væri mögulegt að koma lausn ágreiningsins til leiðar með gerð sérstaks samnings milli ríkjanna sem að fenginni staðfestingu öldungadeildar Bandaríkjaþings viki til hliðar lögunum frá 1904 eingöngu að því er varðaði umrædda flutninga milli Íslands og Bandaríkjanna.

Þegar hér var komið sögu var af Íslands hálfu óskað fundar með fulltrúum bandarískra stjórnvalda til þess að kanna hvort hugmyndin um sérstakan samning gæti átt hljómgrunn hjá hlutaðeigandi bandarískum aðilum. Eftir þennan fund, sem haldinn var í London hinn 4. sept. s.l., komst málið á lokaskrið. Fóru samningaviðræður síðan fram í Washington um miðjan september og lauk með gerð samnings þess sem hér liggur fyrir og till. til þál. um samþykkt á.

Það eru meginatriði samningsins að samkvæmt honum skulu sjóflutningar fyrir varnarliðið framvegis vera í höndum íslenskra og bandarískra skipafélaga á samkeppnisgrundvelli. Með ákvæðum hans er gerð undanþága að því er Íslandssiglingar varðar vegna forréttinda sem gilt hafa, sbr. lögin frá 1904. Gengið er út frá því að ríkin tvö geri með sér samkomulag um heildarskiptingu farmsins milli íslenskra og bandarískra skipafélaga. Samkomulag þetta er ekki hluti samningsins og er þess vegna unnt að breyta því, ef aðilar samningsins verða ásáttir um slíkt, án þess að til þurfi atbeina Bandaríkjaþings. Þetta samkomulag, síðara skjalið sem fylgir þáltill., byggir á samkeppni þar sem lægstbjóðandi fær rétt til að flytja 65% farmsins en næstbjóðandi frá hinu landinu afganginn. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að lægstbjóðandi flytji meiri farm en 65% ef bjóðandi frá hinu landinu er ekki til reiðu. Þar sem hætta þykir geta verið á að tilboð næstbjóðanda frá því landinu sem ekki á lægst boð verði hærra en sanngjarnt megi teljast, t.d. vegna takmarkaðrar samkeppni, er í samkomulaginu gert ráð fyrir því að hlutaðeigandi bandarísk stjórnvöld geti lækkað farmgjald bandarísks skipafélags, ef það væri næstbjóðandi, niður í réttmætt verð miðað við eðlilegan kostnað félagsins og sanngjarnan. Að því er varðar íslensk skipafélög skal slík ákvörðun um farmgjald háð samráðum bandarískra og íslenskra stjórnvalda.

Þá er rétt að geta þess að samkvæmt samningnum verða bandarísk skipafélög að nota skip undir bandarískum fána við flutningana, en íslenskum skipafélögum er heimilt að nota einnig leiguskip.

Samningi þeim, sem ég hef nú gert grein fyrir, er hægt að segja upp með tólf mánaða fyrirvara.

Þær undirtektir, sem framangreindar lyktir flutningadeilunnar hafa fengið, gefa mér tilefni til að ætla að flestum þyki niðurstaðan eðlileg og sanngjörn að því er báða aðila varðar og hvernig svo sem einhverjir kunna að líta á varnarmálin og það sem þeim tengist að öðru leyti.

Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur sem kunnugt er afgreitt samninginn fyrir sitt leyti. Það er íslenskum skipafélögum í hag að samningurinn taki gildi sem fyrst. Ég leyfi mér því að vona, og þá einnig með það í huga að rúmur tími hefur þegar gefist til þess að skoða samninginn, að þáltill. þessi geti hlotið skjóta afgreiðslu.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að till. verði að þessari umræðu lokinni vísað til síðari umræðu og hv. utanrmn.