20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2229 í B-deild Alþingistíðinda. (2122)

1. mál, fjárlög 1987

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Í fyrsta lagi tel ég að þegar séu í byggingu nógu mörg mannvirki í þessu landi sem ólokið er svo að þessum peningum væri betur varið til að ljúka einhverju af þeim. (ÓÞÞ: En ef svo væri nú ekki?).

Í öðru lagi hafa þm. orðið að ganga bónarveg til fjvn. til að biðja um 2 millj., 3 millj. í sambýli fyrir fatlaða. Meðan ekki er unnt að verða við slíkum beiðnum eins og þarf tel ég af og frá að verja fé í þetta nýja mannvirki. Ég segi nei.