20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2230 í B-deild Alþingistíðinda. (2129)

1. mál, fjárlög 1987

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Ég á erfitt með að viðurkenna að áhugi þm. á skepnuhaldi á Íslandi sé meiri en á mannahaldi. Ég fæ ekki séð að það sé of í lagt að leggja andvirði fjósbygginganna á Stóra-Ármóti og tilraunastöðvarinnar á Möðruvöllum í það að reyna að bjarga ungu fólki frá því að ánetjast fíkniefnum og þess vegna segi ég já.