20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)
1. mál, fjárlög 1987
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Við skulum ekki hafa uppi flimtingar í sambandi við afgreiðslu á þessari till. Vaxandi fíkniefnaneysla á Íslandi er ein mesta ef ekki langstærsta óhamingja sem yfir nútímann gengur. Það undrar mig að stjórnarliðar skuli láta binda hendur sínar í þessu máli og það hryggir mig ef þessi till. verður felld. Ég skrifaði upp á hana með glöðu geði og ég styð hana heils hugar. Ég segi já.