20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2235 í B-deild Alþingistíðinda. (2151)

1. mál, fjárlög 1987

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Þessi jörð á Austurlandi ætlar að verða nokkuð fræg í þingsögunni. Í fyrra er stöðvað frv. í þinginu um heimild til ríkisstjórnarinnar um að selja jörðina. Ósk lá fyrir frá aðkomumanni um að kaupa hana. Á meðan málið lá fyrir þinginu var fram komin ósk frá heimamönnum um kaup á jörðinni. Heiti jarðarinnar, Streiti, er talið dregið af sögninni að strita og streitast við og það má til sanns vegar færa að hér streitist meiri hlutinn á Alþingi og áhrifamiklir menn í fjvn. að troða þessu máli fram á óþinglegan hátt. Ég tel þetta óhæfu, alveg sérstaklega eins og að málinu var staðið, að ætla að fara að heimila sölu e.t.v. til aðkomumanna á þessari jörð á sama tíma og heimamenn hafa óskað eftir að nytja hana. Ég segi því nei.