20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2237 í B-deild Alþingistíðinda. (2158)

1. mál, fjárlög 1987

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Það er langt frá því að ég treysti fjmrh. til að nota þessa heimild, en vil þó benda á að við erum að tala um upphæð sem samsvarar þriðjungi fjárlagahallans sem ráðgerður er á næsta ári og segi því já.