20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2238 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)

1. mál, fjárlög 1987

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Þessi tillaga gengur út á það að hæstv. ráðh. sé heimilt að gæta sparnaðar í rekstri ríkisins. Það kann að virka hálfhjákátlegt að segja nei við slíkri tillögu, en þar sem þetta er í mínum huga meira til að sýnast en til þess að láta á reyna dettur mér heldur ekki í hug að fara að greiða atkvæði með tillögunni og segi því nei.