20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2239 í B-deild Alþingistíðinda. (2168)
1. mál, fjárlög 1987
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Ég hef allt síðan sumarið 1978 haldið því fram að ógerlegt mundi reynast að ráða niðurlögum verðbólgunnar öðruvísi en að ríkið yrði í því þátttakandi, þ.e. að ríkissjóður yrði rekinn með einhverjum halla um eitt eða tvö eða jafnvel þrjú ár. Það hefur verið gert nú með opnum augum. Það var gengið til móts við verkalýðinn á s.l. vetri. Það komust á heiðarlegir og sanngjarnir kjarasamningar. Þetta er gert að nýju nú með halla. En það eru innlendar lántökur og við skulum reyna að fara að gera okkur grein fyrir að við greiðum engum öðrum það fé en þjóðinni sjálfri. Þess vegna eru þetta bestu fjárlög sem um langt skeið hafa verið afgreidd hér, langbestu. Þau hafa ráðið niðurlögum verðbólgunnar og nú er bjart fram undan, bæði fyrir launþega, atvinnulíf og þjóðina alla. Ég segi því já með mikilli ánægju.