22.10.1986
Neðri deild: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í B-deild Alþingistíðinda. (218)
53. mál, endurmat á störfum láglaunahópa
Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svör hans. Það er vitaskuld rétt hjá hæstv. ráðherra að það veltur á miklu hver afstaða hæstv. fjmrh. er til þessa máls, yfirmanns peningamálanna. Engu að síður held ég, og mér skildist það reyndar á máli hæstv. menntmrh., að hann væri sammála mér um það að hér væri svo alvarlegt mál á ferðinni að nauðsynlegt væri að þetta yrði tekið til umræðu, að vísu nefndi hann eingöngu umræðu við fjmrh. Ég tel þó að málið sé svo alvarlegt og sé komið á það alvarlegt stig að brýnt sé að það verði tekið til sérstakrar umfjöllunar í ríkisstjórninni því að þetta snýr ekki bara að einstökum ráðherrum eða ráðuneytunum heldur snýr þetta að ríkisstjórninni í heild, sem ber ábyrgð á stjórn landsmála, ekki síst þegar við blasir að atvinnulífið getur fyrr en okkur órar farið úr skorðum. Og ég held að við ættum að reyna að fyrirbyggja það eins og kostur er áður en þessi tíðindi, sem nú hafa komið fram, verða enn alvarlegri en þau eru nú.
Hæstv. menntmrh. er þekktur að því að taka rösklega til hendinni ef honum finnst ástæða til. Ég met það svo af orðum hans hér í þessum ræðustól áðan að honum finnist full ástæða til þess að taka þetta mál föstum tökum. Því skora ég á hæstv. menntmrh. að gera nú gangskör að því að ræða þetta mál ekki bara við hæstv. fjmrh., heldur beiti hann sér hið allra fyrsta fyrir því að þetta mál verði tekið upp og rætt í ríkisstjórninni og að ríkisstjórnin leiti þá leiða í samvinnu sem örugglega þarf til við aðila vinnumarkaðarins um að finna lausn á þessum mikla vanda sem blasir við.