13.01.1987
Neðri deild: 34. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2267 í B-deild Alþingistíðinda. (2184)
275. mál, stöðvun verkfalls á fiskiskipum og á farskipum
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð hér við 1. umr. þessa máls til þess að lýsa afstöðu Kvennalistans. Við erum mótfallnar þessu frv. til laga um stöðvun verkfalls á fiskiskipum og verkfalls félagsmanna í Sjómannafélagi Reykjavíkur á farskipum.
Forsendur fyrir afstöðu okkar eru í fyrsta lagi að við teljum verkfallsréttinn heyra til grundvallarmannréttinda sem beri að virða og er óverjandi að beita löggjöf til þess að afnema hann.
Í öðru lagi teljum við það ekki hlutverk ríkisvaldsins að blanda sér í kjaradeilur á þann hátt að setja um þær löggjöf. Það er hættuleg tilhneiging sem virðist fara vaxandi að stjórnvöld hafa afskipti af kjaradeilum með slíkum hætti. Þetta leiðir til þess að samningsaðilar leggja sig ekki fram sem skyldi til að leysa mál sín sjálfir en treysta um of á að lagasetning muni taka af þeim ómakið. Má því segja að samningaviðræður fari ekki fram í fullri alvöru. Þessi tilhneiging hefur verið ríkjandi á undanförnum árum og tel ég hana mjög varhugaverða.
Það eru ævinlega taldar fram mikilvægar ástæður til að rökstyðja slíkt inngrip stjórnvalda, oft þjóðhagslega mikilvægar. Svo er einnig nú. Forsendurnar fyrir því að leggja þetta frv. fram eru t.d. þær að í landinu hafa verið undanfarna mánuði og eru nú þverrandi birgðir af frystum fiski. Reyndar hafa ekki á undanförnum árum verið svo litlar birgðir til við áramót eins og nú. Á sama tíma gætir mikillar eftirspurnar eftir fiski erlendis. Þessar ástæður eru taldar stefna mörkuðum okkar erlendis í hættu þannig að neysluvenjur útlendinga breytist og verði trauðlega endurheimtar, þ.e. þeir venjist af því að borða fisk. Þessir þjóðarhagsmunir eru þó sannarlega beinlínis atvinnuhagsmunir allra málsaðila, fiskimanna, útgerðarmanna og farmanna og þeim hlýtur að vera treystandi til þess að hafa þá ábyrgðartilfinningu að gæta að eigin atvinnuhagsmunum jafnt sem þjóðarhag. Og ég er fullviss um það að þeir þurfa ekki hjálp ríkisvaldsins eða alþm. til þess, enda hafa allir málsaðilar lýst yfir andúð sinni á lagasetningu og mótmæla afskiptum Alþingis af deilunni, nú síðast í dagblöðum í morgun. En þar lýsa Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands Íslands, Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, allir yfir því að þeir telji bæði óeðlilegt og óæskilegt að ríkisvaldið skuli með þessum hætti hafa tekið málin í sínar hendur.
Hvað varðar þær áhyggjur sem menn hafa af þverrandi birgðum frysts fisks bæði hér heima og erlendis, þá vil ég vekja athygli á því að málið er nú ekki svo einfalt að þetta verkfall eitt sér ráði úrslitum og ég vil vitna í orð Þórðar Sveinbjörnssonar í Morgunblaðinu í dag, með leyfi forseta, en þar segir:
„Þórður Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Öldunnar, sagði að þegar verið væri að tala um fiskskort í vinnslunni og á erlendum mörkuðum virtust menn gleyma því að nánast öll skip sem nú væru að veiðum seldu aflann ferskan erlendis. Þar sem fiskvinnslan ætti í mörgum tilfellum hlut í þessum skipum fyndist sér það skjóta skökku við að kvarta undan fiskleysi en selja fiskinn síðan ferskan erlendis.“
Hvað varðar framvindu í þessari deilu er ljóst að ríkisvaldið greip í taumana löngu áður en reyndi til fullnustu á þau tilboð sem málsaðilar höfðu til umfjöllunar. Og það tilboð sem áður var talað um hér sem sjómenn gerðu um skiptahlutfall og tengingu þess við olíuverð var merkur áfangi og reyndar mikil fórn sem ekki fékk verðskuldaða umfjöllun vegna íhlutunar ríkisstjórnarinnar. Samningaumleitanir höfðu aðeins staðið í stuttan tíma og þó nokkur árangur náðst þegar gripið var í taumana. Eins og ég sagði áðan tel ég ekki að ríkisstjórnin eða Alþingi eigi að fjalla um efnisatriði kjaradeilna eða samninga. Við erum ekki samningsaðilar. Það er hins vegar á ábyrgð samningsaðila að útkljá ágreining um efnisatriði. Hitt er víst að með því að grípa inn í atburðarásina á þann hátt sem gert hefur verið, þá firrir ríkisstjórnin útgerðarmenn þeirri skyldu að svara kröfum sjómanna af ábyrgð. Og mig langar enn að vitna, með leyfi forseta, í orð Guðjóns A. Kristjánssonar í Morgunblaðinu í dag þar sem segir:
„Sjómenn eru að verða ansi langþreyttir á lagasetningum Alþingis í kjaradeilum okkar við útgerðarmenn. Þegar við erum farnir að ná þrýstingi á útvegsmenn grípa stjórnvöld til þess að setja á okkur lög og eyðileggja þar með kjarabaráttuna fyrir okkur. Við höfum alltaf komið illa út úr lagasetningum Alþingis og það var augljóst að útvegsmenn treystu betur á ákvörðun Alþingis því þeir vildu ekki ræða við okkur þó við værum stöðugt að nálgast þá. Öllum tillögum var svarað neitandi og hætt að ræða mál sem voru komin á góðan rekspöl. Við teljum að útvegsmenn hafi beinlínis viljað að þetta færi svona," segir Guðjón A. Kristjánsson.
Ég tel ekki rétt að fara ítarlega út í efnisatriði málsins hér en mun eiga kost á því síðar að hlusta á málflutning samningsaðila á fundi sjútvn. Þó hygg ég að ekki muni það breyta í neinu afstöðu okkar í þessu máli og ég endurtek: Við erum mótfallnar þessu máli og leggjum til að það verði fellt.