19.01.1987
Neðri deild: 35. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2314 í B-deild Alþingistíðinda. (2230)

271. mál, Þróunarsjóður fyrir Færeyjar, Grænland og Ísland

Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um þróunarsjóð fyrir Færeyjar, Grænland og Ísland sem gert er ráð fyrir að starfi á vegum Norðurlandaráðs. Norðurlandaráð hefur á undanförnum árum aukið verulega ýmiss konar starfsemi sína á sviði efnahags- og atvinnumála. Hefur í því sambandi m.a. alllengi verið um það rætt að stuðla að atvinnuþróun landa á svæðinu í norðvestur-Atlantshafinu. Þessi hugmynd hlaut jákvæðar umsagnir, m.a. á fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík 1985, og má segja að eftir það hafi verið ákveðið að láta á það reyna hjá meðlimaríkjum Norðurlandaráðs að slíkum sjóði yrði á fót komið og nefndist, eins og hér er lagt til, þróunarsjóður fyrir Færeyjar, Grænland og Ísland.

Nauðsynlegt er að flytja sérstakt frv. um þennan sjóð þar sem gert er ráð fyrir því, eins og kemur fram í frvgr. og ítarlegri grg. sem fylgir, að sjóðurinn njóti ýmiss konar undanþága. M.a. er gert ráð fyrir því í 2. gr. að sjóðurinn njóti undanþáguákvæða laga nr. 63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, svo og annarra laga er setja kunna hömlur á greiðslur í erlendum gjaldeyri, gjaldeyrisviðskipti eða heimildir til lántöku erlendis að svo miklu leyti sem slík ákvæði hindra eða torvelda starfsemi sjóðsins eða efndir skuldbindinga hans. Sömuleiðis er í 3. gr. gert ráð fyrir því að sjóðurinn skuli vera undanþeginn aðstöðugjaldi, landsútsvari, tekju- og eignarskatti, svo og öðrum gjöldum sem lögð kunna að vera á tekjur, eignir eða veltu til ríkis eða sveitarfélaga. Í 4. gr. kemur fram að lánasamningar, sem sjóðurinn er aðili að, skuli vera undanþegnir stimpilgjöldum og öðrum gjöldum til hins opinbera.

Fjármagn til sjóðsins leggja Norðurlönd til eins og fram kemur í samþykktum fyrir norrænan þróunarsjóð fyrir hin vestlægu Norðurlönd eins og fram kemur á bls. 5 í meðfylgjandi athugasemdum og grg. Stofnfé sjóðsins er í raun fé það sem endurgreiða ber stofnríkjum hins íslenska þróunarsjóðs. M.a. er gert ráð fyrir því að af Íslands hálfu verði lagðir til sjóðsins 400 þús. bandaríkjadollarar sem var framlag Íslendinga í hinn íslenska þróunarsjóð á sínum tíma. Samtals er gert ráð fyrir að stofnfé sjóðsins jafngildi 14,1 millj. bandaríkjadala.

Þá vil ég geta þess að samhliða þessu frv. flytur hæstv. utanrrh. till. til þál. um staðfestingu á því samkomulagi sem liggur til grundvallar þessari sjóðsstofnun og þurfa þessi mál að sjálfsögðu að fara saman í gegnum þingið. Ég vil þó geta þess að sett eru tímatakmörk á meðferð þessa máls og er nauðsynlegt að afgreiða málið fyrir 28. þ.m., ef ég man rétt, eða fyrir mánaðarlokin. Ég vil því leyfa mér að vona að málið fái skjóta athugun, enda veit ég að fjölmargir hv. þm. hafa fjallað um þetta mál á vegum Norðurlandaráðs og af þessu er ekki síst orðið vegna framgöngu þm. hjá Norðurlandaráði.

Ég vil geta þess jafnframt að það var talið koma í minn hlut að flytja frv. þar sem hér er um byggðamál að ræða og byggðamál hafa hér á landi fallið undir forsrn.

Ég vísa til meðfylgjandi athugasemda og grg. um frekari upplýsingar um mál þetta og leyfi mér að leggja til herra forseti að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.