19.01.1987
Neðri deild: 35. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (2234)
174. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Vegna fsp. hv. þm. Friðriks Sophussonar um hvar muni vera niðurkomnir flokksbræður hv. 5. þm. Austurl. er ástæða til að rifja upp að hv. seinasti ræðumaður hefur þegið heiðursnafnbót úr hendi hv. þm. Sigríðar Dúnu kvennalistaþingkonu í virðulegu viðtali við tímaritið Þjóðlíf þar sem hann var útnefndur fjórða Kvennalistakonan. (FrS: Þess vegna segir hann alltaf herra forseti.) Þess vegna rennur honum að sjálfsögðu blóðið til skyldunnar og fagnar því að við sitjum á þessu málþingi undir forsæti virðulegrar kvennalistaþingkonu og kannske er ástæðulaust að vera að spyrja: Hvar eru flokksbræðurnir?
Virðulegi forseti. Ég hef áður, þegar þetta mál var fyrst flutt af hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni, gert allrækilega grein fyrir afstöðu þingflokks Alþfl. til þessa máls. Í þeirri umfjöllun kynnti ég fyrir þingheimi ályktanir flokksstjórnar Alþfl. um byggðastefnu og endurskipulagningu sveitarstjórnarmála sem og niðurstöður starfshóps á vegum þingflokks Alþfl. um byggðastefnu og endurskoðun stjórnarskrár af því tilefni. Nú er því við að bæta að á flokksþingi Alþfl., sem haldið var í fyrstu viku októbermánaðar á s.l. ári, var einróma samþykkt stefnuyfirlýsing þar sem flokkurinn skuldbatt sig til stuðnings við það meginmál sem á embættismannamáli heitir þriðja stjórnsýslustig en á mannamáli heitir að færa völd heim í héruð.
Það kom fram í máli eins hv. ræðumanns, Stefáns Valgeirssonar, að þetta væru ekki nýjar hugmyndir. Hann minntist þess að þær hefðu verið fluttar á hinu háa Alþingi fyrr og nefndi í því samhengi nafn hv. fyrrv. þm. Gísla Guðmundssonar þrátt fyrir að hv. þm. Stefán Valgeirsson lýsti efasemdum sínum um þær till. sem hér eru fluttar um þriðja stjórnsýslustigið. Ég tel ástæðu til að rifja upp að þessar umræður eiga sér lengri sögu og lengri aðdraganda.
Á stríðsárunum, þegar fram fóru allrækilegar umræður í okkar þjóðfélagi um nýja stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland, tóku Austfirðingar sérstakt frumkvæði í þessu máli. Fjórðungssamband Austfirðinga gerði um það ítarlegar ályktanir og á vegum þess birtust í tímaritinu Gerpi, sem var málgagn fjórðungssambandsins, ítarlegar ritsmíðar og álitsgerðir um stjórnarskrármálið eins og það var þá kallað. Það er ástæða til að rifja þetta upp vegna þess að margar af þessum tillögum eru þess eðlis að þær hafa staðist tímans tönn og það væri ástæða til, og ég gef þá ábendingu til flm. frv., að birta hefði átt sem fylgiskjöl með þessu frv. ýmsar af þeim grg. sem á sínum tíma birtust í tímaritinu Gerpi á árabilinu einkum og sér í lagi 1944-1947.
Kjarni þess sem þeir ágætu menn voru að segja þá var þessi: Þeir vöruðu við því að ef stjórnarskrá lýðveldisins yrði tekin óbreytt fegins hendi frá Dönum með þeirri meginbreytingu að setja orðið forseti í staðinn fyrir konungur og menn leiddu ekki hugann að því fyrir fram hvernig menn vildu halda á valddreifingu í þessu þjóðfélagi, þá gæti svo farið innan tiltölulega fárra ára að héruðin úti á landi enduðu í því að verða eins konar frumframleiðslusvæði þar sem aftur á móti öll þjónusta á vegum ríkis og viðskipta yrði saman komin á einum stað í höfuðborginni. Af þessu gæti leitt að samskipti landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis yrðu í líkingu við samskipti nýlendu og nýlenduherra. Þetta væri ástand sem mætti sjá fyrir og ætti að reyna að girða fyrir með því að taka upp róttæk ákvæði í stjórnarskrá lýðveldisins um valddreifingu, héraðastjórn.
Þessar hugmyndir áttu víða fylgi að fagna og mjög margir urðu til þess að taka undir þessi sjónarmið þó að saga stjórnarskrármálsins allan tímann síðan sýni að þar hefur ekki verið fylgt eftir í verki eins og menn höfðu kannske ástæðu til að ætla á þessum árum.
Ef við lítum nú á stöðu mála í ljósi viðvarana sem fram voru settar á þessum tíma er auðvelt að færa fyrir því veigamikil rök að þessar viðvaranir voru ekki ástæðulausar. Við lítum nú á tvískiptingu þessa þjóðfélags milli landsbyggðar og höfuðborgar. Hún er mjög á þann veg að frumframleiðslan, atvinnuvegir eins og sjávarútvegur, fiskvinnsla og landbúnaður og úrvinnsla landbúnaðargreina, er að verulegu leyti saman komin í hinum dreifðu byggðum á landsbyggðinni en ríkisbáknið, ríkisþjónustan, utanríkisviðskiptin, verslunin og yfirleitt öll þjónusta sem varðar þessa framleiðsluatvinnuvegi er saman komin í Reykjavík. Að vísu er rétt að benda á að að því er varðar úrvinnslu landbúnaðarafurða hefur sú þróun verið einkennandi að stærstu fyrirtæki í úrvinnslu landbúnaðarafurða eru saman komin í Reykjavík að því er virðist að forgöngu forsvarsmanna landbúnaðarins og milliliðakerfisins í landbúnaði. Engu að síður gildir það að atvinnuuppbyggingin á landsbyggðinni er annars eðlis en á höfuðborgarsvæðinu og það hefur haft sínar augljósu afleiðingar.
Ef við lítum á stöðu atvinnuvega á seinni árum sjáum við að landbúnaður á Íslandi á við alvarleg vandamál að stríða. Þar hefur gætt vaxandi samdráttar og það hefur sín áhrif á þá atvinnustarfsemi sem víða er uppistaða í hinum minni byggðarlögum úti á landi og fæst við úrvinnslu landbúnaðarafurða. Þess sjást augljós merki að íslenskir bændur hafa ekki lengur trú á því mikla forsjárkerfi og miðstýringarvaldi sem byggt hefur verið í kringum þennan atvinnuveg. Þar hefur, eins og menn þekkja, vinstri höndin ekki vitað hvað sú hægri gerði. Með annarri hendinni, fyrir tilstuðlan ríkjandi landbúnaðarstefnu ríkisvalds og milliliðakerfis, hafa bændur verið hvattir til sívaxandi framleiðslu, bændur hafa verið hvattir til að stækka bú í nafni framleiðniaukningar. Ekkert tillit hefur verið tekið til þess að tilkostnaður hefur verið sívaxandi, hluti milliliðakerfisins af endanlegu smásöluverði afurða farið vaxandi. Á seinni árum hefur það orðið áberandi við snöggt kaupmáttarfall, sérstaklega í upphafi stjórnartíma þessarar ríkisstjórnar, að eftirspurn eftir landbúnaðarafurðum hefur farið minnkandi. Þannig hefur myndast lítt viðráðanlegt offramleiðslufjall sem síðan er brugðist við með framleiðslustýringu og aðferðirnar sem notaðar hafa verið þær að koma aftan að mönnum.
Bændur fá allt í einu í pósti fyrirmælamiða frá kerfinu þar sem þeim er fyrirskipað hvað þeir megi hafa marga gripi í fjósi eða hvað þeir megi eiga mörg höfuð á fjalli með þeim afleiðingum að sú fjárfesting sem þeir lögðu í og voru hvattir til og styrktir til verður þeim fjárhagslega ofviða. Þessar aðferðir hafa leitt hrikalega kreppu yfir landbúnaðinn á sama tíma og fyrir því má færa veigamikil rök að allt forsjárkerfið hefur algerlega brugðist að því er varðar markaðssetningu og sölu afurða, vöruþróun í landbúnaði er aftarlega á merinni og þær tilraunir sem gerðar hafa verið til útflutnings á þeim afurðum, eins og dilkakjöti, sem menn vilja binda vonir við að hægt sé að finna markaði fyrir, allar hafa þær tilraunir verið í skötulíki. Bændur eru nú í uppreisnarham gegn þessu kerfi. Þeir finna að það er ranglátt, þeir finna að það er óskilvirkt og þeir sjá enga von fram í tímann um að með þessum aðferðum verði vandinn leystur. Þeir eru farnir að stofna til samtaka til að gæta hagsmuna sinna gagnvart þessu miðstýringarkerfi.
Að því er varðar sjávarútveginn þarf ekki undan því að kvarta að nú hin seinni misseri hefur verið mikill uppgangur í sjávarútvegi, fyrst og fremst vegna sívaxandi afla og hagstæðrar verðlagsþróunar auk þess sem aðfangakostnaður, sérstaklega að því er varðar olíuvörur, hefur lækkað verulega. Olíuverðfallið á seinasta ári hefur verið metið á um 2000 millj. kr. Þetta hefur þýtt út af fyrir sig að sjávarútvegurinn hefur stigið fyrstu skrefin í að losna úr þeirri kreppu sem honum hafði verið búin, sérstaklega á árabilinu 1978 og síðan þegar honum var sökkt í skuldir og mörg blómleg fyrirtæki í sjávarútvegi urðu fyrir miklum skakkaföllum og eiginfjárstaða þeirra versnaði mjög verulega. Engu að síður eru kreppumerki í fiskvinnslu. Það er ljóst að frystiiðnaðurinn er í kreppu. Hann hefur ekki aðlagast gerbreyttum markaðsaðstæðum og það hefur leitt til þess að í vaxandi mæli er farið að flytja fisk út óunninn til að svara vaxandi eftirspurn og hagstæðu verðlagi fyrir ferskan fisk á erlendum mörkuðum. Við sitjum uppi með gífurlega fjárfestingu í frystiiðnaði, en vöruþróun í honum hefur ekki verið nægilega ör og við sitjum mjög aftarlega að því er varðar framleiðslu á fiskréttum og fiskmáltíðum sem æskilegt hefði verið að frystihúsin beindu athygli sinni að í vaxandi mæli miðað við breytingar á markaðsaðstæðum.
Hv. seinasti ræðumaður vék að ástandi húsnæðismála á landsbyggðinni. Þess sjást víða merki í byggðarlögum úti á landi að þar hefur ekki aðeins verið samdráttur í byggingarstarfsemi. Það eru heilu byggðarlögin þar sem ekki hefur verið byggt eitt einasta íbúðarhús á seinustu árum. Menn hafa orðið fórnarlömb verðfalls á fasteignum, bundnir af eignum sínum, og þess sjást augljós merki að jafnvel þótt auknu fé hafi verið að frumkvæði verkalýðshreyfingarinnar veitt til húsnæðislána hika menn við að fjárfesta í íbúðarhúsnæði víða úti á landi af þeirri ástæðu að þeir óttast að þessi fjárfesting verði þeim ofviða, hún haldi ekki verði sínu og menn verði þar með fyrir eignatjóni.
Það er ástæða til að vekja athygli á áhrifum skólakerfisins að því er varðar byggðamynstrið og þær staðreyndir að fólk leitar í vaxandi mæli frá landsbyggðinni og velur sér búsetu á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið þó nokkur uppbygging í skólakerfinu. Skólakerfið veitir námsfólki tiltölulega greiða braut gegnum framhaldsskóla og til sérhæfðs náms í vaxandi mæli, en þegar þetta fólk kemur frá námi og svipast um eftir störfum blasir sú staðreynd við að störfin sem því henta er fyrst og fremst að finna á höfuðborgarsvæðinu. Athyglisvert er að tölur um ný störf sem verða til í hinu opinbera kerfi eru háar og tölur um ný störf sem verða til í þjónustu hvers kyns, sem aðallega er saman komin hér á höfuðborgarsvæðinu, eru háar. Þetta þýðir að gegnum veitukerfi skólakerfisins er aðkomufólki af landsbyggðinni veitt í vaxandi mæli til starfa og búsetu á höfuðborgarsvæðinu.
Eitt atriði ætti að nefna enn vegna þess að það gleymist oft í þessari umræðu þegar menn reyna að draga upp myndina af því hvernig á því stendur að fólkið á landsbyggðinni hefur ekki þrátt fyrir gífurlega verðmætasköpun notið þess í lífskjörum eða stöðugleika í sínum byggðarlögum. Þá er ég að ræða um hið mikla innstreymi erlends lánsfjár sem runnið hefur í okkar þjóðfélag á seinustu árum. Hvaða áhrif hefur það? Hvar sér þessa lánsfjár stað? Mesti skuldakóngur íslensks þjóðfélags að því er varðar erlendar lántökur er að sjálfsögðu ríkisbáknið sjálft. Að öðru leyti er innstreymi lánsfjár að verulegu leyti að finna í þjónustugreinunum. Það er þetta innstreymi af erlendu lánsfé sem býr að verulegu leyti til „falskar tekjur“, m.ö.o. það er undirrótin að þeirri grósku í þjónustustarfseminni, bæði á vegum hins opinbera og einkaaðila, sem er að finna á höfuðborgarsvæðinu. Hvaða áhrif hefur það svo aftur á undirstöðuatvinnuvegina? Það þýðir að sjávarútvegurinn, sem hafði verið sökkt í skuldir og hafði takmarkaða greiðslugetu, var settur í þá kreppu að geta ekki keppt um vinnuaflið við þessar atvinnugreinar eins og þær birtust okkur í launaskriði og yfirborgunum á vegum þeirra aðila sem geta velt sínum kostnaði og sínum launagreiðslum út í verðlagið sem sjávarútvegurinn getur raunverulega ekki gert. Þetta innstreymi erlends lánsfjár hefur m.ö.o. orðið til þess að byggja upp spennu og þenslu á höfuðborgarsvæðinu og það hefur valdið því að frumframleiðslugreinarnar, fyrst og fremst sjávarútvegurinn og fiskvinnslan, hafa ekki getað keppt við þjónustugreinarnar í launum. Þetta hefur enn orðið til þess að auka aðdráttarafl höfuðborgarsvæðisins og draga úr því að hægt væri að manna þau störf sem halda uppi frumframleiðslunni.
Í raun og veru er þessi mynd á margan máta lík þeirri mynd sem talsmenn Framsfl. hafa löngum reynt að draga upp af seinna tímabili viðreisnarstjórnarinnar. Það er nánast eins og ósjálfráð viðbrögð hjá framsóknarmönnum að reyna að verja framsóknaráratuginn með vísan til þess að viðreisnarstjórnin hafi á seinna skeiði sínu a.m.k. látið undir höfuð leggjast að gæta hagsmuna landsbyggðarinnar. E.t.v. er rétt að taka undir þann þátt í þessari gagnrýni sem varðar landhelgismálið sjálft, þ.e. takmarkaðan skilning forráðamanna viðreisnar á þriðja skeiði þeirrar stjórnar að því er varðaði nauðsyn þess að færa út landhelgina, þó að tölur sem farið hefur verið með oft og tíðum um uppbyggingu togaraflotans séu að því leyti rangar að í lok viðreisnarstjórnar höfðu verið gerðir samningar um kaup, smíði og innflutning á um tólf fyrstu skuttogurunum þó að sú staðreynd sé nú flestum gleymd. En það er athyglisvert að alveg eins og framsóknarmenn hafa gjarnan hamrað á því að landsbyggðin hafi orðið út undan á viðreisnartímanum, þá sitja þeir nú uppi með þá staðreynd fyrir augunum í lok framsóknaráratugarins, sem er orðinn helst til langur, að landsbyggðin er helsta fórnarlamb þess stjórnarfars sem hér hefur ríkt undir forustu framsóknarmanna. Þetta lýsir sér auðvitað í mörgu og ein afleiðingin mun verða sú að landsbyggðarmenn gera sér ljóst að Framsfl. er ekki lengur í reynd sá málsvari landsbyggðarinnar sem hann löngum hefur þóst vera. Þau umskipti birtast okkur á táknrænan máta á þann veg að formaður flokksins leiðir nú flótta framsóknarmanna af landsbyggðinni með því að gefa upp föðurleifð sína á Vestfjörðum og tilkynna það sunnan af Suðurnesjum.
Þetta, sem ég nú hef nefnt, skýrir að verulegu leyti hvers vegna hallað hefur á landsbyggðina á tímabili þessarar ríkisstjórnar og reyndar lengur, en það er einn þáttur enn sem ég hef ekki minnst á og vegur þungt í þessari umræðu og það er sveitarstjórnarskipan.
Til eru þeir, eins og hv. þm. Stefán Valgeirsson, sem lýsa efasemdum sínum um það sem á kansellímáli er kallað þriðja stjórnsýslustig og efasemdirnar heyrast nú reyndar fleiri, aðallega frá mandarínum kerfisins, um það að þetta muni leiða til kostnaðarauka, þetta sé enn ein silkihúfan í stjórnkerfinu, þetta geri stjórnkerfið flóknara og það sé engan veginn sannað mál að það verði neitt skilvirkara fyrir vikið. Það er full ástæða til að ræða þessar röksemdir og ástæðulaust með öllu að vísa þeim á bug fyrir fram. En ef menn ætla hins vegar að nota þessar röksemdir til að verja aðgerðarleysi að því er varðar núverandi sveitarstjórnarskipan fer í verra því að núverandi sveitarstjórnarskipan stenst ekki og er löngu úrelt. Það er gersamlega út í hött að búa við sveitarstjórnarskipan þar sem sveitarfélög, eitthvað um 200 talsins, eru mjög mörg svo vanburðug að það er algerlega útilokað að þau geti búið sínum þegnum neitt í líkingu við sambærilega þjónustu af því tagi sem höfuðborgarsvæðið gefur fyrirmynd um. Sveitarfélögin eru allt of mörg. Þau eru mörg þeirra allt of fámenn og það er vonlaust með öllu að rétta hlut landsbyggðarinnar innan ramma núverandi sveitarstjórnarskipunar. Sá maður sem segir: Ég hef mínar efasemdir um þriðja stjórnsýslustigið, þ.e. um fylkjaskipan eða héraðastjórn, verður að gera grein fyrir því, ef hann hafnar þeirri leið, hvað hann vill gera í staðinn. Menn hafa sagt sem svo: Einfaldast væri auðvitað að bíða þess ekki lengur að sveitarfélögin sameinist eftir samningaleiðum því að það hefur enginn árangur orðið af þeirri viðleitni í meira en aldarfjórðung. Þá er að líta á þann kost að Alþingi höggvi á hnútinn og skipuleggi sveitarstjórnirnar upp á nýtt með lagasetningu, t.d. á þann veg að sveitarfélagaeiningarnar í landinu yrðu eitthvað í kringum 30 talsins. Sú tala hefur verið nefnd út frá gefnum forsendum um að reyna að halda ákveðnu jafnræði milli íbúatölu stækkaðra sveitarfélaga í þeirri mynd. Auðvitað kemur það fyllilega til greina og það er hægt að færa rök fyrir því að þessi leið væri sennilega skynsamlegri út frá mörgum sjónarmiðum. En kjarni málsins er samt sem áður þessi:
Það er fyrst og fremst tveggja kosta völ að því er þetta varðar: annars vegar fækkun og stækkun sveitarfélaganna samkvæmt valdboði án þess að búa til þriðja stjórnsýslustigið eða, ef ekki getur tekist pólitísk samstaða um það, þá er að fara fram hjá þessu vandamáli með því að búa til héraðastjórnir. Og hvað þýðir það þá? Það þýðir ósköp einfaldlega að endurskoða frá rótum verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, kveða á um það með löggjöf hvaða verkefni, sem nú lúta flóknum samskiptareglum ríkis og hinna minni sveitarfélaga, eigi að vera algerlega á ábyrgð og í höndum hinna nýju héraðastjórna og hvaða verkefni eigi að vera í höndum miðstjórnarvalds ríkisins. Jafnframt þessu, og það er auðvitað lykilatriði, hlýtur það að verða snar þáttur í heildarendurskoðun skattalaga, sem flestir viðurkenna nú a.m.k. í orði að hljóti að verða eitt veigamesta verkefni nýrrar ríkisstjórnar, að ákveða hvaða tekjustofna hin nýja héraðastjórn eða stækkuð sveitarfélög eigi að fá til ráðstöfunar þannig að skattlagningarvaldið, sjálfstætt vald í skattlagningarmálum færist til héraðanna ásamt með fjárhagslegri ábyrgð og ákvörðunarvaldi um forgangsröðun framkvæmda í viðkomandi héraði.
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum manni að landsbyggðarfólk er í uppreisnarhug gegn óbreyttri skipan og ég satt að segja verð að lýsa furðu minni á því að þegar byggðanefnd þingflokkanna beinir spurningum til þingflokkanna og krefur þá um afstöðu til tillagna og hugmynda um þriðja stjórnsýslustig skuli t.d. þingflokkur Sjálfstfl. láta sér nægja að svara því klárt og kvitt: Þingflokkur Sjálfstfl. er andvígur þriðja stjórnsýslustiginu, telur m.ö.o. óbreytt ástand fullnægjandi.
Hitt dæmið er að þegar þingflokkur Framsfl. svarar út í hött, svarar þessari einföldu spurningu með því að vísa til þess að þeir hafi stutt frv. hæstv. félmrh. um smávægilegar breytingar á sveitarstjórnarlögum sem samþykktar voru á seinasta þingi, svarar út í hött með því að segja að þar sé gert ráð fyrir vísi að þriðja stjórnsýslustigi sem er hreinn útúrsnúningur, þá er þingflokkur Framsfl., þessi flokkur sem kenndi sig við málsvörn landsbyggðarinnar, raunverulega að segja að hann hafi ekki mótað sér neina stefnu í þessu þýðingarmesta og stærsta máli landsbyggðarinnar, enda er það engin tilviljun að þegar þetta mál er flutt hér, frv. til stjórnskipunarlaga, frv. sem er undirbúið af forráðamönnum og forsvarsmönnum samtaka um jafnrétti milli landshluta, er það flutt af einum hv. þm., Ólafi Þ. Þórðarsyni, einum hv. framsóknarþm., einmitt vegna þess að hann fær ekki stuðning í sínum þingflokki við flutning þessa máls. Eftir stendur m.ö.o. að því er varðar afstöðu stjórnmálaflokkanna að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hefur flutt hér á Alþingi till. sem gengur í svipaða átt og hér er hreyft að því er varðar héraðaskipun og sveitarstjórnarendurskipulagningu en ef ég skildi hann rétt þegar þetta mál var til umræðu á seinasta þingi var það þingmannsmál en ekki flokksmál. M.ö.o.: það gefur til kynna að enn sé ágreiningur í röðum þeirra Alþýðubandalagsmanna í afstöðu til þessa máls. Um afstöðu Kvennalistans til þessa máls veit ég ekki, en treysti því að málsvarar Kvennalistans geri grein fyrir því í þessum umræðum á eftir.
Þeir menn sem segja: Þriðja stjórnsýslustigið er óframkvæmanlegt vegna þess að farið verði að búa til nýtt stjórnunarapparat sem hlýtur að fela í sér aukinn kostnað, verða líka að hugleiða annað. Í núverandi skipan þurfa forsvarsmenn byggðarlaganna úti á landi að una því að sveitarfélögin eru orðin að niðursetningum í þessu stjórnkerfi. Hinar flóknu samskiptareglur ríkis og sveitarfélaga þýða að forsvarsmenn byggðarlaganna geta varla lengur átt nokkurt frumkvæði að þýðingarmestu framkvæmdum byggðarlaganna upp á eigin spýtur. Það er nánast sama hvað það er af hversdagslegum verkefnum í sveitarstjórnarmálum, það er sama hvaða dæmi við nefnum, hvort heldur það þarf að reisa stálþil við hafnargarð eða steypa þekju á hafnarsvæði eða koma upp smábátahöfn eða flotbryggju eða malbika götur eða reisa dagheimili eða leikskóla eða heilsugæslustöð. Það er nánast sama hvaða verkefni um er að ræða. Frumkvæðið er komið í hendur báknsins fyrir sunnan. Það er í höndum stjórnmálamanna. Það er í höndum stofnana og ráða og nefnda. Það er ömurlegt til þess að vita að menn, sem eru kosnir til trúnaðarstarfa lýðræðislegum kosningum til að bera ábyrgð á framkvæmdum í sínum sveitarfélögum, skuli þurfa í þessu kerfi að fara með betlistaf í hendi sínar árlegu betligöngur til fjvn. Alþingis, til stofnanabákns ríkisins og ráðuneyta, til sjóðakerfisins, til Húsnæðisstofnunar, til Hafnamálastofnunar, til Vegagerðar, til Byggðastofnunar, til sjóðakerfisins, ævinlega með ölmusustafinn í hendinni, og fara þess auðmjúklega á leit að þetta mikla miðstjórnarbákn afhendi þeim til baka oft og tíðum ölmusufé til nauðsynlegra framkvæmda. Þetta er hvort tveggja efnahagslega óskynsamlegt og þetta er mannlega niðurlægjandi. Þetta er kerfi sem er ólíðanlegt með öllu. Landsbyggðarfólk er eðlilega í uppreisnarhug gegn þessu kerfi. Það sættir sig ekki við þá niðurlægingu og þá lítilsvirðingu fyrir sjálfsvirðingu manna sem þetta kerfi býður upp á.
Það er eitt atriði enn í þessu máli og það er þetta: Þegar menn líta á ríkisbúskapinn á Íslandi til lengri tíma er auðséð að tekjuöflunarkerfið er hrunið og ranglatt. En menn sjá líka fyrir sér öll merki þess að útþensla í ríkisbúskapnum lýtur lögmálum síþenslu og það er eins og það sé ekki lengur á mannlegu valdi að setja neinar skorður við því. Þess vegna t.d. þær tölur sem menn nefna um fjölda nýrra starfa í opinberri þjónustu sem allar eru hér saman komnar. Sá maður sem talar um héraðastjórn er um leið að tala um uppstokkun á verkaskiptingu sveitarfélaga. Hann er að tala um það að fyrir utan að héraðsstjórnin yrði kosin með lýðræðislegum hætti myndaðist í hverjum landsfjórðungi stjórnsýslumiðstöð þar sem hluti af þessu mikla embættismannabákni yrði fluttur heim í héruð ásamt með því að skattakerfinu yrði gerbreytt til að tryggja hinum nýju héraðastjórnum aukna hlutdeild í þeim sköttum sem innheimtir eru af borgurunum.
Ég fyrir mína parta segi: Alþfl. er reiðubúinn til þess samkvæmt þeim samþykktum sem ég vísaði til áðan að vinna það verk og lítur á það sem forgangsverk nýrrar ríkisstjórnar að færa völd í vaxandi mæli heim í héruð. Við erum reiðubúnir að hlusta á allar röksemdir manna um það hvað þeir finna aðfinnsluvert að hinu þriðja stjórnsýslustigi og það er augljóslega hægt að segja sem svo: Hin leiðin, sameining sveitarfélaga í miklum mun stærri en færri sveitarstjórnareiningar, er einfaldari leið. Ef hægt er að ná pólitísku samkomulagi um það erum við fyrir okkar leyti reiðubúnir til viðræðna og samningaumleitana við aðra stjórnmálaflokka um það. En kjarni málsins er þessi: Núverandi stjórnkerfi hefur runnið sitt skeið á enda. Það er sprungið, það er ekki mönnum bjóðandi og það er skylda stjórnmálaflokkanna, ekki síst nú þegar gengið er til kosninga, að gera fólkinu úti á landsbyggðinni skilmerkilega grein fyrir því hvort þeir eru reiðubúnir til að færa völd og fjármagn í vaxandi mæli frá þessu miðstýringarvaldi heim í héruðin þar sem staðarþekkingin er auðvitað fyrir hendi og þar sem menn eru kjörnir til þess með lýðræðislegum hætti að taka ákvarðanir um þýðingarmestu þætti opinberra framkvæmda.
Herra forseti. Ég vísa að öðru leyti til fyrri umræðna um þetta mál, þar sem ég birti þingheimi í allítarlegu máli þær ályktanir sem frá Alþfl. hafa komið um þessi mál, og orðlengi þetta ekki frekar.