20.01.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2345 í B-deild Alþingistíðinda. (2246)
241. mál, samgönguleiðir um Hvalfjörð
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Úr því sem komið er í þessum efnum þá er það hiklaust rétt stefna að koma bundnu slitlagi á alla leiðina fyrir Hvalfjörð. Ekki um Hvalfjörð eða yfir Hvalfjörð, heldur fyrir Hvalfjörð, eins og það á að heita.
Í öðru lagi ber að vekja sérstaka athygli á því að á þessari leið eru kaflar sem eru verulega hættulegir. Ég minni á kafla undir Múlafjalli þar sem stórir bílar geta hreinlega ekki mæst vegna þess hve vegurinn er mjór. Ég hygg að þessi vegur hafi verið afskiptur m.a. vegna þess að hann liggur um tvö kjördæmi. Kannske hefur hv. þingmönnum Reykjaneskjördæmis, sem hafa talið önnur verkefni mikilvægari, fundist þessi vegur fyrir Hvalfjörð, sá hluti hans sem liggur í þeirra kjördæmi, vera eins konar „skavanki“ á vegakerfi Reykjaneskjördæmis. Þetta er auðvitað vandræðamál. En þó svo rétt sé að stefna að því að koma bundnu slitlagi á þessa leið sem allra fyrst, þetta er örugglega einn fjölfarnasti þjóðvegur landsins, þá er það mín skoðun að það beri að huga að því, án þess að til þess sé varið einhverjum tugum milljóna en áreiðanlega kostar það eitthvert fé, hvort ekki muni á næstu árum hagkvæmt að gera brú yfir utanverðan Hvalfjörð.