20.01.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2345 í B-deild Alþingistíðinda. (2247)

248. mál, yfirlýsingar í tengslum við kjarasamninga

Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Á þskj. 269 höfum við hv. þm. Davíð Aðalsteinsson flutt fsp. til hæstv. forsrh. um yfirlýsingar sem gefnar voru í tengslum við kjarasamninga. Fsp. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„1. Var landbrh. kunnugt fyrir fram um þau fyrirheit sem forsrh. gaf aðilum vinnumarkaðarins í bréfi 6. des. s.l. um að ekki yrði tekin upp framleiðslustýring í alifuglaframleiðslu og að jöfnunargjald af innfluttum kartöflum yrði fellt niður?

2. Var haft samráð um þetta efni við samtök framleiðenda í þessum greinum eða við Stéttarsamband bænda sem fer með fyrirsvar framleiðenda í þessum efnum skv. lögum nr. 46/1985?

3. Hvernig hyggst ríkisstjórnin standa við það loforð sem landbrh. mun hafa gefið alifuglaframleiðendum að morgni s.l. föstudags um að farið yrði að óskum þeirra um útgáfu reglugerðar sem opnaði leiðir til framleiðslustjórnar í þeim greinum?

4. Hvernig hyggst ríkisstjórnin tryggja hagsmuni kartöfluframleiðenda gegn innflutningi þegar jöfnunargjald af innfluttum kartöflum hefur verið fellt niður?

5. Hvernig hyggst ríkisstjórnin bæta sauðfjárbændum þau 12,74% sem vantar á afurðaverð frá liðnu hausti ef verðið má ekki hækka umfram almenna verðlagsþróun?"

Tilefni þessarar fsp. eins og hún ber með sér er yfirlýsing sem hæstv. forsrh. gaf fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga í desembermánuði s.l. Þessi yfirlýsing, sem lýtur að því efni sem fsp. fjallar um, tekur til efnisatriða sem fram til þessa hafa verið talin lítt viðkomandi almennum kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins.

Í fyrsta lagi vil ég láta þá skoðun mína koma fram að það sé varasamt fordæmi ef í almennum kjarasamningum er farið að knýja fram yfirlýsingar stjórnvalda um efni sem ekki koma beint kjarasamningum við og er erfitt að sjá fyrir til hvers slíkt kynni að leiða í framtíðinni. Eðlilegt er að í kjarasamningum geti verið um það að ræða að ríkisstjórn gefi yfirlýsingar um tiltekin atriði varðandi verðlag, skattamál og annað slíkt sem hefur mikil áhrif á kjör launþega, en það er að mínum dómi varasamt þegar farið er að teygja sig út fyrir almenn svið af þessu tagi.

Hér er hins vegar einnig um það spurt hvort haft hafi verið samráð við framleiðendur í þessum greinum, hvort haft hafi verið samráð við hæstv. landbrh. og hvernig unnt verði að standa við þau loforð sem hann hefur gefið um þetta efni, þar á meðal um sérstakar stjórnvaldsaðgerðir með útgáfu reglugerða.

Ég vil í þessari ræðu ekki fara nánar út í þetta, enda skýrir fsp. sig sjálf, og óska eftir svari frá hæstv. ráðh. En ég tek það fram, sem er e.t.v. nokkuð óvenjulegt við þessa fsp., að við hv. þm. Davíð Aðalsteinsson flytjum hana saman vegna þess að samtímis skiluðum við inn til skrifstofu Alþingis fsp. sem nálega var samhljóða og niðurstaða okkar var sú að flytja fsp. saman.