20.01.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2351 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

248. mál, yfirlýsingar í tengslum við kjarasamninga

Páll Pétursson:

Herra forseti. Það er auðvitað algjört grundvallaratriði ef á að reyna að stjórna einhverjum þáttum kjötframleiðslunnar að koma stjórn á framleiðsluna alla. Það er ekki hægt að krenkja sauðfjárbændur en láta aðra kjötframleiðslu vera án stjórnunar. Íhlutun aðila vinnumarkaðarins í innri mál bændastéttarinnar var náttúrlega algjörlega óforsvaranleg alveg eins og það væri óforsvaranlegt ef bændur færu að reyna að sprengja samtök verkalýðsins.

Mér heyrðist á hv. þm. Davíð Aðalsteinssyni að hann teldi að bændastéttin sjálf hefði afsalað sér 12,74% hækkun. Ég er ekki sammála þessu. Það voru ákveðnir forustumenn bændastéttarinnar sem afsöluðu sér þessu og þeir gerðu það a.m.k. ekki fyrir mína hönd sem framleiðanda. Ég held að það hafi verið óskynsamlegt að afsala þessu þó að forsrh. sé á öðru máli, óskynsamlegt fyrir bændastéttina. Þarna fóru 200 þús. kr. af launatekjum vísitölubóndans og hann getur hvergi látið það koma niður nema á launaliðnum.

Niðurgreiðslum á að beita til örvunar. Stjórnun á framleiðslu á ekki að leiða til hækkunar, hún á að leiða til hagkvæmari framleiðslu og þegar kjúklinga og svínaframleiðslan er komin á örfáar hendur, þá skulu menn sanna til að verðið hækkar.