20.01.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2353 í B-deild Alþingistíðinda. (2261)
Fsp. um yfirlýsingar í tengslum við kjarasamninga
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Þegar núverandi þingsköp voru samþykkt á sínum tíma var ég þeirrar skoðunar að þau mundu oft skapa of þröngan ramma um umræður. Ég spyr hæstv. forseta að því hvort það hafi verið óskað eftir umræðum utan dagskrár um þetta mál en því hafi verið hafnað og aðeins leyfð fsp.