21.01.1987
Neðri deild: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2437 í B-deild Alþingistíðinda. (2290)

279. mál, almannatryggingar

Flm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Þar sem er nú orðið svo áliðið fundar skal ég reyna að stytta mál mitt sem mest ég get, enda er það mál sem ég nú mæli fyrir tiltölulega einfalt og skiljanlegt. En ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum og samflytjendur mínir eru hv. þm. Svavar Gestsson og hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir. Frv. þetta liggur hér frammi á þskj. 506 og er 279. mál þingsins.

Efni þessa frv. er einfaldlega hækkun á sjúkradagpeningum. Ef maður veikist og verður óvinnufær svo að allar vinnutekjur hans falla niður greiðir sjúkrasamlag hans honum sjúkradagpeninga meðan hann er undir læknishendi. Vari veikindin lengur en 52 vikur tekur Tryggingastofnun ríkisins að jafnaði við greiðslum samkvæmt örorkumati nema annað sé ákveðið.

En hverjar eru svo þessar greiðslur sem hinum sjúka er ætlað að framfleyta sér og sínum á í veikindunum? Við getum hugsað okkur fjölskyldumann eða konu sem veikist og missir allar vinnutekjur um skeið. Frá 1. des. 1986 fær þessi manneskja 9252 kr. á mánuði, 308,40 kr. á dag. Fyrir hvert barn undir 18 ára aldri fær hann auk þess greiddar 83,69 kr., nákvæmt skal það vera, á dag eða 2510,70 kr. á mánuði. Það þarf því ekki mikið hugmyndaflug til að gera sér í hugarlund hvernig staða fjölskyldumanns er í slíku tilviki og satt að segja með ólíkindum að fólki skuli boðið upp á þessi lífskjör. Greiðslur sem þessar eru auðvitað hvorki til að lifa eða deyja af og þegar litið er til þeirra fjárskuldbindinga sem venjulegt fjölskyldufólk hefur á herðunum í okkar þjóðfélagi, þá verða þessar greiðslur hreinn skrípaleikur. Mér er vel kunnugt um að starfsfólki sjúkrasamlaganna er satt að segja sárasta raun að afgreiða bætur á borð við þetta.

Frv. það sem ég er að mæla fyrir inniheldur það að greiðslum sjúkrasamlaga í veikindatilvikum verður einfaldlega komið fyrir á sama hátt og greiðslum Atvinnuleysistryggingasjóðs, enda sýnist mér skipta litlu máli hvort manneskja missir tekjur vegna atvinnuleysis eða vegna sjúkdóms hvað varðar þörf fyrir brýnustu lífsnauðsynjar. Atvinnuleysistryggingasjóður greiðir núna frá 1. des. lágmarkslaun ófaglærðs verkafólks fyrir 8 stunda vinnudag, þ.e. 26 500 kr. eins og síðustu kjarasamningar gera ráð fyrir, og auk þess 4% af framangreindum launum fyrir hvert barn undir 18 ára aldri.

Ef frv. mitt yrði að lögum þá verður veruleg lækkun á greiðslum fyrir börn, það skal tekið fram. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að þegar atvinnuleysistryggingalögin voru samin var við það miðað, eins og er í allri tryggingalöggjöfinni, að launþegi hækki ekki í launum, ef til bótagreiðslna kemur, frá venjulegum vinnutekjum. En þetta hefur auðvitað ekki áhrif á það að bótaþeginn er allt öðruvísi settur með þessu fyrirkomulagi heldur en eins og nú er. Mig minnir að ég hafi reiknað það út að greiðslurnar með börnum, sem nú eru 83,69 kr., lækki um allt að því helming en það hefur sáralítil áhrif á heildarupphæðina miðað við þá hækkun sem hér er gert ráð fyrir.

Hv. þm. til upplýsingar skal upplýst að árið 1985 voru sjúkradagpeningar í landinu alls, sem greiddir voru frá Tryggingastofnun ríkisins, 94 493 614 kr. Það er alveg ljóst að þetta frv. mundi hafa í för með sér hækkun á útgjöldum almannatrygginga um allt að 150 millj. kr. miðað við þá tölu. Og menn gætu spurt: Hvernig dettur hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur í hug að menn samþykki slíka útgjaldaaukningu eins og það heitir venjulega hér í þingsölum? Svarið er ofur einfalt. Við höfum þessa peninga, við eigum þessa peninga. Það væri verðugt verkefni fyrir Alþingi að nýta hluta af þeim milljörðum sem sjómenn og verkafólk þessa lands hefur þrælað fyrir á árinu sem var að líða, nota örlítið brot af þeim til að tryggja kjör þeirra ef þeir veikjast. En það má svo sem vel vera að þessi tekjuviðbót okkar sé þegar meira og minna nýtt og farin ýmist í klær okrara eða til að borga óreiðuskuldir óvandaðs fólks í þjóðfélaginu. 150 millj. eru töluverð upphæð í eyrum okkar hv. alþm., þær eru það vissulega, en það er kannske af því að við heyrum sjaldnar talað um þær gífurlegu upphæðir sem verkafólk í þessu landi vinnur fyrir ár hvert.

Ég skal ekki, herra forseti, vegna þess hve áliðið er fara nánar út í þetta frv. Það skýrir sig sjálft, og greinargerðin að ég held harla skýr. Ég skora á hv. Alþingi að þvo þennan smánarblett af almannatryggingakerfinu. Það er ekki boðlegt að bjóða nokkurri manneskju 9500 kr. á mánuði til að lifa af.

Ég leyfi mér, herra forseti, að vísa þessu frv. til hv. heilbr.- og trn. og veit að hv. þm. munu taka því vinsamlega og ég treysti því að þeir veiti því brautargengi.

Umræðu frestað.