22.01.1987
Sameinað þing: 39. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2439 í B-deild Alþingistíðinda. (2293)

217. mál, auðlindaleit í landgrunni Íslands

Flm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um auðlindaleit í landgrunni Íslands, en auk mín er tillagan flutt af Friðriki Sophussyni.

Með leyfi forseta les ég tillögutextann:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa löggjöf og reglur um samstarf við erlenda aðila til leitar að nýtanlegum auðlindum í landgrunni Íslands. Verði þar m.a. fjallað um réttindi og skyldur leitaraðila, heimildir til nýtingar rannsóknaniðurstaðna, öryggisráðstafanir til þess að koma í veg fyrir mengun hafsins vegna auðlindarannsókna og önnur þau atriði sem máli skipta í þessu efni.“

Það eru ekki nema tveir dagar liðnir síðan frá því var skýrt í fjölmiðlum hér á landi að nú væru að hefjast á nýjan leik rannsóknir á landgrunni Grænlands við austurströnd landsins. Er þar um að ræða leit að olíu í landgrunninu undan ströndum og á strandsvæðunum, auk annarra verðmætra jarðefna. Að leitinni stendur bandarískt félag, ARCO, í náinni samvinnu við grænlensku landsstjórnina. Þetta dæmi frá nágranna okkar, hinum næsta í vestri, sýnir að víða er vel að verki staðið í þessum efnum og eru menn mjög á varðbergi að því er varðar verðmæt efni sem í landgrunni ríkja kunna að felast. Á þessum vettvangi er óþarfi að rekja þá sögu, þá ævintýralegu sögu sem gerst hefur í þessum sömu efnum hjá frændum okkar Norðmönnum og Dönum á síðasta áratug og hve mjög þær auðlindir sem þar hafa í landgrunninu fundist hafa bætt efnahag þessara þjóða og raunar að mörgu leyti valdið gjörbyltingu þar í atvinnuháttum.

En hvernig er ástandið hér á landi í þessum efnum hjá okkur Íslendingum sjálfum? Það er skemmst frá því að segja að ekki er mikil sérfræðileg vitneskja fyrir hendi um það hvort nýtanleg og verðmæt jarðefni finnast í landgrunni Íslands eða ekki. Á því hafa farið fram tiltölulega mjög takmarkaðar kannanir. Á það rót sína að rekja m.a. til þess að slíkar rannsóknir kosta mikið fé og einnig mikinn mannafla sérfræðinga á ýmsum sviðum. Þó hefur mönnum lengi verið ljóst að vegna jarðfræðilegra ástæðna, vegna sköpunarsögu Íslands, eru sennilega minni líkur til þess að í landgrunni Íslands sé að finna verðmæt jarðefni, svo sem olíu, en í landgrunni Noregs eða Danmerkur sem eiga sér miklum mun lengri jarðfræðilega sköpunarsögu. Engu að síður er fullkomlega ástæðulaust að útiloka að um verðmæt jarðefni geti þar verið að ræða. M.a. var það atriði einn þátturinn að baki þeirri baráttu sem Ísland ásamt öðrum strandríkjum háði um áratuga skeið fyrir útfærslu efnahagslögsögu strandríkja í 200 sjómílur. Þar var ekki aðeins, þótt efst væri á blaði, nauðsynin á því að yfirráðaréttur yfir fiskistofnunum tilheyrði strandríkinu. Það atriði kom einnig þar til greina að með efnahagslögsögunni mundi strandríkið jafnframt helga sér réttindi til auðlinda hafsbotnsins út að 200 mílna mörkunum og raunar, þegar svo stendur jarðfræðilega á sem m.a. er í því tilviki er Ísland varðar, þó nokkra fjarlægð út fyrir þau mörk.

Nokkrar rannsóknir hafa þó farið fram á íslenska landgrunninu. Einna víðtækust er líklega rannsóknin sem gerð var í samvinnu við þáverandi yfirvöld iðnaðarmála 1978, þegar bandaríska leitarfyrirtækið Western Geophysical kom hingað með leiðangursskip og framkvæmdi með leyfi íslenskra stjórnvalda mælingar fyrir Norðurlandi. Síðan var unnið úr niðurstöðum þeirra og þær sendar íslenskum yfirvöldum.

Hér var vitanlega aðeins um frummælingar að ræða en þó kom þar í ljós að undan Norðurlandi, fyrst og fremst fyrir mynni Eyjafjarðar og á Skjálfandaflóa, var að finna allþykk setlög, allt upp í 2-3 km á þykkt. Þetta kom mönnum nokkuð á óvart en eins og kunnugt er er tilvist setlaga frumforsenda þess að um olíu eða jarðgas geti verið að ræða. Hins vegar er ekki unnt að slá því föstu þó að um slík setlög sé að ræða að þar sé að finna slíkar auðlindir, en án þeirra er vitanlega ekki um nein slík verðmæt jarðefni að ræða.

Þessar niðurstöður voru kynntar hér á landi og vöktu allmikla athygli. Urðu þær m.a. til þess að u.þ.b. tveimur árum síðar var hafist handa við boranir í Flatey þar sem ódýrara og auðveldara er að bora á landi en á hafi. Þær boranir voru framkvæmdar af Orkustofnun, ef ég man rétt, en vegna skorts á nægilega fullkomnum tækjum, stórum borum, lauk þeim án þess að endanlegar niðurstöður fengjust.

Það fer ekki milli mála að eftir að Ísland lýsti yfir 200 mílna efnahagslögsögu með lögunum nr. 41 1979 felst raunverulega í því fyrirætlan okkar að nýta ekki aðeins auðlindir hafsins, heldur einnig að kynna okkur og kanna til hlítar eftir því sem efni og ástæður leyfa hvort um verðmæt efni er að ræða í landgrunni Íslands innan þessara marka. Nú hefur það komið í ljós, eins og ég sagði og menn vissu reyndar fyrir fram, að slíkar rannsóknir eru mjög kostnaðarsamar en hins vegar hafa á þeim áhuga ýmis erlend leitarfélög sem í þessum atvinnuvegi starfa.

Í lögunum sem ég nefndi áðan, nr. 41/1979, er beinlínis gert ráð fyrir því í 6. gr., þar sem talað er um fullveldisrétt okkar Íslendinga til hafsbotns, að hann nái til hafsbotnsins og neðansjávarsvæða utan landhelgi og þar segir að stjórnvöld skuli setja reglur um rannsóknir og hagnýtingu auðlinda landgrunnsins.

Lögin voru sett á sínum tíma, en við höfum hingað til ekki sett neinar reglur eins og hér er rætt um í 6. gr. laganna um rannsóknir og hagnýtingu auðlinda hafsbotnsins eða landgrunnsins þótt sjö ár séu liðin frá því að þessi merku lög voru sett. Það er að dómi okkar flm. þessarar þáltill. hins vegar orðið mjög tímabært af þeim ástæðum sem ég rakti hér áðan.

Það hefur komið í ljós að helsti þrándur í götu þess að unnt verði að hefja víðtækar og nauðsynlegar rannsóknir á landgrunni Íslands, sem fyrst og fremst getur gerst fjárhagsástæðna vegna í samvinnu við erlend leitarfélög og erlend olíufélög, er sá að reglur skortir um heimildir og réttindi slíkra leitaraðila og þá ekki síst heimild þeirra til þess að nýta rannsóknaniðurstöðurnar nokkurra hríð eftir að rannsóknum lýkur og afla þannig tekna til þess að fjármagna auðlindaleitina. Hefur þetta atriði komið ljóslega fram í svörum erlendra olíuleitarfélaga við fyrirspurnum íslenskra yfirvalda og hafsbotnsnefndar iðnrn. um samvinnu við slíka leit. Nokkuð hefur verið eftir því leitað af hálfu íslenskra yfirvalda að samvinna tækist við alþjóðleg leitarfélög um þessi áform. Þannig lét bandaríska félagið Western Geophysical, sem hér var við kannanir 1978, þess getið í bréfi til Orkustofnunar snemma síðasta árs, 1986, að skortur á ákvæðum í þessum efnum væri helsta hindrun þess að það og önnur leitarfélög hefðu áhuga á að leggja út í auðlindakönnun hér við land á sinn kostnað. Það félag annaðist þessa könnun sem ég gat um áðan fyrir Norðurlandi.

Þetta sama sjónarmið hefur komið fram í erindum norska félagsins GECO, en það annast olíuleit fyrir olíuvinnslufélög víða um heim.

Fyrir liggur jafnframt það álit hafsbotnsnefndar iðnrn., sem Guðmundur Pálmason, deildarstjóri á Orkustofnun, er formaður fyrir, að eitt brýnasta verkefnið varðandi rannsóknir og könnun á auðlindum landgrunnsins í samvinnu við erlenda aðila sé að shkar reglur verði settar sem um er rætt í þessari þáltill. Hér er jafnan - og það er mjög mikilsvert atriði í þessu efni - miðað við það að kostnaður við leitina sé aðallega borinn af hinum erlendu aðilum af augljósum ástæðum. Slíkar rannsóknir eru fjármagnsfrekar. Því er það augljóst hagsmunamál að svo verði í haginn búið í þessum efnum að skortur á lögum eða reglugerðum, sem í sjálfu sér ættu að nægja hér víðast hvar, verði ekki rannsóknarsamvinnu við erlenda aðila í þessum efnum til hindrunar.

Þetta eru, herra forseti, meginástæðurnar fyrir því að þessi þáltill. er hér lögð fram. Ég vil gera það að tillögu minni að henni verði að loknum þessum umræðum vísað til allshn.