22.01.1987
Sameinað þing: 39. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2443 í B-deild Alþingistíðinda. (2296)

217. mál, auðlindaleit í landgrunni Íslands

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Eins og hv. alþm. er kunnugt var hér í Sþ. samþykkt tillaga um rannsókn landgrunns Íslands í desembermánuði 1978 og þessu máli var þá þegar ýtt úr vör. Það er ekkert nema gott um það að segja að árétta þá stefnu Alþingis með nýjum tillöguflutningi. Það hefur raunar komið hér fram að minna hefur verið aðhafst en maður kannske gerði ráð fyrir á þeim tíma einmitt vegna þess að olíuverð hefur lækkað og áhugi olíufélaga þar af leiðandi minnkað á því að leita á óvissum svæðum. En í gildi er samkomulag okkar við Norðmenn um landgrunnið á Jan Mayen-svæðinu þar sem Norðmenn eiga að kosta, a.m.k. í fyrsta umgangi, leit á því svæði. Er sjálfsagt að ýta á að því sé hraðað, en auðvitað hafa Norðmenn nú orðið fyrir miklu efnahagslegu áfalli þegar olíuverð lækkaði svo mjög sem raun ber vitni um og þess vegna er þeirra áhugi minni en ella. En auðvitað verður að standa við þann samning og verður gert.

Það er einnig rétt að upplýsa það hér af því að málið er að komast í brennidepil, samningar við Dani og Færeyinga um landgrunnið suður af Íslandi á Hatton-Rockall-svæðinu, að okkar sérfræðingur var í fyrra búinn að búa út áætlun um leit þar sem mundi kosta nálægt 1 millj. dollara. Nú hefur tvívegis í fjárlögum verið samþykkt heimild til lántöku að upphæð helming þessarar upphæðar, sem mundi geta runnið til þessara rannsókna, en Danir mundu þá borga hinn helminginn. Dönsku sérfræðingarnir hafa nýverið sent athugasemdir við þessa áætlun dr. Mani Talwani, sem er sérfræðingur okkar Íslendinga eins og menn vita, og nýjar tillögur má segja um það hvernig leitinni skuli háttað, hvaða línur skuli leita o.s.frv. Þessar tillögur eru nú einmitt í skoðun hjá okkar sérfræðingi og þess er að vænta að innan fárra vikna verði komnar nokkuð hreinar línur í það hvernig þessum rannsóknum á Hatton-Rockall-svæðinu verði hagað nú í sumar.

Þarna er um að ræða rannsóknir á umdeildu svæði, svæði sem við gerum tilkall til, sem Danir gera tilkall til, Bretar og Írar. Þessar endanlegu tillögur ættu að liggja fyrir áður en þingi lýkur eða ég geri mér a.m.k. vonir um það og þá verður auðvitað meira upplýst um þetta mál.

Þessi hafsbotnsmál eru öll í örri þróun núna. Strandþjóðirnar, sem munu vera á milli 2/3 og 3/4 af öllum þjóðum heims, sem eiga eitthvert land að sjó og eru þar af leiðandi strandþjóðir, þær eru allar að tryggja sín réttindi langt út fyrir 200 mílur sumar hverjar. Jafnvel er talað um allt að 1500 mílna hafsbotnsréttindi út af Indlandi t.d., Kanadamenn munu geta helgað sér hafsbotn kannske einar 600 mílur út og við teljum okkur eiga réttindi langt suður í haf eins og menn vita.

En um hafsbotnsréttindin er það svo að það er ekki einungis að til þeirra heyri botninn sjálfur, heldur líka allar lífverur sem ekki hreyfa sig öðruvísi en með snertingu við botninn, þ.e. krabbadýr, skelfiskur og ýmiss konar slík auðæfi. Þess vegna kann það að orka nokkuð tvímælis hvort við, þegar við erum að tryggja okkur þessi réttindi, tölum einungis um auðæfi í jarðlögunum. Kannske eru auðæfin sem eru ofan á hafsbotninum og tilheyra honum eftir 76. gr. hafréttarsáttmálans enn þá mikilvægari okkur. Og við tryggjum betur okkar fiskveiðiréttindi á þessum svæðum þegar fram í sækir með því að sjútvrn. kæmi með einhverjum hætti inn í þessa mynd eða þá jafnvel að þessi mál kynnu að heyra undir forsrn., en þetta er allt saman til athugunar og kemur til skoðunar í utanrmn. að sjálfsögðu og þeim nefndum sem nú eru að störfum, í iðnrn. og víðar. Þess vegna er ekki nema gott eitt um það að segja að mál þetta komi nú til umræðu hér í þinginu og því fagna ég.