26.01.1987
Neðri deild: 37. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2526 í B-deild Alþingistíðinda. (2334)
Framlagning stjórnarfrumvarpa
Svavar Gestsson:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þau svör sem hann hefur gefið. Ég lýsi því yfir f.h. Alþb. að við erum reiðubúin til þess að taka á þessum málum strax og færi gefst. Ég tel í rauninni að það sé fyrir neðan allar hellur ef þessu þingi lýkur án þess að tekið verði á þessum málum báðum sem er verið að ræða um. Þar mega engar tafir verða á. Hitt er náttúrlega engin hemja þegar svo skammt er eftir af þinghaldi að stjórnin skuli ekki sjá til þess að upplýsingar berist jafnharðan og athugun fer fram til stjórnarandstöðuflokka. Það er í rauninni ekki nokkur hemja. Ég vil gagnrýna það mjög alvarlega og fara jafnframt fram á það við hæstv. forsrh. að hann greini ríkisstjórn sinni frá því að hér hafi komið fram óskir um það frá Alþb. að þessi mál berist hér inn hið allra fyrsta, ef ekki í formi þskj. þá til okkar þingflokks, þannig að unnt verði að fara yfir málið tafarlaust.