27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2537 í B-deild Alþingistíðinda. (2346)

Fjarvistir þingmanna

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það getur oft verið spurning hvenær eigi að kveðja til varamenn í fjarveru aðalþingmanna. Það hefur orðið til umræðu hér áður svipað tilvik. Ég tel það út af fyrir sig eðlilegt að ef þm. eru fjarverandi á fundartímum, ég tala nú ekki um dag eftir dag, séu kvaddir til varaþingmenn.

Það kemur upp í huga minn við þessa umræðu hvort hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson muni hafa kvatt inn varamenn í sínum fjarvistum á undangengnum mánuðum. Nú hefur hv. þm. verið - að vísu innanlands - fjarverandi. En það skiptir í mínum huga ekki máli hvort menn eru hérlendis eða þarlendis ef þeir eru fjarverandi á annað borð. Þessari spurningu hlýtur hver og einn að beina til sjálfs sín eins og annarra. Þess vegna spyr ég: Hefur hv. þm. kvatt inn varamann í sínum fjarvistum undanfarið? Og þá kemur kannske spurningin: Hversu miklar fjarvistir eru það? (Menntmrh.: Nú vandast málið.) Nú vandast kannske málið, hæstv. menntmrh. Og vandamálið hefur verið ærið mikið hjá hæstv. ráðh. undanfarið þó ekki bætist við. En þetta er spurning sem hver og einn þm. verður að velta fyrir sér. Ég tala nú ekki um ef þingið er hálflamað vegna þess að þm. eru fjarverandi sem mér sýnist að nokkru leyti a.m.k. vera.