27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2537 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)

Fjarvistir þingmanna

Forseti (Helgi Seljan):

Út af síðustu orðum hv. 3. þm. Vestf. vil ég taka fram að deildarfundir munu hafa gengið fram með nokkuð eðlilegum hætti í gær og sömuleiðis sé ég ekki betur en nú sé allvel mannað í þingsal og hafi verið, þannig að ekki sé bein ástæða til þess að reikna með neinni lömun þingstarfa af þeim ástæðum.