27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2539 í B-deild Alþingistíðinda. (2354)

219. mál, rekstur jarðskjálftamæla á Suðurlandi

Fyrirspyrjandi (Árni Johnsen):

Herra forseti. Ég ber fram fsp. til hæstv. fjmrh. um rekstur jarðskjálftamæla á Suðurlandi.

Í fyrsta lagi er spurt: " Hafa íslensk stjórnvöld tekið afstöðu til þess hvort þau samþykkja að kosta rekstur þeirra jarðskjálftamæla á Suðurlandi sem norrænir jarðskjálftafræðingar hafa sótt um styrk til hjá Norðurlandaráði?" Þar er um að ræða um það bil 6 millj.kr.sænskra. Og spurt er hvort tekin hafi verið afstaða til þess hvort þessir mælar verði settir upp.

Í öðru lagi er spurt: „Hvernig er áætlað að þessi tækjabúnaður nýtist best við forvarnir og fræðslustarf?"