27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2553 í B-deild Alþingistíðinda. (2372)
268. mál, skýrsla OECD um íslenska menntastefnu
Fyrirspyrjandi (Stefán Benediktsson):
Herra forseti. Það kemur fram í þessari skýrslu að hún er upphaflega gerð 9. maí 1986 og hefur því legið þó nokkuð lengi fyrir í ráðuneytinu og það kemur líka fram í fundargerð þess fundar sem hæstv. ráðh. gat að þar svara menn af Íslands hálfu með þeim hætti að það er greinilegt að þeir telja sig vera að bregðast við ýmsum gagnrýnisatriðum þessarar skýrslu þannig að það er kannske ekki furða þó að spurt sé að því hver áform ráðherra um úrlausn þess vanda sem hér er lýst séu, en þrátt fyrir nokkuð dyggilega hlustun fékk ég ekki heyrt að hæstv. ráðh. svaraði því beinum orðum hver eða hvort einhver áform væru uppi um beina atlögu að þeim vandamálum sem lýst er þarna í skýrslunni.
Við vitum að auðvitað stóðu þessir menn ekki lengi við hér á landi við rannsókn þá sem hér fór fram, en þess ber einnig að geta að þarna eru á ferðinni mjög færir sérfræðingar og að menntmn. OECD hefur orðið þó nokkuð mikla reynslu í því að vega og meta menntakerfi hinna ýmsu landa sem að OECD standa þannig að menn byggðu þarna ekki á sandi heldur á nokkuð traustum grunni. Þannig ber að skoða allt það sem sagt er í þessari skýrslu, ekki sem álit ókunnugra gesta heldur álit sérfróðra manna um málefni sem þeir hafa mikla þekkingu á.