27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2554 í B-deild Alþingistíðinda. (2373)

268. mál, skýrsla OECD um íslenska menntastefnu

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að hafa vakið athygli á þessu máli á hv. Alþingi. Hér er svo sannarlega um ógnvekjandi skýrslu að ræða og mér þótti mjög miður að heyra ekki í svari ráðherra að hann hefði uppi nein áform til að taka á þeim vanda sem fram kemur í skýrslunni og sem greinilegt er að er bæði umfangsmikill og á sér djúpar rætur í íslenskum menntamálum. Ráðherra bar því við að hann hefði ekki fengið lokadrög skýrslunnar fyrr en í þessum mánuði, en eins og kom fram áðan hjá fyrirspyrjanda hafa heilleg drög að þessari skýrslu legið fyrir frá því í vor eða snemmsumars þannig að það er engin afsökun að skýrslan hafi komið of seint fram til þess að ráðherra hefði nú þegar uppi einhver áform í þessum efnum.

Ég skora á hæstv. ráðh. að leggjast nú í þessa skýrslu og lesa hana vendilega og láta síðan hendur standa fram úr ermum í þessum málum.