27.01.1987
Sameinað þing: 42. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2589 í B-deild Alþingistíðinda. (2400)

218. mál, efling atvinnu og byggðar í sveitum

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Það líður nú nokkuð á daginn og ekki skal ég verða til þess að draga umræður hér mikið á langinn eða efna til deilna. Og ég skal reyna að spara stóru orðin sem mér finnst ekki að allir hafi gert hér, a.m.k. fannst mér það ekki hér áðan hjá hv. 4. þm. Norðurl. e. Steingrími J. Sigfússyni þegar hann var að senda 1. flm. tóninn.

Ég verð að segja það til þeirra Alþýðubandalagsmanna, sem svo mjög leggja sig fram nú að tala til bænda og telja sig vera, ja nánast þá einu sem hafa einhvern skilning á landbúnaðarmálum, að ég man þá tíð þegar þeir ekki fyrir mörgum árum síðan mönnuðu sig upp í það í einni kosningabaráttunni að gefa út sérstakt bændablað af Þjóðviljanum sínum. Þá stakk það nokkuð í augu að þeir sendu þetta blað að vísu á hvert einasta sveitaheimili í landinu, en það fengu það líka engir aðrir. Fastir áskrifendur Þjóðviljans fengu ekki þetta blað. Af hverju ekki? Vegna þess að stefnan gekk ekki upp og málflutningurinn. Þannig að ég gef ekki mikið fyrir málflutning Alþb. í landbúnaðarmálum.

Ég kem hins vegar fyrst og fremst hér upp vegna ummæla hæstv. landbrh. hér áðan þar sem hann vék að Byggðastofnun og þeirri úttekt sem Byggðastofnun hefur verið fengin til þess að vinna að í sambandi við loðdýraræktina. Ráðherra vék að því að verkið gengi hægt hjá Byggðastofnun og vissulega er það rétt. Vissulega er það rétt að það hefði verið betra að verkið hefði getað gengið hraðar en því miður er það nú svo að Byggðastofnun hefur allt of lítið fjármagn úr að spila sem m.a. kemur mjög niður á því að við verðum að spara í mannafla hjá okkur í þessari stofnun.

En hvað úttektinni á loðdýraræktinni viðkemur vil ég taka það fram hér og segja frá því að vinnu við umrædda skýrslu er lokið og ég veit ekki betur en að skýrslan hafi farið í prentun í dag. Hér er um mjög ítarlega skýrslu að ræða og miklar upplýsingar um loðdýraræktina sem ég vona að verði mönnum að leiðarljósi til frekari uppbyggingar í þessari atvinnugrein sem ég er bjartsýnn á að muni létta mönnum róðurinn. Það er nauðsynlegt að taka þessa starfsemi út og gera henni sem best skil vegna þess að það eru margir sem líta nú mjög til þess að fara út í þessa grein.

Það má einnig segja frá því hér að Byggðastofnun fjallar nú um þann vanda sem við blasir í landbúnaðinum. Bæði hæstv. forsrh. og hæstv. landbrh. hafa rætt þessi mál við stofnunina og óskað eftir því að þar fari vinna í gang í sambandi við þann vanda sem við blasir í sveitum landsins. Ég get einnig skýrt frá því hér að sú vinna er hafin og ég vonast til að í sameiningu geti menn fundið einhverjar leiðir til að draga úr þeim erfiðleikum sem þarna hafa skapast.

Ég ætla ekki að eyða tímanum, eins og ég sagði hér í upphafi, í að fjalla um þessa þáltill. á þskj. 233 og þá umræðu sem hér hefur farið fram, en ég verð að segja að eftir að hafa hlýtt á mál manna sýnist mér verulegur grundvöllur til þess að menn nái saman í þessu máli til að koma á betri skipan og mér fyndist eðlilegast að menn gerðu það. Eðlilegast finnst mér að það verði hæstv. landbrh. sem beiti sér fyrir því að menn reyni að ná samstöðu til þess að bæta úr þeim göllum sem hér hafa orðið á.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.