23.10.1986
Sameinað þing: 7. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

39. mál, byggðastefna og valddreifing

Flm. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um nýja byggðastefnu og valddreifingu til héraða og sveitarfélaga. Flm. að till. er ásamt mér hv. 4. þm. Norðurl. e. Steingrímur J. Sigfússon.

Þessi till. hefur áður komið fram á Alþingi, en með henni fylgja nú nýjustu fáanlegar upplýsingar um stöðu þessara mála, svo og yfirlit um niðurstöðu byggðanefndar þingflokkanna sem skilaði áliti fyrir skömmu, eða s.l. sumar. Tillagan gerir ráð fyrir að Alþingi feli ríkisstjórn að marka nýja og þróttmikla byggðastefnu og hefja aðgerðir til að snúa sem fyrst við fólksflótta utan af landi til höfuðborgarsvæðisins og tryggja íbúum landsbyggðarinnar eðlilega hlutdeild í þeim arði sem þeir leggja til þjóðarbúsins. Sem leiðir að þessu marki er bent á valddreifngu, m.a. í því formi að flytja heim í héruð verkefni og ákvarðanir til lýðræðislega kjörinna stjórna og til sveitarfélaga um leið og þessum aðilum verði tryggðir tekjustofnar til að standa undir verkefnum. Í tillögunni er bent á ýmis þau atriði sem stuðlað gætu að framgangi þessa máls.

Í fyrsta lagi er bent á nauðsynina á að koma rekstrarstöðu frumvinnslugreinanna, sem eru aðalþættir atvinnulífs á landsbyggðinni, sjávarútvegs og landbúnaðar, í það horf að þessir atvinnuvegir hafi forsendur til endurnýjunar og þróunar.

Í öðru lagi að tryggja landsbyggðinni vaxandi hlut í þjónustugreinum og nýsköpun í atvinnulífinu.

Í þriðja lagi að auka ráðgjöf í atvinnulífi og varðandi stofnun nýrra fyrirtækja og framleiðsluþátta úti um land.

Í fjórða lagi að færa hluta af stjórnsýslu og þjónustuþáttum ríkisins með skipulegum hætti út í landshlutana.

Í fimmta lagi að velja stofnunum á vegum ríkisins stað á landsbyggðinni í auknum mæli.

Í sjötta lagi að draga úr mismun á gjaldtöku fyrir opinbera þjónustu, m.a. orku og fjarskipti.

Í sjöunda lagi að flytja stóran hluta af verkefnum Byggðastofnunar til sérstakra þróunarstofa og þróunarsjóða landshlutanna er fái fjármagn frá ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum.

Þá er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin gefi Alþingi hið fyrsta skýrslu um stöðu byggðamála og vinni að því, eins og tillagan gerir ráð fyrir, að leggja fyrir tillögur sem taki mið af þessari þáltill.

Hér er um að ræða eitt stærsta málið í landinu, ef ekki hið allra stærsta, sem er staða landsbyggðarinnar og sú öfugþróun sem þar hefur verið í gangi undanfarin ár og fer ört vaxandi, því miður.

Í grg. með tillögunni er dregin upp sú skuggalega mynd sem við blasir í þessum málum, bæði varðandi íbúafjöldann og þróun búsetu á landsbyggðinni, varðandi stöðu atvinnugreina og þá litlu nýsköpun sem á sér stað í atvinnulífinu úti um land, um það hvernig fjármagnið hefur verið dregið úr undirstöðugreinunum á landsbyggðinni og flutt eftir farvegum fjármagnsins, banka og sjóða, og öðrum leiðum hingað suður til höfuðborgarsvæðisins og hvernig samdráttur í opinberum framkvæmdum, sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir með skipulögðum hætti undanfarin ár, hefur bitnað öðru fremur á landsbyggðinni með hörmulegum hætti. Ekkert lát er á þessari þróun, því miður. Og það er stjórnarstefnan í landinu sem er frumorsökin eða meginundirrót þess hversu hratt hallar undan fæti, þó að aðrir kraftar séu einnig að verki sem lengi hafa ýtt undir þá byggðaröskun sem við höfum verið vitni að nú um býsna langan tíma.

Við hljótum að rifja upp, þegar við ræðum þessi mál, að á síðasta áratug tókst að stöðva þá öfugþróun sem í gangi hafði verið og fór ört vaxandi, t.d. á sjöunda áratugnum, milli 1960 og 1970. Þær aðgerðir, sem stjórnvöld, ríkisstjórn landsins og Alþingi, beittu sér fyrir á síðasta áratug, m.a. með því að tryggja Íslendingum yfirráð yfir auðlindum hafsins með útfærslu landhelginnar og uppbyggingu sjávarútvegsins um allt land, leiddu til þess að íbúatalan á landsbyggðinni jókst og landsbyggðin á heildina litið hélt fyllilega í horfi með tilliti til þéttbýlissvæðisins hér við Faxaflóa. En síðan, á þessum áratug sem við nú erum á, hefur þróunin stefnt í allt aðra átt. Og það er vegna þess sem brýn nauðsyn er á að finna nýjar leiðir til þess að tryggja viðgang landsbyggðarinnar ef ekki á að fara mjög illa í þessum efnum.

Við erum vitni að því að árin 1984 og 1985 tapar landsbyggðin fólki í beinum tölum reiknað í fyrsta sinn síðan á árunum rétt eftir heimsstyrjöldina síðari. Í yfirliti á bls. 3 er að finna glögga mynd um þessa fólksflutninga hér innanlands á undanförnum árum og hvernig fólkið streymir utan af landsbyggðinni hingað suður. Við sjáum líka í grg. á bls. 4 hvernig er háttað hlutdeild landsbyggðarinnar í nýjum störfum. Á árunum 1980-1984 blasir það við að landsbyggðin fær aðeins 28% hlutdeild í nýjum störfum í landinu, þar af aðeins 18% í þjónustustörfum sem eru vaxtarbroddurinn að nýjum störfum. Og það er ekki von á öðru heldur en undan halli þegar sú þróun er að gerast í atvinnulífinu eins og þessar tölur bera vott um.

Það hafa verið dregnar fram tölur um eignatilfærsluna úr fyrirtækjum á landsbyggðinni hingað til Reykjavíkursvæðisins og það hefur ekki verið vefengt að þar er um að ræða fjármagnstilflutning svo nemur milljörðum króna. Í grein, sem fylgdi síðast þegar mál þetta lá hér fyrir, eftir Kjartan Ólafsson, sem sat eitt sinn á Alþingi sem landsk. þm. og fulltrúi Vestfirðinga, er dregin upp mynd af því hvernig þessi eignatilfærsla birtist í sjávarútvegi á árunum 1980 til 1984 og þar var um að ræða upphæðir sem hann leiddi rök að að væru um 6 milljarðar kr., eignatilfærsla frá sjávarútvegsfyrirtækjum hingað suður.

Núverandi valdamenn brugðust við þessum upplýsingum með því að láta Seðlabankann fara yfir þetta í von um að hann fyndi eitthvað allt annað út úr hlutunum. Jú, þeir leiddu líkur að því, eftir árs vinnu eða svo, að upphæðin væri eitthvað lægri. En eftir stóðu samt nærri 3 milljarðar, skv. endurskoðun og leit Seðlabankans að gagnrökum við þessum upplýsingum, nærri 3 milljarðar sem fluttir höfðu verið frá sjávarútvegsfyrirtækjunum á stuttum tíma, rænt af landsbyggðinni og fluttir hingað suður vegna stjórnvaldsaðgerða, vegna efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, því það er landsbyggðin og atvinnuvegirnir þar sem eru þolendur þessarar stjórnarstefnu ásamt launafólkinu í landinu. Það blasir alveg ljóst við. Þunginn af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar, m.a. í sambandi við glímuna við verðbólguna, liggur á landsbyggðinni og fólkinu sem þar vinnur öðrum fremur. Og það er ekkert verið að jafna baggana í þeim efnum.

Við höfum orðið vitni að því nú, t.d. við flutning frv. til fjárlaga, hvernig að málum er staðið í sambandi við skattlagningu í landinu. Þar er með sérstök olíugjaldi verið að leggja á nýjar álögur sem bitna alveg sérstaklega á landsbyggðinni, fyrirtækjum á landsbyggðinni, svo að nefnt sé aðeins eitt lítið dæmi. Póstur og sími er skattlagður sérstaklega til ríkissjóðs. Og hverjir ætli beri þungann af gjöldunum þar hlutfallslega? Það er fólkið á landsbyggðinni sem greiðir þá reikninga. Svo má telja án enda hvernig stjórnarstefnan í einstökum atriðum er meginundirrót þess hvaða öfugþróun er í gangi að þessu leyti, hversu hraðfara hún er. En það þarf önnur ráð.

Vissulega þarf að skipta um stjórn og stjórnarstefnu. Það er eitt brýnasta atriðið til þess að leiðrétta stöðu byggðamálanna um leið og mörkuð er ný og þróttmikil byggðastefna. En það þarf líka að finna nýjar leiðir, eins og bent er á með þessari tillögu, til þess að stífla þá farvegi sem fjármagnið er dregið í og eftir hingað suður. Það er með því að stofnsetja nýtt stjórnsýslustig, nýtt millistig í stjórnsýslunni, í formi héraða sem fái auknar tekjur og völd og verkefni frá ríkisvaldinu eins og hér er lagt til og eins og byggðanefnd þingflokkana hefur tekið undir, þeir sem í henni voru, en ekki hefur fengið stuðning frá stjórnarflokkunum, heldur beinlínis afsvar frá Sjálfstfl. Og það rétt heyrist svona tísta í stöku talsmanni Framsfl. til stuðnings þessari hugmynd en ekki meira. Hæstv. félmrh. Framsfl. hefur ítrekað lýst andstöðu sinni við þessa hugmynd sem byggðanefnd þingflokkana hefur þó tekið undir og hér er lagt til með þessari tillögu að hrundið verði í framkvæmd.

Ég gerði, herra forseti, formlega brtt. í fyrra við frv. til sveitarstjórnarlaga, þar sem þessi tillaga um nýtt stjórnsýslustig er útfærð í lagatexta, í frumvarpstexta, hvernig ég teldi og við flm. þessa máls að hægt væri að standa að útfærslu slíks millistigs í stjórnsýslunni til þess að styrkja landsbyggðina, stöðu hennar og dreifa valdi frá ríkinu til kjördæmanna, sem geta vel verið þær einingar úti á landsbyggðinni sem myndi nýtt stjórnsýslustig en það verði myndað á grundvelli kjördæmaskiptingarinnar nema hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem önnur skipan væri eðlileg.

Einn gildan þátt, sem brugðið er upp mynd af og snertir byggðamálin, er að finna í grg. með þessari tillögu á bls. 10, en hann er húsnæðismálin og sá samdráttur sem þar hefur orðið á undanförnum árum, sú hrikalega þróun í húsbyggingum sem varðar landsbyggðina. Auðvitað er ekki að undra eins og fólksstreymið hefur verið utan af landi og eins og markaðsverðið á eignum fólksins hefur hrunið. Þar blasir við í töflu 5 hver þessi þróun hefur verið frá árinu 1978 til ársins 1985. Á því ári standa leikar svo að aðeins 23% af nýbyggingum falla til landsbyggðarinnar, aðeins 23%, en 77% eru á höfuðborgarsvæðinu. Við bíðum upplýsinga frá hæstv. félmrh. hver þróunin hafi orðið eftir að breyting var gerð á lögum um húsnæðismál á síðasta þingi. Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur upp úr þeim poka. Ég óttast því miður að það verði ekki tölur sem breyti mikið því sem hér blasir við. Því miður, þar þarf önnur ráð. En allt er þar á eina bókina lært þegar litið er til stjórnvalda. Hvernig standa stjórnvöld að því að uppfylla samkomulag varðandi aðra þætti húsnæðismála, ófrágengna, sem gengið var frá í nefnd þingsins 21. apríl s.l.? Það er a.m.k. víst að Sjálfstfl. er ekkert að greiða fyrir eða vinna að því að það samkomulag verði uppfyllt. Þar blasir við hið sama og varðandi tillögur byggðanefndar þingflokkanna. Öll viðleitni til þess að hamla gegn markaðshyggjunni er bannorð á heimili stærsta flokks landsins, Sjálfstfl.

Herra forseti. Um stöðu þessara mála mætti hafa langt mál. Hér er aðeins verið að nefna dæmi um þá þróun sem tillagan gerir ráð fyrir að brugðist verði við. Það hefur mátt heyra á máli mínu að ég er ekki bjartsýnn á að núverandi ráðandi meiri hluti á Alþingi taki þar til hendi, enda styttist seta hans hér, skulum við vænta, og tækifæri er til að breyta um. Það tækifæri ætti fólk á landsbyggðinni ekki að láta fram hjá sér ganga. Það er reynslunni ríkara eftir þau ár sem liðið hafa undir þessum meiri hluta sem sótt hefur þó umboð sitt ekki síst til landsbyggðarinnar. En það er með ýmsum hætti sem menn bregðast við trúnaði og trausti og það kemur að uppgjöri áður en langt um líður í þeim efnum.

Herra forseti. Það er vissulega ánægjuefni að byggðanefnd þingflokkanna styður þá meginhugsun sem fram kemur í þessari tillögu um valddreifingu til héraða og til sveitarfélaga í landinu og tekjutilfærslu. En það nægir ekki þegar lítil sem engin innistæða er á bak við undirskriftina undir það álit af hálfu þeirra flokka sem nú fara með stjórn landsins.

Ég legg til, herra forseti, að mál þetta gangi til hv. félmn. sameinaðs þings og vænti þess að nefndin afgreiði það til þingsins, og þá m.a. í ljósi fjölmargra jákvæðra umsagna sem borist hafa frá fyrri þingum varðandi þetta mál og sem birtar eru sem fylgiskjal með þessari tillögu, þar á meðal tilmæli frá stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, að mál þetta fái hér jákvæðan framgang, frá flestum ef ekki öllum stjórnum landshlutasamtaka sveitarfélaga og margra annarra sem taka jákvætt undir þetta mál og átta sig á því hvílíkt stórmál hér er á ferðinni sem ástæða væri til fyrir þingið að afgreiða frá sér fyrr en seinna.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.