28.01.1987
Efri deild: 35. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2601 í B-deild Alþingistíðinda. (2422)
297. mál, nauðungaruppboð
Stefán Benediktsson:
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Ég vil aðeins við þetta bæta, vegna þess að ég gleymdi því þar sem ég stóð hér í stólnum áðan, að þriðja leiðin er kannske leið á milli þeirra tveggja sem hér hafa verið ræddar, þ.e. annars vegar uppboðs með þeim hætti sem við þekkjum og þess að selja vöruna líkt og í verslun væri. Sú leið er næst þeirri leið sem hæstv. ráðh. lýsti stuttlega, en hún er sú að það fari fram útboð í stað uppboðs með þeim hætti að þeir sem áhuga hafa geti skoðað þann varning sem til sölu er á uppboðinu með nægilega góðum fyrirvara og skili síðan tilboðum í einstaka vörur eða fleiri í einu, og skili lokuðum tilboðum til uppboðshaldara. Ég held að það þurfi ekki að gera neina könnun til að átta sig á því að slík tilhögun skilar óneitanlega hærra verði fyrir þá hluti sem verið er að bjóða til sölu en þegar opið uppboð fer fram með uppboðshaldi og frammíköllum.