29.01.1987
Sameinað þing: 42. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2649 í B-deild Alþingistíðinda. (2456)

138. mál, kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Ég hef lagt eyrun við þeirri umræðu sem hér hefur farið fram í dag um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd og skipan embættismannanefndar til að fjalla um það mál. Og þeir snúningar sem verið hafa á þessari umræðu og íhlaup úr og í og annað fram eftir þeim götum hefur mér fundist vera með ólíkindum. Menn hafa komið hér og vitnað hvað eftir annað í ályktun Alþingis um stefnu í afvopnunarmálum Íslendinga frá því í maí 1985 og hefur því verið haldið hér fram eða látið að því liggja, bæði af hæstv. utanrrh. og eins af talsmanni Alþfl., hv. 5. þm. Reykv., og ekki er annað að skilja af orðum þeirra en þessi ályktun komi í raun og veru í veg fyrir að menn geti sameinast um að ræða um hvort heppilegt væri að gera Norðurlöndin að kjarnorkuvopnalausu svæði. Það er hins vegar enginn vafi á því þegar þessi ályktun Alþingis er skoðuð að vilji Alþingis er sá að endilega skuli kanna allar leiðir til að koma á kjarnorkuvopnalausu svæði í Norður-Evrópu. Og þá spyr ég þá hv. þm. sem telja að þessi hljóðan orða í ályktuninni komi í veg fyrir umræður sem leiða til þess að kannað sé hvort heppilegt sé að gera Norðurlöndin að kjarnorkuvopnalausu svæði: Hvar eru Norðurlönd? Ekki eru þau við Suðurskaut og ekki eru þau í Asíu. Þau eru í Norður-Evrópu. Það er ekki að finna stafkrók í ályktun Alþingis sem gefur til kynna að óheimilt sé með einum eða öðrum hætti að ná því markmiði að gera Norður-Evrópu kjarnorkuvopnalausa í áföngum, að byrja á einu svæði og færa síðan út kvíarnar, enda verður sú viðleitni, hæstv. utanrrh., að gera Norðurlönd að kjarnorkuvopnalausu svæði ekki skilin öðruvísi en svo að þar sé um að ræða eitt skref í áttina að kjarnorkuvopnalausum heimi. Einhvers staðar verðum við að byrja, en jafnvel það virðast menn ekki vilja skilja.

Ég kom hér í ræðustól einnig vegna þess að í þessari ályktun Alþingis er tekið fram að utanrmn. skuli skila áliti til Alþingis fyrir 15. nóv. 1985, þ.e. fyrir rúmu ári, um þátttöku Íslands í frekari viðræðum um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Þetta álit hefur ekki komið fram. Og nú langar mig að spyrja hv. formann utanrmn. sem hér situr í salnum: Hvað líður þessari álitsgerð? Það er kveðið skýrt á um það í ályktun Alþingis að þetta álit skuli koma fram. Og það er kveðið skýrt á um það í ályktun Alþingis að kannaðar skuli allar leiðir til að gera Norður-Evrópu að kjarnorkuvopnalausu svæði. Það er ekki nokkur leið að skilja ályktun Alþingis öðruvísi en svo að það eigi að kanna allar leiðir til að ná þessu takmarki. Þess vegna er mér það hulin ráðgáta hvað það er sem menn sjá í þessari ályktun sem kemur í veg fyrir að skipa megi embættismannanefnd til að kanna þessi mál.

Ég tek það reyndar fram eins og síðasti hv. ræðumaður að ég er engrar sérstakrar embættismannatrúar, en ég get ekki séð að það sé vilja og ályktun Alþingis til skaða eða gangi þvert á hana að slík nefnd manna ræði um helstu hliðar þessa máls. Og ég get ekki séð hvernig íslenskir stjórnmálamenn geta verið svona hræddir við umræður því eins og menn vita vinnast ekki þjóðfélagsmál, hvort sem það eru afvopnunarmál eða önnur mál, öðruvísi en að menn ræði málin. Þess vegna er sá ótti sem menn hafa látið í ljós hér í ræðustól um þessi mál gersamlega óskiljanlegur.