02.02.1987
Neðri deild: 39. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2662 í B-deild Alþingistíðinda. (2479)

280. mál, kosningar til Alþingis

Flm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Það frv. sem ég mæli hér fyrir varðar breytingu á lögum um kosningar til Alþingis. Það er, eins og deildinni er ljóst, þannig að núgildandi kosningalög eru tiltölulega flókin og þegar þau voru hér til afgreiðslu á sínum tíma létu talsmenn flestra flokkanna í ljós þá skoðun að nauðsyn bæri til að skoða ákvæði þeirra nánar og reyna að finna á þeim betri flöt, ef ég má orða það svo, gera þau einfaldari og skýrari. I þeim efnum hefur mjög lítið miðað og ekkert komist á blað enn þá, en viljinn átti þó a.m.k. að vera og er væntanlega fyrir hendi.

Þessu frv. til l., sem ég mæli hér fyrir, er ætlað að taka á þeim þætti þessa máls sem hvað helst hefur vafist fyrir mönnum vegna þess hversu flóknar þær úthlutunarreglur eru sem þar eru taldar eiga að gilda. Þetta varðar úthlutun jöfnunarsæta, en í núgildandi lögum er gert ráð fyrir að úthlutun þeirra fari fram í mörgum áföngum. Þar er m.a. kveðið á um að einn áfangi úthlutunarinnar skuli fara fram í því sem menn hafa nefnt öfuga kjördæmaröð, þ.e. það skuli byrjað á því að úthluta í fámennasta kjördæminu og síðan koll af kolli eftir fjölda kjósenda í kjördæmi. Fyrir því að velja þá aðferð að fara eftir öfugri stærð kjördæma við úthlutun getur ekki talist að finnist viðunandi rökstuðningur og ég hef ævinlega verið ósáttur við þessa aðferð.

Í stað þess að finna upp slíkar aðferðir er hér lagt til að afar einföld regla verði látin gilda, regla sem menn kannast við, þ.e. að við ákvörðun á því hvernig úthluta skuli jöfnunarsætum skuli fara að eins og verið hefur að undanförnu að því leytinu að það verði úthlutað í sömu röð og gert hefur verið áður, landskjörsröð, þannig að fyrsta jöfnunarsætið fari til þess flokks sem hefur flest atkvæði að baki þm. og þannig koll af kolli, nákvæmlega eins og tíðkast hefur við úthlutun landskjörssæta fram að þessu. En í annan stað er lagt til að innan hvers flokks fari úthlutunin líka fram með mjög sambærilegum hætti og núna, þ.e. það verði úthlutað á víxl eftir atkvæðamagni og eftir þingsætahlut sem er það nýja hugtak sem komið er inn í kosningalögin.

Þessi regla hefur verið í gildi og ég held að það sé engin tilviljun að þessi víxlregla hafi verið í gildi vegna þess að meðan kjördæmin eru misfjölmenn og hafa mismarga þm. og eru með misvægi atkvæða er erfitt að finna eina reglu sem úthlutar með sanngjörnum hætti ýmist í stór eða lítil kjördæmi. Það hygg ég að sé skýringin á því að menn hafa valið að vera með tvær reglur í gangi, en eins og menn kannast við er úthlutað á víxl út á atkvæði annars vegar og prósentu hins vegar. Þá fara jöfnunarsætin á víxl í hin stærri og smærri kjördæmin innan hvers flokks.

Þessi breyting miðar að því sem sagt að einfalda reglu úthlutunar á jöfnunarsætum og að mínum dómi jafnframt að því að gera hana sanngjarnari og skiljanlegri því að ég held að hver einasti maður skilji þessa reglu og muni hafa vanist henni.

Vitaskuld er þessi tillaga háð þeim takmörkunum sem gildandi stjórnarskrá setur og það eru ýmsir annmarkar eftir á kosningalögunum, en þá er í rauninni ekki hægt að lagfæra nema með stjórnarskrárbreytingu sem ég tel reyndar að muni verða gerð innan tíðar. Í þessu frv. mínu er einungis fjallað um úthlutun jöfnunarsæta. Hún getur eins gilt án tillits til þess hvaða aðferð væri notuð við úthlutun kjördæmasæta, en hér er í sjálfu sér gengið út frá því að sú aðferð verði látin gilda sem er í núgildandi kosningalögum.

Um hinn svonefnda flakkara er sjálfsagt að taka fram að varðandi hann koma fram sams konar annmarkar og í núgildandi lögum eða svipaðir kannske. Reyndar er það skoðun mín að það væri eðlilegast að afnema þennan flakkara og binda það sæti við kjördæmi eins og önnur samkvæmt stjórnarskrá, en verði það ekki gert verður að gera ráð fyrir úthlutun þessa sætis og það er jafnframt gert í þessari tillögu.

Það er ekki nýtt að jöfnunarsæti séu til úthlutunar í íslenskum kosningalögum. Þeim er ætlað að tryggja jöfnuð milli flokka og þau eru í rauninni nauðsynleg meðan við búum við svo ófullkomna og misvitra kosningaskipan eins og nú er. Þeim er auðvitað ætlað það hlutverk að tryggja að þingstyrkur flokks sé í bærilegu samræmi við heildaratkvæðisstyrk á landinu öllu. Þetta hefur verið það sjónarmið sem gilt hefur og gildir enn samkvæmt gildandi lögum og til þess að tryggja þennan jöfnuð hafa menn í gildandi lögum eins og í fyrri lögum ákveðið að nota svokallaða reglu d'Hondts til að ákveða hvað sé jöfnuður í þessum efnum. En síðan gildir jafnframt að úthlutun innan hvers flokks á jöfnunarsætum eða landskjörnum þm. eins og áður var verður að vera á grundvelli einhverrar sanngjarnrar reglu. Ég tel að það sé nauðsynlegt að sú úthlutun fari fram eingöngu eftir mælikvarða á styrk eins og verið hefur, þ.e. að úthlutunin fari í þau kjördæmi þar sem hver flokkur sýnir bestan árangur en ekki eitthvað annað. Í núgildandi stjórnarskrá er gert ráð fyrir að jöfnunarsætin séu 13 og öll nema eitt séu bundin við kjördæmi, fjögur í Reykjavík, tvö á Reykjanesi en eitt í hverju hinna kjördæmanna sem þýðir að það eru sex á suðvesturhorninu og sex úti á landi.

Ég tel að í rauninni sé úthlutun á jöfnunarsætunum enn þá vandasamari eftir þá breytingu sem gerð hefur verið á stjórnarskránni, þá breytingu sem felur í sér að binda jöfnunarsætin við kjördæmi, og þess vegna sé nauðsynlegt að huga enn betur að því að þær reglur sem menn nota séu sanngjarnar og eigi sér góðan rökstuðning. Þó að menn deili væntanlega ekki um hvaða reglu skuli fylgja til að ná jöfnuði milli flokka, eins og ég gat um, held ég að innan þings sé mikil óánægja og reyndar úti í þjóðfélaginu kannske ekki síður með þá reglu sem er í gildandi lögum um hvernig skuli úthluta innan flokks og þá í hvaða kjördæmi.

Ég sagði áðan að það verkefni að úthluta jöfnunarsætum væri eiginlega vandasamara nú en áður. Það er vegna þess að hver flokkur sem tekur upp jöfnunarsæti í tilteknu kjördæmi er í rauninni að útiloka aðra flokka frá því að fá þar jöfnunarsæti ef um minni kjördæmi er að ræða, en jafnframt að minnka líkur annarra flokka á því að fá jöfnunarsæti í þeim kjördæmum tveimur þar sem jöfnunarsætin eru fleiri en eitt, þ.e. í Reykjavík og á Reykjanesi. Þetta þýðir að úthlutunin sjálf á jöfnunarsæti felur í sér eins konar útslátt. Menn eru að slá aðra flokka út. Um leið og einhver flokkur fær jöfnunarsæti í tilteknu kjördæmi er hann að útiloka aðra. Hér er um útslátt að ræða. Þetta tel ég nauðsynlegt að menn hafi í huga, að hér er um eins konar útsláttaraðferð að ræða, og þá liggur beint við að búin sé til röð og síðan sé gengið á þessa útsláttarröð. Sú röð sem menn hafa vanist að búa til í sambandi við landskjör er einmitt röð af þessu tagi. Þetta er útsláttarröð. Sá flokkur sem á mestan rétt á jöfnunarsæti fær fyrstur að velja sér þingsæti. Þess vegna tel ég eðlilegast að þessi aðferð sé einmitt notuð áfram og það sé enn þá frekar þörf fyrir hana í þeim lögum sem eiga að gilda nú samkvæmt hinni nýju stjórnarskrá en nokkru sinni fyrr.

Eftir er þá að ákvarða hvernig skuli úthluta innan flokks. Sú röð sem á að gilda við úthlutun þingsætanna samkvæmt þessari till. minni er sú sama og hefur verið í gildi varðandi landskjörsröð. Sá flokkur hefur fyrst tækifæri til að velja sér jöfnunarþingsæti eða fá jöfnunarþingsæti sem á mestan rétt eins og verið hefur. Því gerir till. ráð fyrir. En síðan er svo eftir að velja innan flokks og þá legg ég á sama hátt áherslu á að þar liggi veigamikil rök fyrir því hvernig úthlutun er háttað og að menn hafi jafnframt í huga að þar er um eins konar útslátt að ræða líka og þess vegna sé nauðsynlegt að það sé á grundvelli styrks, að það fari til hvers flokks í þeim kjördæmum þar sem hann sýnir hlutfallslega mestan styrk.

Hvernig á þá að mæla þennan styrk? Ýmsir mælikvarðar geta verið til eins og atkvæðamagn að baki þm. útreiknað samkvæmt deilireglu d'Hondts eða prósentutala eða þingsætishlutur sem ekki hefur verið úthlutað út á. Þetta eru mælikvarðar sem koma til greina.

Hins vegar, eins og ég sagði í upphafi, er það svo að ef menn velja t.d. að úthluta eingöngu á atkvæðum hrúgar það þingsætum í hin fjölmennari kjördæmin. Ef menn veldu að úthluta einungis á prósentu mundi það úthluta fyrst og fremst út á land. Sú aðferð sem menn hafa nýtt fram að þessu um að úthluta á víxl á atkvæðum og einhverju hlutfalli er því sanngjörn og eðlileg að því leyti að þá fer úthlutun á víxl í hin fjölmennari kjördæmin á Suðvesturlandi og aftur í hin fámennari úti á landi. Þetta er einmitt nauðsynlegt að gerist vegna þess að jöfnunarsætin eru, eins og ég gat um áðan, jafnmörg úti á landi, sex, og þau eru á suðvesturhorninu, en þar eru þau líka sex.

Ég held ég þurfi ekki að hafa öllu fleiri orð um þetta. Ég vil einungis bæta því við að þessu frv. til l. fylgja engir flóknir útreikningar, enda hefur þó nokkuð verið reiknað í þessum málum og ég held að það sé mikilvægara að menn komist að niðurstöðu um hvað sé sanngjörn mæling en að menn reikni sér þingsæti út og suður. Sannleikurinn er vitaskuld sá að engin sú regla er til sem ekki má finna einhverja annmarka á hversu lengi sem menn reikna. Ég tel að það sé mikilvægara að við höfum einfalda og skiljanlega úthlutunarreglu en að menn reikni næstum því á sig gat við að leita sannleika og búi jafnvel til argasta óréttlæti í leit sinni að því sem er sanngjarnast og réttlátast vegna þess að það gerir hlutina of flókna.

Herra forseti. Ég legg til að þessu frv. verði vísað til svonefndrar sérnefndar sem fjallar um kosningalög.