02.02.1987
Neðri deild: 39. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2667 í B-deild Alþingistíðinda. (2483)
Þingstörfin og þinghaldið
Svavar Gestsson:
Þar sem hæstv. viðskrh. er viðstaddur þessa umræðu hér í hliðarherbergi vil ég leyfa mér að beina til hans spurningu um þingstörfin og þinghaldið eins og það snýr við frá hans bæjardyrum séð.
Um langt skeið hefur ríkisstjórnin haft til meðferðar vandamál bankakerfisins í landinu. Í lok ársins 1985 lá það fyrir að það yrði að grípa til aðgerða til þess að endurskipuleggja bankakerfið með tilliti til þess hvað vandamál Útvegsbankans voru þá þegar bersýnilega alvarleg. Ég lýsti því þá yfir í desember 1985 að þingflokkur Alþb. teldi óhjákvæmilegt að á þessu máli yrði tekið hið allra fyrsta og lýsti okkur reiðubúin til þess að sinna þessu máli, endurskipulagningu bankakerfisins, m.a. með tilliti til þeirra tillagna sem við höfum aftur og aftur flutt hér í þinginu um sameiningu Búnaðarbankans og Útvegsbankans.
Nú hefur því verið lýst yfir í fjölmiðlum að það sé ætlun núverandi hæstv. ríkisstjórnar að standa þannig að málum að þessi Útvegsbankamál, skipulagsmál bankanna, verði leyst á yfirstandandi þingi, þ.e. fyrir kosningar. Enda veitir ekki af því að á síðasta ári tapaði Útvegsbankinn í raun um 6000 millj. kr. í innlánum frá því sem verið hefði ef hann hefði haft svipað hlutfall í innlánsaukningu og aðrir viðskiptabankar. Á árinu 1985 hélt hann fyllilega í við aðra viðskiptabanka í landinu en svo sígur mjög á ógæfuhliðina á árinu 1986 þannig að í rauninni vantar hann inn í sína innlánsmynd um 6000 millj. kr. á árinu 1986. Hér er auðvitað um hrikalega hluti að ræða, stórkostlegt tap sem þessi banki verður fyrir á hverjum einasta mánuði. Talað er um að hann hafi orðið að greiða af Hafskipsskuldinni einni 150 millj. kr. til Seðlabankans á s.l. ári. Hér er um að ræða svo hrikalegt vandamál að það er útilokað annað en að inna eftir því hvað ríkisstjórnin hyggst gera í þessu máli á næstunni og ég er að bera þessa spurningu fram í annað sinn á þessu þingi. Fyrir tveimur vikum lagði ég þessa spurningu fyrir hæstv. forsrh., hvenær málið kæmi inn í þingið, og hann lýsti því þá yfir að þess væri að vænta mjög fljótlega.
Ég leyfi mér því, herra forseti, með tilliti til þess að hæstv. viðskrh. hlýðir á mál mitt, að spyrja hann: Hvenær er þess að vænta að ríkisstjórnin leggi fyrir hv. Alþingi tillögur um aðgerðir í skipulagsmálum bankanna sem lúta sérstaklega að því að leysa hin alvarlegu vandamál Útvegsbankans sem eru auðvitað um leið vandamál Ríkissjóðs Íslands? Ég vænti þess að hæstv. viðskrh. sjái sér fært að svara þessum spurningum þó að fyrirvarinn sé lítill eða enginn.