03.02.1987
Sameinað þing: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2678 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)
260. mál, snjómokstursreglur
Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég get alveg tekið undir það með hv. fyrirspyrjanda og síðasta ræðumanni að það er ekki alltaf sá sveigjanleiki viðhafður í framkvæmdinni sem maður hefði kosið. Oft á tíðum hef ég, þau ár sem ég hef verið samgrh., orðið að beita mér fyrir því að auka þennan sveigjanleika víða á landinu og reynt svona að greiða fyrir eftir bestu getu. Hins vegar verðum við auðvitað að átta okkur á því að við getum ekki orðið við öllum kröfum um mokstur hvaðan sem þær koma. Ef við slökum á á einum stað telur annar staður sig vera beittan ranglæti og gerir kröfur um úrbætur. Þessar snjómokstursreglur eru byggðar á ákveðnum forsendum sem gilda jafnt hvar sem er á landinu. Yfir þetta var farið vandlega í árslok 1985. Engar reglur eru þó það fullkomnar að ekki sé sjálfsagt að endurskoða þær. En ég tel ekki rétt að gera það á þessu stigi. Hins vegar er sjálfsagt að slík endurskoðun liggi fyrir fyrir næsta haust. En á þessum vetri er það ekki fyrir hendi.
Vegna orða hv. fyrirspyrjanda tek ég eftirfarandi fram: Ég sagði að framlag til vegamála væri minnkandi að raungildi. Þrátt fyrir það hefur náðst mjög góður árangur í nýframkvæmdum bæði vegna útboða og lengingar á verktíma. Slitlagsframkvæmdir hafa því aldrei orðið meiri en á síðustu þremur árum. Það lengsta sem komist hefur verið var á s.l. ári, um 280 km, þó að þar sé að vísu að hluta um einbreiðan veg að ræða.