03.02.1987
Sameinað þing: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2681 í B-deild Alþingistíðinda. (2502)

298. mál, ávana- og fíkniefni

Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. svör hans. Það er greinilegt og mjög ánægjulegt að nefndin hefur verið starfsöm á stuttum starfstíma sínum þó að verkefni hennar sé mjög yfirgripsmikið. Hins vegar tel ég afar mikilvægt að tillögur nefndarinnar komist til þessarar ríkisstjórnar áður en þinginu lýkur þannig að ríkisstjórnin geti hafist handa áður en valdatímabili hennar lýkur um að framkvæma þessar tillögur sem ég þykist fullviss um að séu unnar af alúð og miklum áhuga og vandað til þeirra. Þess vegna m.a. var fsp. borin fram til þess að kanna hvort ekki yrði örugglega hægt að byrja framkvæmdir að einhverju leyti. Ég fagna því að þetta kennsluverkefni skuli vera í þann veginn að hefjast, en það er svo fjarskalega margt annað sem á þarf að taka og ætla ég m.a. að víkja að því við umræður um fsp. sem ég flyt hér á eftir.