03.02.1987
Sameinað þing: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2683 í B-deild Alþingistíðinda. (2504)

224. mál, alnæmissjúklingar

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Spurt er hvaða ráðstafanir heilbrigðisyfirvöld hafi gert eða hyggist gera til að mæta þeim vanda er óhjákvæmilega hlýtur að skapast á sjúkrahúsum vegna fjölgunar alnæmissjúklinga á Íslandi á næstu árum.

Síðustu tvö ár hefur heilbrigðisstjórnin, eins og flestar heilbrigðisstjórnir í heiminum, unnið mjög markvisst að því að mæta þeim vanda sem alnæmi er að skapa og mun skapa í heilbrigðisþjónustunni. Fyrstu viðbrögð voru að sjálfsögðu þau að afla sér sem gleggstra upplýsinga um sjúkdóminn og sjá til þess að vitneskja um hann og þá hættu sem af honum stafaði bærist öllum almenningi sem allra fyrst. Upplýsingaherferð um sjúkdóminn var því hér á landi eins og annars staðar það sem hæst bar á árinu 1985 og raunar enn.

Næsti þáttur var upplýsingastarfsemi vegna starfsfólks heilbrigðisstofnana. Má segja að allt smitgátarkerfi sjúkrahúsanna hafi verið endurskoðað og endurbætt með tilliti til þeirrar hugsanlegu hættu sem af alnæmissjúklingum gæti stafað. Á vegum landlæknisembættisins voru gefnar út mjög nákvæmar reglur til starfsfólks um hegðan þess og umgengni við sjúklinga. Þá var öll vinna á rannsóknarstofum endurskoðuð og endurskipulögð með tilliti til þess að öll blóðtaka færi fram í lokuð ílát til þess að hættan af mengun frá blóði yrði eins lítil og kostur væri.

Þá má minna á þær umræður sem fram fóru hér á síðasta þingi er alnæmi var bætt við í flokk þeirra sjúkdóma sem heyrðu undir kynsjúkdómalögin. Einnig má minna á þær sérstöku fjárveitingar sem fengust til að byggja upp sérstaka rannsóknarstofu sem fengist við rannsóknir á veirusjúkdómum almennt en alnæmi sérstaklega. Þessi rannsóknarstofa verður tilbúin fljótlega, jafnvel fyrir lok þessa mánaðar.

Þá ber að geta þess að á miðju s.l. ári var hafin skimun á öllu blóði í blóðbanka til þess að fyrirbyggja að smit berist við blóðgjafir. Enn fremur er til umræðu nú og stendur fyrir dyrum ákvörðun um að allt blóð sem tekið er á spítölunum verði rannsakað í öryggisskyni, en aðstaða til þess skapast þegar rannsóknarstofan tekur til starfa.

Á nýliðnu hausti hófst sérstök upplýsingaherferð í sambandi við alnæmi. Aukafjárveiting fékkst til þess verkefnis á s.l. ári og á fjárlögum fyrir árið 1987 er sérstök fjárveiting í þessu skyni að upphæð 5 millj. 350 þús. kr. Sú upphæð er að vísu ekki há þegar til þess er litið hvað hér er um að tefla, en á hinn bóginn hefur komið í ljós að mjög margir eru fúsir til að leggja hönd á þennan plóg og hafa þegar gert það.

Fyrir nokkru er kominn út upplýsingabæklingur sem prentaður var í 40 þús. eintökum og sendur heim til allra landsmanna á aldrinum 15-24 ára og í undirbúningi er bæklingur sem á að fara inn á hvert heimili. Verður hann væntanlega tilbúinn eftir nokkrar vikur.

Auk þess má nefna að dagblöðin öll hafa boðið fram liðsinni sitt, m.a. ókeypis heilsíðurúm fyrir auglýsingar í þessu skyni. Morgunblaðið gaf út fjórblöðung um þetta efni þar sem einnig voru ókeypis auglýsingar og fleira af þessu tagi mætti nefna. Ríkisfjölmiðlarnir og sömuleiðis aðrir fjölmiðlar sem senda út á öldum ljósvakans hafa einnig verið mjög hjálplegir í þessari fræðsluherferð. Sérstakt námskeið hefur verið haldið fyrir skólahjúkrunarfræðinga og heilsuverndarhjúkrunarfræðinga vegna fræðslu um þetta efni í skólum.

Herra forseti. Ef fyrirspyrjandi skyldi taka aftur til máls fæ ég kannske tækifæri til að tala hér öðru sinni og mun þá reyna að ljúka þessu svari sem er mjög umfangsmikið eins og gefur að skilja þó að ekki sé tæpt nema á því allra helsta.