03.02.1987
Sameinað þing: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2684 í B-deild Alþingistíðinda. (2505)

224. mál, alnæmissjúklingar

Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrmrh. fyrir þann hluta svarsins sem þegar hefur verið fluttur og ekki skal ég draga úr því sem gert hefur verið t.d. á upplýsingasviðinu og varðandi ýmislegt annað. Hins vegar bíð ég enn eftir að heyra í svari hæstv. ráðh. og vonandi kemur það síðar hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar á sjúkrahúsum til að tryggja hjúkrun og aðhlynningu þeirra sem við vitum með fullri vissu að eiga eftir að leita til sjúkrahúsanna og heilbrigðiskerfisins vegna þessa hræðilega sjúkdóms. Ég vona eindregið að upplýsingar um það verði að finna síðar í svari hæstv. ráðh.