03.02.1987
Sameinað þing: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2693 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)

282. mál, hvalveiðar og hvalarannsóknir

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Það vinnst ekki tími til að fara efnislega ofan í þetta mál. Ég tók eftir því í svari hæstv. ráðh. að það er áformað að halda áfram stórhvelaveiðum næsta sumar. Ég bið hæstv. ráðherra að endurskoða þessa ákvörðun sína og athuga vel sinn gang. Það hlýtur að vera svo að við erum með þessu móti að ganga á bak samþykkta okkar hvort sem þær hafa verið réttar eða rangar. Við erum að halda við efnið hópum öfgamanna sem sýnt hafa að þeir láta einskis ófreistað til að stöðva þessar veiðar okkar og ég get ekki séð meðan enn er ekkert flutt út af þessum afurðum að við séum að vinna neinum gagn, fremur skemmta skrattanum.