03.02.1987
Sameinað þing: 45. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2711 í B-deild Alþingistíðinda. (2539)
238. mál, framtíðarskipan kennaramenntunar
Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir undirtektir hans við þennan tillöguflutning og þann skilning, sem mér fannst koma fram í máli hans, að á þessu máli þurfi að taka fyrr en seinna. Það er alveg rétt, sem fram kom hjá hæstv. ráðh., að það er ekki eitt út af fyrir sig nóg að mennta kennara til starfa ef þeir ekki haldast við störfin af ýmsum ástæðum. Að mínu mati skortir mjög mikið á að kennarastarfið í landinu njóti þeirrar virðingar sem því ber og það er áreiðanlega margt sem kemur þar til. Það eru auðvitað launakjörin sem skipta miklu máli, en það er þó fjölmargt í tengslum við skólastarfið í heild og það álit sem kennarastarfið nýtur sem veldur því að menn jafnvel sem hafa sótt góða menntun bæði hér heima og erlendis nýtast ekki sem skyldi til starfa.
Nú er mér vissulega ljóst að ýmislegt hefur verið gert til bóta í sambandi við menntun kennara í landinu. Á það bæði við um Kennaraháskólann og Háskóla Íslands þannig að það hefur ekki allt farið á verri veg, en tímarnir krefjast þess af okkur að á þessum málum sé tekið með öðrum og breyttum hætti. Þær breytingar sem orðið hafa á uppeldisaðstæðum í landinu, þar sem skólarnir hafa í sívaxandi mæli orðið að taka á sig eða átt að taka á sig hlutverk heimilanna sem uppalendur í miklu meiri mæli en áður var, kallar á það að þannig sé búið að starfsmönnum skólanna að þeir fái risið undir þessu stóra og ábyrgðarmikla hlutverki sem á þá er lagt.
Ég ætla ekki að ræða þetta mál frekar hér. Ég vil geta þess að við undirbúning þessarar till. leituðum við flm. til ýmissa góðra manna sem hafa áhuga og þekkingu á þessum málum og ég þakka hæstv. ráðh. fyrir það mat, sem kom fram í máli hans, að þetta mál væri allvel undirbúið og sjálfsagt mætti þar lengi um bæta. Efnislega er till. um það að menntmrn. taki á þessu máli með nefndarskipan og þó að hér séu tilgreind ákveðin atriði sem nefndinni sé ætlað að huga að sérstaklega ítreka ég að við erum ekki að hugsa um að slíkri nefnd verði markaður mjög þröngur rammi heldur geti hún í rauninni tekið á sínu máli nokkuð út frá eigin mati.
Ég legg svo að lokum áherslu á að svona starf verður ekki unnið nema menn fái til þess tíma og hafi til þess fjárráð og þess vegna er afar brýnt að nefndinni sé búin aðstaða til starfa með starfsliði og starfsaðstöðu sérstaklega miðað við þá ætlan okkar tillögumanna að þetta verk verði unnið fljótt og vel þannig að Alþingi hafi í höndum frá menntmrn. frambærilegar tillögur um endurbætur innan ekki langs tíma.
Ég legg svo að lokum til, herra forseti, að þessari till. verði nú að umræðu lokinni vísað til hv. félmn.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.