03.02.1987
Sameinað þing: 45. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2713 í B-deild Alþingistíðinda. (2542)
255. mál, fjarkennsla á vegum Háskóla Íslands
Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Það er rétt að ég skipaði nefnd þriggja manna, valinkunnra manna, til þess að starfa að upplýsingaöflun og síðar tillögum um framkvæmd og gerð framkvæmdaáætlunar um fjarkennslu. Það var hv. þm. Gunnar G. Schram, útvarpsstjóri Markús Örn Antonsson, og háskólarektor. Þeir gerðu tillögur til mín og þær fólu í sér áætlun um 26 millj. kr. kostnað við rekstur slíkrar fjarkennslu á fyrsta ári, því ári sem er að byrja núna. Þessi áætlun kom fram eftir að tillögur höfðu verið gerðar til fjárlaga og niðurstaðan varð sú að við treystum okkur ekki til að taka upp þessa fjárhæð, ráðuneytið, í tillögugerð okkar við gerð fjárlagafrv. en lögðum fram 10 millj. kr. beiðni. Það endaði nú með þeirri skelfingu að við fengum aðeins 1 075 000 kr., svo ég sé nákvæmur, til þessara þarfa sem auðvitað er rétt til þess að sýnast og þá til þess að standa undir frekari undirbúningi.
Ég hins vegar skal gera gangskör að því að til hv. þm. verði dreift aðalinnihaldi þeirrar samantektar sem nefndin gerði og þeim athugunum sem hún gerði og setti fram í ráðagerðum sínum að þessu leyti. Það skal ég gera áður en þessu þingi lýkur og vinda bráðan bug að því svo menn sjái hvað voru höfuðþættirnir í því sem hún vildi leggja áherslu á og með hvaða hætti að yrði staðið. Því miður tókst ekki betur til um þetta mikilvæga mál, sem ég hef hér greint frá, en ég verð að segja það að ég held að það sé mikil skammsýni ef menn fara ekki að taka verulega hratt til höndum að þessu leyti. Ég gerði það að ég kynnti mér þessi mál á Englandi í janúar fyrir ári síðan og ég verð að segja það að það er tvímælalaust að hér eigum við möguleika á kennslutækni, fræðslutækni með þeim hætti sem áreiðanlega kemur gífurlegum fjölda fólks til góða og fólk getur notfært sér. Og við getum vissulega breytt ýmsu í þjóðfélagsgerðinni, ef maður má orða það svo, við það að vanda til þess og nota fjölmiðla okkar og önnur tæki sem við þegar höfum til þess arna.
Þetta vildi ég að kæmi fram núna. En því miður, skrefið sem stigið var var varla til þess að nefna það því nafni með því að fjvn. og fjármálayfirvöld treystu sér ekki til þess að sjá af neinu sem orð er á gerandi til þessara brýnu þarfa.