04.02.1987
Efri deild: 37. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2729 í B-deild Alþingistíðinda. (2560)
316. mál, flugmálaáætlun
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég held að menn séu hér að blanda saman og ræða undir einum hatti hluti sem í rauninni eru aðskildir. Það er í fyrsta lagi talað um að flytja Reykjavíkurflugvöll, eins og sumir tala um. Leggja Reykjavíkurflugvöll niður, eins og sumir orða það. Ég held að það sé óráðshjal og óraunhæft. Ég held að það verði alltaf að vera flugvöllur í eða alveg við höfuðborgina. Ef menn hafa svo mikla peninga að þeir geta lagt niður samgöngumannvirki eins og Reykjavíkurflugvöll og væntanlega þá gert annan nýjan flugvöll einhvers staðar í nágrenni borgarinnar eða alveg rétt hjá, kannske úti í Skerjafirðinum eins og einhverjir höfðu hugmyndir um á sínum tíma, ef menn hafa peninga til þess þá það. Ég held að menn hafi það ekki. Menn horfa girndaraugum á þetta svæði undir húsbyggingar. Það er auðvitað alveg rétt að það væri að ýmsu leyti kannske ákjósanlegt. Þetta er jú inni í miðri borginni. En ég held að menn séu að rugla þarna saman óskyldum hlutum. Það mætti t.d. ræða um það og hugsa sér og flytja rök fyrir því að farþegaflug innanlands með stærri vélum, með vélum á borð við Fokkervélar Flugleiða, væri flutt til Keflavíkur. Að vísu hefur það verulegan kostnað í för með sér fyrir flugfarþega vegna þess að allar flugleiðir verða lengri. Það er alveg sama hvert menn fljúga hér nema kannske vestur á Rif, þá kann að vera örlítið styttra frá Keflavík, en allar aðrar flugleiðir innanlands munu lengjast við það að flytja flugið til Keflavíkur. Engu að síður hygg ég að að því muni koma að innanlandsflug með stærri vélum verður flutt til Keflavíkur kannske á næstu tíu árum eða svo, en það verður alltaf flugvöllur hér í höfuðborginni og það verður að vera flugvöllur hér í höfuðborginni þar sem er stundað ýmiss konar flug með minni vélum. Það má taka dæmi t.d. frá Svíþjóð, frá Stokkhólmi, þar sem voru tveir flugvellir, Bromma og Arlanda. Bromma-flugvöllur er nú umkringdur byggð inni í miðju borgarsvæðinu. Þaðan hefur áætlunarflug með stórum flugvélum verið flutt, en þaðan er enn þá rekið ýmiss konar flug með minni flugvélum. Ég hygg að mjög svipað megi segja hér um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Við leggjum ekki niður svona samgöngumannvirki vegna þess að við höfum ekki ráð á því og það væri mjög óskynsamlegt að ég hygg.
Við höfum veg til Keflavíkur, steinsteyptan veg, og það er verulega kostnaðarsamt á okkar mælikvarða að tvöfalda hann þannig að þar geti orðið tvær akgreinar í hvora átt og einstefnuakstur. En það er auðvitað eins og hvert annað rugl að vera að tala um gerð einhvers konar einteinungs suður til Keflavíkur. Ef menn leggja slíkt fram í alvöru í pólitík, slíkar hugmyndir, hljóta þeir að segja hvað þær muni kosta. Það verða þá væntanlega að vera tvær slíkar lestir samhliða þannig að það sé hægt að hafa tíðar samgöngur þarna. Það sé ekki bundið við að fara bara í aðra áttina. Ég man nú ekki betur en það hafi verið lögð hér fram einhvern tímann af
framsóknarmönnum tillaga um járnbraut á Suðurlandi sem hlaut ekki mjög miklar undirtektir. Það er hægt að flytja svona till., en það hefur held ég ákaflega lítið að segja. En þegar menn þykjast ætla að vera hagsýnir með því að flytja burtu Reykjavíkurflugvöll verða menn að gera sér grein fyrir því hvað það kostar að leggja niður slíkt samgöngumannvirki, hvað það kostar að gera annan flugvöll í eða við höfuðborgina og að vera þá reiðubúnir til að útvega fjármagn til þeirra hluta. Í samgöngukerfi þar sem við eigum mjög margt ógert og mörg brýn verkefni á það að leggja niður Reykjavíkurflugvöll og byggja á því svæði hreint ekki að vera forgangsverkefni. Við getum hugsað til þess kannske einhvern tímann töluvert eftir aldamótin.