04.02.1987
Neðri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2743 í B-deild Alþingistíðinda. (2578)
124. mál, skipan opinberra framkvæmda
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um skipan opinberra framkvæmda. Frv. hefur þegar verið rætt og afgreitt frá hv. Ed.
Frv. sem hér er til umræðu var samið af sérstakri nefnd sem skipuð var af þáy. fjmrh. vorið 1984. Helstu niðurstöður nefndarinnar eru þær að opinberar framkvæmdir þarfnist markvissari umfjöllunar en verið hefur á undanförnum árum og tekur þetta bæði til stjórnunar framkvæmda og mats á gildi þeirra og arðsemi að áliti nefndarinnar. Hún telur að það skuli vera ófrávíkjanleg regla að allar framkvæmdir séu metnar með tilliti til fjárhagslegrar hagkvæmni. Þar með er ekki sagt að sú mælistika eigi alltaf að stýra vali verkefna, en það er álit nefndarinnar enn fremur að breytingar þurfi að gera á stjórn opinberra framkvæmda. Styrkari stjórn þarf að hafa á öllum undirbúningi verkefna og framkvæmdir ekki að hefjast fyrr en fyrir liggur ákvörðun um fjármögnun og hraða einstakra verkefna.
Nefndin bendir á tvö möguleika til breytinga. Annar er sá að lögum um opinberar framkvæmdir verði ekki breytt, en öll starfsemi framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins verði sveigð innan þess ramma sem lög heimila. Hins vegar voru lögð fram frumvarpsdrög af hálfu nefndarinnar um breytingu á lögum þar sem lagt er til að framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins verði lögð niður og umfjöllun opinberra aðila um framkvæmdir efld með öðrum hætti. En báðar tillögur nefndarinnar miða að sama marki, þ.e. í fyrsta lagi að því að stjórn opinberra framkvæmda færist í ríkari mæli en nú er til fjármálayfirvalda og þar fari fram mat á hagkvæmni og forgangsröðun verkefna og jafnframt sé ávallt til staðar heildaryfirsýn um opinberar framkvæmdir, en í öðru lagi verði hinn eiginlegi verklegi þáttur framkvæmda leystur meir en nú er af óháðum aðilum samkvæmt sérstökum samningum.
Sá kostur var valinn að gera breytingar á gildandi lögum um þetta efni og leggja niður framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins. Í landinu eru fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki sem hafa þekkingu og reynslu til þess að takast á við þessi verkefni og eðlilegt þykir að færa þau í ríkari mæli út til þeirra.
Í stærri fjárfestingarverkefnum hefur þótt gefast vel að fela tilteknum aðilum, einum eða fleirum, stjórnun verkefna á þann hátt að yfirsýn náist um öll meiri háttar atriði, samræmingu á störfum hönnuða, verktaka og eftirlits. Þetta hefur verið nefnt verkefnisstjórnun eða samræming og stýring.
Að vel athuguðu máli tel ég að í öllum meginatriðum beri því að fallast á þau sjónarmið sem nefndin setti fram og hef því flutt það frv. sem hér liggur fyrir með þeim breytingum sem þar er kveðið á um.
Það er alveg ljóst að það eru um margt breyttar aðstæður að því er varðar opinberar framkvæmdir, opinbera byggingarstarfsemi, frá því sem var í kringum 1970 þegar núgildandi lög voru undirbúin og samþykkt. Verkþekkingu hefur fleygt fram og landsmenn hafa öðlast dýrmæta reynslu af þátttöku í umsjón stórra og umfangsmikilla verkefna á undanförnum árum. M.a. af þeim sökum er nú þörf breytinga í þessu efni. Það er ástæða til að leggja áherslu á að hér er um mikla fjármuni að tefla sem varið er til opinberrar byggingarstarfsemi og lánsfé, sem gjarnan er til þeirra aflað, er oft og tíðum dýrt. Það er því mjög mikilvægt að leggja upp úr góðri stjórnun þessara mála. Þess vegna vil ég gjarnan sjá meiri afskipti og vandaðri undirbúning að upphafi framkvæmda, en minni afskipti af verkframkvæmdinni sjálfri. Því er lagt til í þessu frv. að Fjárlaga- og hagsýslustofnun fái aukin völd til að hafa markviss afskipti af byggingum og undirbúningi þeirra á frumstigi, en ríkið semji síðan við óháða aðila til að sjá um framkvæmdir og að framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins verði lögð niður. Þá er ástæða til þess að láta reyna á það í auknum mæli að útboð á hönnun og framkvæmdum fari saman þannig að hönnun og framkvæmd verks verði boðin út í einu lagi.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um meginefni þessa frv., en vísa að öðru leyti til framsöguræðu fyrir málinu í hv. Ed. Ég legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.